Félagsbréf - 01.10.1965, Síða 40

Félagsbréf - 01.10.1965, Síða 40
Fyrir löngu, svarar drengurinn. Hvers vegna að spyrja? Þær hafa legið, systirin og brúðan iiennar og hlustað langtímum saman, og það er orðið langt síðan þær heyrðu ára- glamið neðan frá fljótinu, og líka heyrðu þær, þegar það dvínaði og hvarf í fjarskann. Grét mamma? spyr systirin. Nei. En pabbi? Nei, ekki heldur, svarar drengurinn og seilist undir koddahornið eftir skopparakringlunni sinni, sem er rauð og blá eins og munnharpan hans. Og skopparakringlan tekur að dansa ein- dans um lokið á koffortinu á milli rúmanna; það er líka rautt og blátt og með rósaflúri á lokinu. Og kringl- an Jæytist áfram með lágum niði, sem líkist einna helzt angurværu suði ó- sýnilegrar fiskiflugu, suði, sein hljóm- ar örskotsstund við sumarheitan bæjar- vegg, kemur úr órafjarska, hverfur í í órafjarska á ný. Hvenær kemur María aftur? spyr systirin eftir langa þögn. Ég veit það ekki, og pabbi og manna vita það ekki, svarar drengur- inn. Og enn verður löng þögn; en skopp- arakringlan heldur áfram að niða og dansa. Kannski kemur hún ekki aftur, seg- ir systirin. Jú, pabbi og mamma segja, að hún komi áreiðanlega aftur; kannski í baust; kannski snemma í haust. Það getur verið, að hún komi of seint. Af liverju skyldi hún koma of seint? Bara af því, svarar systirin svo lágt, að drengurinn lieyrir það naumast. Og önnur hönd hennar, holdlaus og tæring- arblá, tekur að fitla við tjaldþekjuna, þar sem hún togar upp til sín vegg- inn. Þar við umvörpin er ekkert að sjá, ekkert að finna. Eigum við að prenta í prentsmiðjunni minni? spyr drengurinn og stöðvar kringluna tveim hönduin, grípur liana eins og fugl í lófana. Kannski vísu? Ekki núna, ég er svo |>reytt, segir systirin. Spilaðu heldur á hörpuna |>ína. Og hún snýr sér til veggjar. Og drengurinn dregur munnhörp- una sína upp úr huxnavasa sínum og tekur að leika á hana sömu lokaleys- urnar og vindurinn hefur kennt hon- um; tónarnir vefjast hverir um aðra, fylla tjaldið óskiljanlegri tónabiðu, án upphafs og endis. Þá er líkast því, að brúðan ofan a sæng systurinnar láti heillast af þess- ari undarlegu spilamennsku. Hún tek- ur að bylta sér, skjálfa og titra, og hún veltur út af sænginni niður a sölnað grasgólfið. En drengurinn heldur áfram að spila; munnharpan þeytist um varir hans, aftur og fram, eins og hún vilj' um fram allt kæfa og yfirgnæfa host- ann handan úr rúminu; eða er það cf til vill grátkjökur; eða hvort tveggja? Uni kvöldið leggst mýrarþokan yf>r fljótið og engið. 32 félagsbréf
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.