Félagsbréf - 01.10.1965, Blaðsíða 52
HJÖRTUR PÁLSSON
JVokkrir punktar um I.G.Þ.
I.
Þó að’ Indriði G. Þorsteinsson sé enn
innan við fertugt og frá lmns hendi
hafi ekki komið nema fimm bækur,
tvær skáldsögur og þrjú smásagna-
söfn, leikur ekki á tveim tungum, að
hann er einn fremsti samtímahöfund-
ur okkar, sem nú skrifar óbundið mál,
og hefur um margt athyglisverða sér-
stöðu.
Þegar ritferill lians hófst, varð hann
strax mjög umdeildur höfundur, en á
þeim 14 árum, sem síðan eru liðin,
hafa menn beðið hverrar nýrrar bókar
Indriða með mikilli eftirvæntingu, og
sést af þessu, að snemma liefur marg-
an rennt grun í, að þar færi eftir-
tektarverður höfundur og viljað fylgj-
ast með, hvernig honum vegnaði. Þeir
hafa reynzt sannspáir, því að með
sterkum rökum má segja, að hann
hafi efnt þau fyrirheit, sem hann gaf
með 79 af stöðinni og beztu smásög-
um sínum, í Landi og sonum og nú
síðast í Mannþingi.
Um Indriða má segja líkt og Byron
eftir útkomu Childe Harold, að hann
hafi vaknað einn morgun og verið þá
orðinn frægur. Þegar hann bar sigur
úr býtum í fyrstu smásagnasamkeppni
Samvinnunnar 1951, „sló hann í gegn“
svo eftirminnilega, að enn er til þess
jafnað. Síðan hefur honum aukizt ás-
megin við hverja nýja raun að kalla
og alltaf verið á uppleið.
Indriði G. Þorsteinsson fæddist í
Gilhaga í Lýtingsstaðahreppi í Skaga-
firði 18. apríl 1926. Ólst hann síðan
upp á ýmsum bæjum í Skagafirði með
foreldrum sínum og árlangt á Sauðár-
króki, unz hann fluttist til Akureyrar
1939. Hann var við nám í Gagnfræða-
skóla Akureyrar vetrarpart 1939—40,
í Menntaskólanum á Akureyri 1940—41
og á Laugarvatni 1942—43, en kveðst
hafa verið firna lélegur námsmaður.
Að öðru leyti var hann lengst af a
Akureyri til 1948 og stundaði á þeim
árum ýmsa vinnu, svo sem vegavinnu,
Bretavinnu, verzlunarstörf og akstur.
Næstu tvö sumur fékkst Indriði við
akstur í Reykjavík, en var á veturna i
Skagafirði, — þá nýlega tekinn að
fást við ritstörf. Vorið 1951 hóf hann
vinnu á Keflavíkurflugvelli, en réðst
skömmu síðar blaðamaður til Tímans.
Seinna um sumarið birtist verðlauna-
saga hans, Blástör, og komst höfund
40 FÉLAGSBRÉF