Félagsbréf - 01.10.1965, Page 34
um nýju lögum kr. 3.514.139, en auk
þess hækkaði framlag til húsabóta
handa bókasöfnum úr kr. 166.250 í
kr. 950.000, svo að hækkunin nam alls
til þessara safna kr. 3.146.314. Áhrif
hinna nýju laga á rekstur, starfshætti
og notkun safnanna verða ekki enn séð
af skýrslum, en enginn vafi leikur á,
að þau verða mjög mikil og mikilvæg.
VIII.
M ikiS er ógert.
Þó að það, sem að framan segir,
sýni mikla aukningu í notkun íslenzkra
almenningsbókasafna, eru þau flest
mjög stutt á veg komin, ef miðað er
við það, sem þau þurfa að verða og
eru orðin víða erlendis. Hins vegar
ber þess að geta, að áhugi ráðamanna
og almennings út um byggðir landsins
hefur aukizt mjög ört. Frá því að ég
varð bókafulltrúi hef ég ferðast mikið
um landið, var eitt af fyrstu árunum,
sem ég gegndi þessu starfi, 111 daga
á ferðalagi. Ég hef víðast mætt skiln-
ingi og góðum vilja til úrhóta, og þó
að sumir hafi lofað upp í ermina á
sér, þá eru þeir miklu fleiri, sem Iiafa
sýnt viljann í verki — og oft í ríkum
mæli, miðað við aðstæður.
Héraðsbókasöfnin liafa fram að þessu
yfirleitt verið vanmegnug þess að leysa
af hendi það hlutverk, sem þeim er
ætlað, og þrátt fyrir þá úrbót, sem
lögin frá 1963 veita, eru fjárráð flestra
þessara safna mun minni en nauðsyn
krefur. En mörg þeirra komast þó það
hátt í tekjum, að ef sami vilji er fyrir
hendi hjá ráðamönnum hreppa og sýsl-
na og ríkir nú í mörgum af bæjunum,
þá er þessum aðilum engan veginn of-
vaxið að bæta við framlögin því, sem
ríður baggamuninn til þess að starf-
semi safnanna njóti sín miklum mun
betur. Einna erfiðast viðfangs er að
koma upp viðhlítandi húsnæði handa
söfnunum. Aðeins tvö, Amtsbókasafnið
í Stykkishólmi og Héraðsbókasafn Ár-
nessýslu á Selfossi, hafa eignazt mynd-
arlegar og hagkvæmar bókhlöður, og
hókasöfnin í Búðardal og í Höfn ‘
Ilornafirði allgóðar vistarverur í nýjum
félagsheimilum. Þá hefur og Héraðs-
bókasafn Vestur-Barðastrandarsýslu
hlotið góðan aðbúnað og starfsskilyrði
í liúsi því, sem áður var barnaskóli, og
á næstu árum mun séð fyrir húsnæði
handa nokkrum hinna í félagsheimil-
um, sem nú eru í smíðum.
Bæjarbókasöfnin og þau söfn, sem
eru hvort tveggja í senn, bæjar- og
héraðsbókasöfn, eru flest betur stödd
um úrræði til húsabóta en héraðsbóka-
söfn í tiltölulega fámennum kauptún-
um. Borgarbókasafn Reykjavíkur hefur
reist myndarlegt útibú í einum bæjar-
hluta, og innan skamms mun verða
hafizt handa um að reisa aðalsafninu
liagkvæm, rúmgóð og glæsileg husa-
kynni. Bæjar- og héraðsbókasafnið t
Hafnarfirði hefur eignazt myndarlegt
bókasafnshús — og varð þetta safn
fyrst allra til að flytja í nýtízkuleg
og rúmgóð húsakynni. Á Siglufirði lief-
26 FÉLAGSBRÉF