Félagsbréf - 01.10.1965, Qupperneq 32

Félagsbréf - 01.10.1965, Qupperneq 32
bindi, aukning 419.609. Árið 1956 voru lánuð 2.2 bindi að meðaltali á hvert mannsbarn á landinu, en 1963 4.1, en á þessu tímabili hefur Islend- ingum fjölgað um hartnær 20 þúsund. Svipuð er aukning lánþega. Þeir voru rúm 8 þús. árið 1956, en voru 20.465 1963 — eða 14.5% allra landsmanna, en raunverulega lesa fleiri bækur úr söfnunum en þessi tala sýnir, því að margar bækur, sem lánaðar eru, lesa tveir eða fleiri á sama heimili — eink- um í sveitunum. Annars hefur aukn- ing útlána verið mun meiri í bæjum og kauptúnum en í sveitum, og sér- staklega hefur aukningin verið ör í mörgum hinna stærstu bæja, og virðist hún fyrst og fremst komin undir þrennu: Fjölbreyttum bókakosti, á- hugasömum bókavörðum og góðum og hagkvæmum húsakosti. Eftirfarandi dæmi sýna, hve bóklán hafa aukizt ört í Reykjavík og nokkrum öðrum bæj- um: Reykjavík 1957 134.526 bindi, 1963 312.991 bindi. Hafnarfjörður 1957 12.753 bindi, 1963 44.852 bindi. Akureyri 1957 19.447 bindi, 1963 40.703 bindi. Vestmannaeyjar 1957 16.296 bindi, 1963 33.250 bindi. Isafjörður 1957 5.811 bindi, 1963 15.021 bindi. Eina árið, sem allt lækkaði, binda- tala í söfnunum, tala lánþega og lán- aðra binda, var 1962. Þá hafði bóka- verð hækkað geipilega frá 1954, þegar samið var frumvarp til laga um al- menningsbókasöfn, og þar eð flutt höfðu verið tvisvar á Alþingi frum- vörp til hækkunar á öllum framlög- um til bókasafna — og þá einkum fram- lögum ríkisins — væntu forráðamenn safnanna þess fastlega, að ríkisstyrk- urinn yrði stórum aukinn, og svo biðu þeir átekta. En þegar von þeirra brást, brugðust þeir mannlega við og hækk- uðu mjög heimaframlögin, svo að bókakostur óx stórlega og samfara honum fjöldi lánþega og lánaðra binda. VII. Lögin frá 1963. Eins og þegar er getið voru tvisvar lögð fram á Alþingi frumvörp til breyt- ingar og bóta á lögunum um almenn- ingsbókasöfn, sem ekki voru samþykkt- Menntamálaráðherra Gylfi Þ. Gísla- son fékk menntamálanefnd Neðri deild- ar Alþingis til að flytja slíkt frum- varp árið 1959 og 1960, en frumvörp- in döguðu uppi á báðum þessum þmg- um. Síðan kom frumvarpið fram í all- mikið breyttri mynd á Alþingi 1962, og nú var það stjórnarfrumvarp. Það var samþykkt sem lög síðla vetrar 1963 og gekk í gildi 1. janúar 1964. Með samþykkt þessara laga var stórum bætt starfsaðstaða allra al- menningsbókasafna — og þá ekki siz bæjar- og héraðsbókasafna. Skulu hér tekin dæmi, sem sýna þetta ljóslega. Samkvæmt lögunum frá 1955 voru skylduframlög aðila til héraðsbóka safns í 600 manna hreppi og 3 þúsund manna sýslu, svo sem hér segir- 24 FÉLAGSBRÉF
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Félagsbréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.