Fréttablaðið - 24.10.2016, Page 18
Útgefandi
nýr Landspítali ohf. | Skúlagata 21 | s. 551 6010 | magnus@nlsh.is
Ábyrgðarmaður og ritStjóri
magnús Heimisson
„Uppbyggingin við Hringbraut
er auðvitað eitt af stóru málunum
sem þessi ríkisstjórn hefur tekist
á við og það hefur verið stígandi
í verkefninu og ég er afar stoltur
og ánægður með þann stað sem við
erum á í dag,“ segir Kristján Þór
Júlíusson heilbrigðisráðherra.
Umræðan um uppbygginguna
við Hringbraut hefur tilhneig-
ingu til þess að snúast meira um
staðsetningu nýs spítala en þá
uppbyggingu sem þar á sér stað.
Kristján segist fyrst og fremst
horfa á verkefnið út frá stöðunni
eins og hún sé núna og nefnir nú-
verandi húsakost, gangainnlagnir
og vandræðin sem því fylgja í því
samhengi.
Þó að fólk hafi margar og mis-
munandi skoðanir á því hvar
sé best að byggja nýtt sjúkra-
hús segir Kristján að það hljóti
að vera hægt að sameinast um
að byggja upp þjóðarsjúkrahús-
ið sem við þörfnumst og viljum
sjá. „Með sterka innviði, fagfólk í
fremstu röð, vel tækjum búið og í
húsnæði sem samræmist kröfum
samtímans. Þetta er verkefnið og
það skiptir miklu að því verði hald-
ið áfram.“
Kristján bendir á í því samhengi
að forsendan fyrir því að hægt sé
að setja aukið fé í málaflokkinn sé
sterk staða ríkissjóðs. „Það er mik-
ilvægt að hafa það í huga að for-
sendan fyrir þessu öllu saman er
sterk staða ríkissjóðs og við höfum
þegar tryggt fjármagn í næsta
áfanga uppbyggingarinnar. Mér
finnst fólk oft tala um heilbrigðis-
málin eins og hér hafi ekkert gerst
síðustu þrjú árin. Því fer fjarri og
framkvæmdirnar við Hringbraut
eru ágætis vitnisburður um það,“
segir ráðherrann.
Hann sem heilbrigðisráðherra
hafi lagt mikla áherslu á að hefja
verkið, það hafi gengið eftir og
menn séu á fínu róli. „Við höfum
margar fréttir og ótal dæmi um
plássleysið á spítalanum. Það er
auðvitað eitthvað sem við eigum
ekki og getum ekki sætt okkur við,
þess vegna er brýnt að við höldum
áfram á sömu braut og bætum að-
stöðu sjúklinga og starfsfólks á
þjóðarsjúkrahúsinu.“
Spurður frekar út í umræðuna
um staðsetningu spítalans segir
Kristján málið nokkuð einfalt í
sínum huga. Alþingi hafi samþykkt
að hefja uppbyggingu við Hring-
braut og hann sem ráðherra heil-
Hér má sjá þá tímaáætlun sem
búið er að setja niður varðandi
hönnun og framkvæmdir.
Þar sést að framkvæmdum við
sjúkrahótelið mun ljúka á næsta
ári. Byrjað verður á framkvæmd-
um við meðferðarkjarnann árið
2018 og er áætlað að þeim ljúki
2023. Rannsóknarhúsið á einn-
ig að vera fullbúið árið 2023 og
reiknað er með að framkvæmd-
ir standi yfir í fjögur ár. Byrj-
að verður á tækni-, skrifstofu- og
bílastæðahúsi árið 2019 og verður
það tilbúið þremur árum síðar.
Hús heilbrigðisvísindasviðs HÍ
mun einnig rísa á árunum 2019 til
2022.
Verkáætlun Hringbrautarverkefnisins
'10 '17'13 '20'11 '18'14 '21'12 '19'15 '22'16 '23
Skipulagsgerð*
Forhönnun bygginga,
lóðar, gatna og veitna*
Sjúkrahótel – Fullnaðarhönnun
Sjúkrahótel – Framkvæmd
Meðferðarkjarni – Fullnaðarhönnun
Meðferðarkjarni – Framkvæmd
Rannsóknarhús – Fullnaðarhönnun
Rannsóknarhús – Framkvæmd
Tækni-, skrifstofu- og
bílastæðahús – Fullnaðarhönnun
Tækni-, skrifstofu- og
bílastæðahús – Framkvæmd
Hús heilbrigðisvísindasviðs HÍ
– Fullnaðarhönnun
Hús heilbrigðisvísindasviðs HÍ
– Framkvæmd
* Svæðaskipulag höfuðborgarsvæðis, aðalskipulag Reykjavíkur, deiliskipulag Hringbrautarlóðar
Hringbrautarverkefnið er stórt
og viðamikið verkefni sem mun
gerbreyta allri aðstöðu fyrir
sjúklinga og starfsmenn þegar
verkinu líkur. Verkefnið geng-
ur vel. bygging nýs og glæsilegs
sjúkrahótels er í fullum gangi og
verið að hanna nýtt sjúkrahús,
meðferðarkjarnann og búið er að
heimila forval á fullnaðarhönnun
nýs rannsóknarhúss.
brigðismála hafi fylgt því eftir.
„Ég hef litið svo á að það sé mitt
verkefni að tryggja uppbygging-
una við Hringbraut og fylgja vilja
Alþingis. Hvort það sé hentugt að
byggja annað sjúkrahús á öðrum
stað einhvern tíma í framtíðinni er
bara allt önnur umræða sem sjálf-
sagt er að taka. Það má hins vegar
ekki trufla þá mikilvægu uppbygg-
ingu sem nú er í fullum gangi við
Hringbraut.“
Eins og fyrr segir gera áætlanir
ríkisstjórnarinnar ráð fyrir því að
uppbyggingu verði haldið áfram af
fullum krafti við Hringbraut.
„Fyrir þessum ákvörðunum
öllum liggja margvísleg rök. Hag-
kvæmni vegur þungt, því talið er
að það yrði dýrara að byggja nýtt
sjúkrahús frá grunni á öðrum
stað en að byggja við Hringbraut
og nýta áfram 56.000 fermetra af
eldri byggingum. Nálægðin við
Háskóla Íslands og þekkingar-
samfélagið í Vatnsmýrinni skipt-
ir einnig miklu máli vegna rann-
sókna og kennslu þar sem vel á
annað hundrað starfsmanna spít-
alans eru jafnframt starfsmenn
háskólans.“
Flestir þekki þessa umræðu og
eðlilegt sé að taka hana. „Þessi
umræða hefur staðið yfir meira og
minna í tvo áratugi og það hefur
dregist úr hömlu að spítalaþjónust-
an á Íslandi sé byggð upp í takt við
fjölgun þjóðarinnar, aukna þekk-
ingu starfsfólks og þarfir sjúkl-
inga. Aðstaðan sem í boði er á
þjóðarsjúkrahúsinu í dag stenst
einfaldlega ekki þarfir og þær
nútímakröfur sem við sem þjóð
eigum að gera.“
Kristján Þór júlíusson
↣
yfirlitsmynd yfir nýjar og núverandi byggingar Landspítalans við Hringbraut.
HringbrautarVerKefnið
24. október 20162
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
9
-3
C
B
0
1
B
0
9
-3
B
7
4
1
B
0
9
-3
A
3
8
1
B
0
9
-3
8
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K