Fréttablaðið - 24.10.2016, Síða 16
„Ég á átta dúkkur. Þær heita
Klara, Lotta, Barbí og Ken. Svo
eru Elsa og Anna og líka Millý
og Ásthildur Hrönn. Þær eiga
fullt af fötum. Ég leik mér oft
með húsið, mér finnst það mjög
flott,“ segir Ella Theodora Kaz
ooba Devos, fimm ára, sem datt
heldur betur í lukkupottinn þegar
þriggja hæða Barbíhús mömmu
hennar kom upp úr kassa í
geymslu ömmu og afa.
Húsið fékk mamma hennar,
Harpa Heimisdóttir arkitekt, í
jólagjöf 1983 eða 4 og því fylgdu
húsgögn og forláta lyfta sem ber
íbúa hússins milli hæða. Innan
stokks er allt í anda áttunda og ní
unda áratugarins og gulur og app
elsínugulur litur ráðandi.
„Mér finnst dálítið skemmti
legt að ekki einn einasti hlutur
var bleikur,“ segir Harpa og viður
kennir að hafa fengið nett nostalg
íukast þegar hún opnaði kassann.
„Mig grunaði ekki að öll hús
gögnin, dúkkurnar og fötin væru
enn í kassanum og meira að segja
Barbíbíllinn og mótorhjólið voru
þar líka. Bílinn og mótor hjólið
fékk ég aðeins seinna en húsið og
það sést greinilega að í millitíð
inni breyttist tískan hjá Barbí, þá
var allt orðið bleikt. Ég gat ekki
einu sinni beðið eftir að koma
með húsið heim heldur setti það
strax saman á stofugólfinu hjá
foreldrum mínum. Ég var eigin
lega spenntari en mér hefði getað
Myndi vilja
búa í húsinu
Í herbergi Ellu Theodoru Kazooba Devos
svífur andi áttunda og níunda áratugarins yfir
vötnum eftir að þriggja hæða Barbíhús
mömmu hennar frá 1983 kom í leitirnar.
Mamma hennar er í nostalgíukasti og sjálf
myndi Ella vilja búa í húsinu.
Ella Theodora Kazooba Devos, fimm ára, datt heldur betur í lukkupottinn þegar
þriggja hæða Barbíhús mömmu hennar, Hörpu Heimisdóttur, kom upp úr kassa í
geymslu ömmu og afa. mynD/Gva
„Ég myndi alveg vilja búa í þessu húsi, sérstaklega ef það væri alveg eins lyfta í því
sem ég mætti eiga sjálf,“ segir Ella.
Fötin, húsgögnin og veggfóðrið eru í
takt við tíðarandann sem var.
Ef Ken og Barbí gætu nú talað.
„mér finnst dásamlegt að fylgjast með
dóttur minni leika með gamla dótið
mitt,“ segir Harpa og viðurkennir nett
nostalgíukast.
dottið í hug. Mér finnst dásam
legt að fylgjast með dóttur minni
leika með gamla dótið mitt,“ segir
Harpa, enda er Ella í skýjunum
með húsið þótt það beri merki um
liðna tísku og tíðaranda.
„Mér finnst húsgögnin flott og
veggfóðrið bara ágætt,“ segir Ella.
„Það má líka alveg vera annað dót
í húsinu og ég hef sett smá Legó
og smá kubba í það. Það væri líka
gaman að lita eitthvað á blað og
líma það upp á toppinn svo það
verði fallegt. Svo er líka gaman að
leika með lyftuna. Ég myndi alveg
vilja búa í þessu húsi, sérstaklega
ef það væri alveg eins lyfta í því
sem ég mætti eiga sjálf,“ segir Ella.
Sunnudjass alla sunnudaga kl 20.00
Heimsklassa Djass með frábærum tónlistarmönnum í bruggsalnum okkar.
Allir velkomnir - enginn aðgangseyrir
Hraðréttur dagsins í hádeginu alla
virka daga 1.690.- kr
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
2 4 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M Á N U D A G U r2 F ó l k ∙ k y N N i N G A r b l A ð ∙ H e i M i l i
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
9
-2
8
F
0
1
B
0
9
-2
7
B
4
1
B
0
9
-2
6
7
8
1
B
0
9
-2
5
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K