Félagsbréf - 01.10.1965, Side 48
ástríðum og spennu, en einnig með ívafi af mannlegri glettni og mannlegri
hamingju. Tómas Guðmundsson hefur þýtt hókina á íslenzku.
Bókin er um 320 bls. að stærð og er prentuð og bundin í Prentsmiðju Hafnar-
fjarðar hf., en kápu og titilsíðu teiknaði Torfi Jónsson.
Lýbir og landshagir
Lýðir og landshagir er fyrra bindi af ritum Þorkells Jóhannessonar, og verð-
ur desemberbók AB.
Ritgerðir hans, sem birtast í þessari bók, fjalla um ýmis efni frá ýmsum tím-
um, en þó einkum um hagsögu íslands. Nefna má til dæmis ritgerð um atvinnu-
hagi á íslandi fram um siðaskipti, tvær ritgerðir úr verzlunarsögu íslands og
eina um landbúnað á íslandi á árunum 1874—1940. Þá er hér einnig ritgerð um
alþýðumenntun og skólamál á íslandi á 18. öld og önnur um það, er prentlistin
kom fyrst til íslands. Ennfremur má geta ritgerðar um Skaftárelda og annarra um
Pláguna miklu 1402—1404, sem venjulega gengur undir nafninu Svarti dauði.
Fleiri ritgerðir skulu ekki taldar hér, en öllum er ritgerðunum það sameigin-
legt, að um efnið er fjallað af alúð og skarpskyggni trausts sagnfræðings og
rithöfundar. Lárus H. Blöndal, bókavörður hefur búið bókina til prentunar.
Bókin, sem er 340 bls., er prentuð í Víkingsprenti hf. og bundin í Félagsbók-
bandinu hf. Kápu hefur Torfi Jónsson teiknað.
Gjafabœkur AB
Gjafabók AB verður að þessu sinni Kvæðakver Sighvats Þórðarsonar og sér
Jóhannes Halldórsson cand. mag. um útgáfuna.
Sighvatur Þórðarson fæddist skömmu fyrir aldamótin 1000 og lifði fram
undir miðja elleftu öld. Um hann er farið svofelldum orðum í Heimskringlu:
„Sighvatur var ekki hraðmæltur maður í sundurlausum orðum, en skáldskapur
var honum svo tiltækur, að hann kvað af tungu fram svo sem hann mælti annað
mál.“
I bókina er safnað þeim vísum og kvæðum, sem verða eignuð Sighvati skáldi
Þórðarsyni, og er meginhluti þeirra úr ýmsum handritum konungssagna, en
auk þess fáeinar vísur og vísubrot úr Eddu Snorra Sturlusonar, Málskrúðsfræði
Ólafs hvítaskálds Þórðarsonar og vísuhelmingur úr Laufás-Eddu.
Gjafabókin verður ekki til sölu, en er gjöf Almenna bókafélagsins til þeirra
félagsmanna, sem keypt hafa 6 eða fleiri AB bækur á árinu.
Bókin er um 140 bls. að stærð, prentuð í Prentsmiðju Jóns Helgasonar hf. °S
bundin í Félagsbókbandinu hf.