Félagsbréf - 01.10.1965, Page 44

Félagsbréf - 01.10.1965, Page 44
ástæðulaus. Var ekki einmitt írost- nóttanna von hvað af hverju? Ekki yrði systir hans látin sofa í tjaldi fram á vetur; ekki mundi henni batna hóstinn á því. Og drengurinn gengur álútur um stund, strýkur grasið með herum lófanum, ef hann má finna þess einhver merki að hrím sé á jörðu. En grasið er rakt og mjúkt og ekki sár- kalt. Hvergi er lirím að finna, og drengurinn sér við daufa kvöldglæt- una, hvernig vetrarkvíðinn liggur strengdur milli hæstu puntstráanna og glitrar eins og væri liann úr silfri. En óttinn heltekur drenginn að nýju. Af bæjarhlaðinu sér liann, hvar fað- ir hans situr í hnipri inni í króknum hjá hesthúskofanum; situr þar á rofi, sem fallið hefur úr kálgarðsveggnum fyrir löngu; situr þar og grætur; ekki liátt eins og hörn og konur, en hljótt og ekkalaust, eins og gömul þrekmenni. Drengurinn hefur aldrei séð föður sinn gráta. En það er ekki um að villast. Tárin, sem elta hvert annað við- námslaust niður skeggjaða vangana segja drengnum, hvernig komið er. Þau segja honum líka, hvers vegna hann liafði mátt slóra að vild, leika sér fram í myrkur. Hann þarf einskis að spyrja. Dauðinn hafði tekið að sér vaktina í tjaldinu, ekki móðir drengs- ins. Kannski liafði dauðinn verið mætt- ur í dögun, þótt drengurinn vrði þess ekki var. Faðirinn sér ekki drenginn, fyrr enn hann stendur við hlið hans. Þá þerrar hann augun í flýti. Og hann 36 FÉLAGSBRÉF tekur son sinn á hné sér, vefur hann að sér blítt og huggandi. Nú er það hlutskipti föðurins að strjúka hrjúf- um húmannshöndum um vanga drengs- ins, sem grætur í faðmi hans sárt og óstöðvandi. Nú þarftu ekki að sofa lengur úti, væni minn, segir hann. Systir þín er komin inn í bæ og henni er hlýtt, verður aldrei kalt framar. Ég veit það, pabbi, segir drengur- inn. En mamma? Kannski er mamma sofnuð, hún var orðin svo þreytt. Guð er vondur, segir drengurinn. Stundum hvarflar að manni að svo sé. En sú er vafalausl ekki raunin. Kannski hef ég verið vondur og verð- skuldað þessa þungu raun æoníæ. Þú ert ekki vondur, pabhi minn; guð er vondur, segir drengurinn og lætur ekki sefast. Nú á ég enga systur. Víst er guð vondur; hann er búinn að taka þær báðar frá mér. Komdu væni minn, segir faðirinn og rís seinlega á fætur. Og liann leiðir drenginn við hönd sér niður með garð- inum og heim hlaðið. Það er eins og bærinn sé í eyði; meira að segja læt»r gamli Kátur ekki á sér kræla, kemur ekki og flaðrar upp um drenginn, eins og hann er vanur. Á leiðinni inn göngin, dimm °S full af stybbu gamalla bæja, nenmr faðirinn staðar við skáladyrnar og hann signir hurðina. Þá veit drenguF inn, hvar systir hans sefur og hvaða svefni hún sefur, óralöngum og draum

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.