Félagsbréf - 01.10.1965, Side 49

Félagsbréf - 01.10.1965, Side 49
lausum svefni, sem enginn munn- hörpuhljómur megnar framar að rjúfa. Og drengurinn brestur í grát að nýju, ósegjanlega sáran og kæfandi. Gráttu ekki, vegna mömmu, hvíslar faðirinn. Og þeir leiðast áfram inn göngin, upp grjótþrepin innst í göng- unum og irin á baðstofugólfið. 1 bað- stofunni er dimmt; þó sér drengur- inn, hvar frænka gamla situr á rúm- inu sínu og rær fram í gráðið. Líka sér hann móta fyrir dökkri þúst ofan á rúmi foreldranna. Hún bærist ör- lítið, en hljóðlaust. Það er eins og haustvindurinn, sem stendur á opinn gluggann, sé að blaka við einhverjum flíkum í rúminu. Farðu að hátta, væni minn og gráttu ekki, iivíslar faðirinn enn og leiðir son sinn að rúminu gegnt upp- göngunni. Drengurinn getur ekki sofnað, en hann grætur ekki. Hann heyrir, þegar faði rinn lætur vel að móður hans, hvíslar að lienni huggunarorðum. Drengurinn þrástarir upp í súðina. Þar er ekkert að sjá þessa dimmu haustnótt, ekkert, sem hugann gleður, ckki skringilega kvistinn ofan við gluggaskotið, sem í dagsbirtunni lík- ist engu fremur en rauðu stormskýi með svörtum kjarna. Og drengurinn gotur ekki vænzt þess fyrr en birtir af degi að mæta þögulu augnaráði kvist- anna tveggja neðst á sperrutánni. Hann hefur horfzt í augu við þessi kvistaugu á hverjum morgni frá því hann man fyrst eftir sér. í skímu vetrarmorgii- anna hafa þau vakið honum ónota- beyg, svona blóðhlaupin sem þau eru. Drengurinn byltir sér enn, getur ckki sofnað. Vindurinn á þekj- unni og hljóð gömlu baðstofunnar, gamla bæjarins, lialda fyrir honum vöku; og ókennileg hljóð að framan, þar sem systirin sefur. Eða eru það kannski beizlin á uglunni, sem láta svona? Tifið í dauðsmannsúrinu inni í veggnum rétt við eyrað á lionum, og eilífðarhljómurinn í gömlu fjaðra- klukkunni láta óvenjuhátt í eyrum lians, líka, þegar klukkan tekur and- köf, eins og hún sé að því komin að kafna. En nóttin líður. Geturðu ekki sofið, Nói minn? heyr- ir drengurinn móður sína hvísla gegn- um eilífðarhljóminn. Þessi rödd að handan liefur huggun og mildi til að miðla, þrátt fyrir allt. Ég er alveg að sofna, mamma mín, hvíslar hann á móti gegnum myrkrið. Innan stundar ber mildin og æðru- leysið í rödd móðurinnar ávöxt. Ei- lífðarhljómur gömlu klukkunnar dvín- ar smám saman, hverfur úr vitund drengsins, og tifið í dauðsmannsúrinu þagnar líka að fullu. 4 Og enn líða dagarnir. Viku síðar má sjá, öðru sinni á þessu hausti, kistu rórilla suður yfir hrísásinn og hverfa inn á fenjaflóann. FÉLAGSBRÉF 37

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.