Fréttablaðið - 24.10.2016, Side 14
Hvað gerðu Gylfi og Jói?
Okkar menn spiluðu 90 mínútur
fyrir sín lið um helgina. Jóhann
Berg Guðmundsson átti stóran
þátt í sigurmarki Burnley. Skot
hans í slána datt fyrir fætur Arfield
sem skoraði sigurmarkið. Gylfi
Þór Sigurðsson var nálægt því að
tryggja Swansea sigur er skot hans
fór í stöngina. Hann fékk einnig
gult spjald í leiknum.
Stærstu úrslitin Chelsea nældi í
gríðarlega góð þrjú stig í stór-
leik helgarinnar á meðan City og
Arsen al misstigu sig.
Hetjan West Ham hefur gengið
hörmulega á nýja heimavell-
inum og mark í uppbótartíma frá
Winston Reid var því afar vel þegið.
Kom á óvart Middlesbrough og
Bournemouth gerðu mjög vel í
því að fá ekki mark á sig í leikjum
sínum gegn Arsenal og Tottenham.
Í dag
21.00 Messan Sport
lOkAleikuR í dAG
íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu tapaði um helgina, 1-0,
gegn danmörku á Sincere Cup í
kína. eina mark leiksins skoraði
Johanna Rasmussen í fyrri hálfleik.
Stelpurnar gerðu 2-2 jafntefli við
kína í fyrsta leiknum og eru því
með eitt stig eftir tvo leiki. Stelp-
urnar spila nú í fyrramálið
gegn Úsbekistan í loka-
leik sínum í mót-
inu. leikurinn
hefst klukkan
08.00. Von-
andi ná
stelpurnar
að sýna sinn
besta leik í
lokaleiknum
en Úsbekistan er
án stiga í þessu
æfingamóti.
Nýjast
Enska úrvalsdeildin
Chelsea - Man.Utd 4-0
1-0 Pedro (1.), 2-0 Gary Cahill (21.), 3-0 Eden
Hazard (62.), 4-0 N’Golo Kante (70.).
Man. City - Southampton 1-1
0-1 Nathan Redmond (27.), 1-1 Kelechi
Iheanacho (55.).
Liverpool - WBA 2-1
1-0 Sadio Mane (20.), 2-0 Philippe Coutinho
(35.), 2-1 Gareth McAuley (81.).
West Ham - Sunderland 1-0
1-0 Winston Reid (90.+4).
Leicester - C.Palace 3-1
1-0 Ahmed Musa (42.), 2-0 Shinji Okazaki
(63.), 3-0 Christian Fuchs (80.), 3-1 Yohan
Cabaye (85.).
Hull City - Stoke City 0-2
0-1 Xherdan Shaqiri (26.), 0-2 Xherdan
Shaqiri (50.).
Burnley - Everton 2-1
1-0 Sam Vokes (39.), 1-1 Yannick Bolasie
(58.), 2-1 Scott Arfield (90.).
Swansea - Watord 0-0
Arsenal - Middlesb. 0-0
Bournem. - Tottenham 0-0
Efstu lið
Man. City 20
Arsenal 20
Liverpool 20
Chelsea 19
Tottenham 19
Everton 15
Neðstu lið
West Ham 10
Stoke City 9
Middlesbr. 7
Hull City 7
Swansea 5
Sunderland 2
2 4 . o K t ó b E r 2 0 1 6 M Á N U D A G U r14 S p o r t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
Chelsea niðurlægði Man. United á Stamford Bridge í gær
HANDboLti Tímabilið hefur ekki
farið nógu vel af stað hjá liði Arons
Pálmarssonar, Veszprém, í Meist-
aradeildinni. liðið tapaði fyrir
Barcelona, 26-23, um helgina og er í
fjórða sæti A-riðils með sex stig eftir
fimm leiki.
„ef ég tala fyrir sjálfan mig þá
er ég ekki sáttur. Mér finnst þetta
lélegt miðað við liðið sem við erum
með,“ segir Aron en hann var þá
nýkominn heim til ungverjalands
eftir ferðalagið til Barcelona.
Hugsað um Meistaradeildina
Aron segist hafa spilað svona helm-
ing leikja Veszprém í deildinni
heima en í ljósi yfirburða Veszprém
í ungversku deildinni þá getur liðið
hvílt lykilmenn eins og Aron er
félaginu nánast hentar.
„Það er bara verið að hugsa um
Meistaradeildina. Ég spila alltaf
gegn Szeged og svo eru kannski tvö
önnur lið sem við erum aldrei að
fara að tapa fyrir en eru samt allt í
lagi. Það þarf aðeins að hafa fyrir
þeim leikjum. Þá spila ég kannski í
svona hálftíma. Það er helvíti fínt,“
segir Aron sem var oft plagaður
af meiðslum í Þýskalandi. Þá var
enginn tími til að jafna sig í sterkri
deild.
„Skrokkurinn á mér er mjög
góður. Ég sleit liðband í litla putta
á skothendinni í upphafi vetrar.
Þá var ég frá í fjórar vikur en missti
enga leiki í Meistaradeildinni. Nú
finn ég ekkert fyrir hnjánum sem
voru oft að plaga mig áður. Ég var
eiginlega aldrei 100 prósent í Þýska-
landi. Ég hef farið í tvær hnéaðgerð-
ir og maður fékk aldrei tíma til að
jafna sig almennilega og álagið var
rosalega mikið. Ég var svona 90 pró-
sent heill þegar best lét.“
Stundum bannað að æfa
Þó svo álagið hafi verið mikið í
Þýskalandi þá er Aron feginn að
hafa farið í gegnum þann harða
skóla áður en hann fór til ungverja-
lands þar sem honum er oft nánast
pakkað inn í bómull.
„Mér hefur stundum verið bann-
að að æfa hérna. Það kemur alltaf
íslendingurinn upp í manni að
maður sé aldrei þreyttur og svona.
Ég hef mætt á æfingu og mér hefur
verið skipað að fara bara á hjólið
þegar ég ætlaði að æfa. Þá hef ég
viljað lyfta en ekki mátt lyfta of
mikið. Það er smá munur að fara í
þetta eftir að hafa verið hjá Alfreð.
Ég er mjög ánægður að hafa byrjað
hjá Alfreð því annars myndi ég bara
æfa tvisvar-þrisvar í viku. Það er gott
að hafa tekið skólann hjá Alfreð því
allt annað er svo bara rólegheit,“
segir Aron léttur og hlær.
Þegar Aron spilaði við kiel í
Meistaradeildinni á dögunum kom
upp úr kafinu að hann væri búinn
að fá samningstilboð frá kiel.
„Framkvæmdastjóri kiel átti þá
frábæru hugmynd að henda þess-
um upplýsingum í staðarblaðið í
kiel degi fyrir leik. Sagði að ég væri
kominn með tilboð frá þeim og nú
væri þetta bara í mínum höndum.
Það var fallega gert af honum,“ segir
Aron og honum var augljóslega ekki
skemmt.
„Það var búin að vera mikil leynd
yfir þessu. Ég er því augljóslega með
tilboð frá þeim. Ég hef samt ekki
skrifað undir neitt eða lofað neinu.
Það er heldur ekki kominn neinn
tími á þennan samning. Auðvitað
er samt ánægjulegt að þeir vilji fá
mig aftur.“
Ræður þessu ekki sjálfur
Málið er heldur ekki svo einfalt að
Aron geti farið aftur til kiel næsta
sumar. Hann er með samning við
Veszprém fram á sumar 2018 og
kiel yrði því að kaupa hann. Þess
utan vill Veszprém alls ekki missa
leikmanninn frábæra.
„eftir leikinn gegn kiel fer ég í
viðtal við staðarblaðið og segi að ef
eitthvert lið vilji kaupa mig næsta
sumar þá sé það ekki undir mér
komið hvort ég fari. Það þurfi að
fara í gegnum félagið. Þá var skrifað
að ef eitthvert lið vildi kaupa mig
þá væri ég klár. Alveg frábært hjá
þeim. Svo vill Veszprém framlengja
við mig og þess utan eru óformlegar
fyrirspurnir frá öðrum félögum.
Auðvitað er ég í frábærri stöðu og
líður vel með það.“
eins og Aron segir þá verður
Veszprém að selja hann ef hann á
að fara næsta sumar.
„Ég er ekki búinn að ákveða
mig og ég mun í seinasta lagi taka
ákvörðun næsta sumar um hvað ég
vil gera. Sú ákvörðun verður ekki
auðveld. Mér líður vel í ungverja-
landi og hér er allt til alls. eins og
staðan er í dag er ég mjög sáttur.“
henry@frettabladid.is
Mun ákveða mig næsta sumar
Aron Pálmarsson er eftirsóttur sem fyrr. Hans gamla félag, Kiel, vill fá hann aftur og núverandi lið hans,
Veszprém, vill framlengja. Svo hefur heyrst af áhuga annarra liða líka. Aron mun ekki ana að ákvörðun.
Aron er hér í leiknum gegn Barcelona um helgina. fRéTTABLAðið/EPA
Á flugi Leikmenn Chelsea fagna hér fjórða marki sínu í gær. Þetta var stærsta tap stjóra Man. Utd, Jose Mourinho, í ensku úrvalsdeildinni og hans
næststærsta tap á ferlinum. Stærsta tapið var 5-0 fyrir Barcelona árið 2010. Fréttablaðið/getty
sport
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
9
-2
D
E
0
1
B
0
9
-2
C
A
4
1
B
0
9
-2
B
6
8
1
B
0
9
-2
A
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K