Félagsbréf - 01.10.1965, Side 62

Félagsbréf - 01.10.1965, Side 62
myndir úr ævi og önn skáldsins. Og þó er hinn rauði þráður í þeim báðum sá sami. Hagalín segir: „Hugsanafrels" ið er því að mínum dómi skilyrðið fyrir heilbrigðu, gróandi og þroskandi andlegu lífi.“ Og enn segir Hagalín: „Menn hinna einstrengingslegu sjónar- miða, menn banns og ófrelsis, hafa stráð vegu sína glæpum gegn einmitt þeim, sem hafa fært mannkyninu sannindi morgundagsins.“ — Laxness segir: „Þau ríki sem banna frelsi til stjórnmálastarfsemi skoðanamynd unar og listsköpunar eru ekki viðræðu- hæf um húmanisma, þvi húmanismi er frumskilyrði þessara hluta. Sá „húmanisti‘“ sem andmælir frelsi og umburðarlyndi, jafnvel þó hann geri það í nafni alþýðunnar, hefur þarmeð andmælt undirstöðu og forsendum húmanismans.“ Ekki verður betur séð en þessar setningar segi nokkurn veg- inn það sama. Og það er kannski þessi mannlega reisn, sem í tilgreindum um- mælum felst, þessi karlmannlegi þrótt- ur, sem einkennir báðar bækurnar, Gróður og sandfok og Skáldatíma. En hví voru viðtökurnar svo mis- jafnar? Hví var bók Hagalíns látin liggja milli hluta, en bók Kiljans tek- ið með svo miklum fögnuði? Voru sannleikur og réttlæti ekki jafngjald- geng vara 1943 og tuttugu árum síðar? Við fáum ekki vikizt undan þeirri menningarlegu og siðferðislegu skyldu að leitast við að gera okkur grein fyrir, hver svörin verða við framangreind- um spurningum og jafnvel enn fleiri, og er það ekki vonum fyrr, að reynt sé. 1943 stóð heimsstyrjöldin síðari sem hæst. Enn var ekki séð fyrir endi þess hildarleiks. Nazisminn rauð Evrópu blóði. Austur á sléttum Rússlands höfðu herir Hitlers herjað um tveggja ára skeið eða frá þeim tíma, er rofinn hafði verið griða- og vináttusáttmáli þeirra Stalíns. En „það var ekki sök Stalíns að sá allíans skyldi fara út um þúfur,“ segir Halldór Kiljan Laxness. Að vísu var bjartara í lofti en verið hafði tveim árum fyrr, þegar Bretland stóð eitt uppi Evrópuríkja gegn naz- ismanum, ofbeldið og hatrið réðu álf- unni frá Norður-Noregi til Gíbraltar og sprengjunum rigndi yfir England. Sá, sem ekki man þá mánuðina og þá ógn, er þá lá í lofti, gerir sér sjálf- sagt tæpast ljóst, hve þá munaði mjóu, að þau verðmæti, sem okkur eru helg- ust og kærust, færu veg allrar verald- ar. Kannski var það gæfa okkar allra og „húmanismans“, að „sá allíans , sem þá réð svo að segja öllu megm- landi Evrópu, „fór út um þúfur“, þot[ ekki væri það „sök Stalíns“? En nóg um það. 1943 var sem sé svo komið, að Sovétmenn voru bandamenn alha frelsisunnandi þjóða í baráttunni gegn villimennsku nazismans, að vísu ekki sjálfviljugir, ef marka má orð Laxness, en bandamenn þó. Hér á íslandi var harðskeytt lið „sovétvina“ mikils ráð- andi í bókmenntum og menningarmál- um. Þar var Halldór Kiljan LaxneSS framarlega í flokki, hafði gert víðreist 50 FÉLAGSBRÉF

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.