Fréttablaðið - 24.10.2016, Qupperneq 40
Fulltrúar frá sjúklingasamtök-
um tóku þátt í athöfninni með því
að opna götuna formlega með ráð-
herra. Að því loknu gengu fulltrú-
ar sjúklingasamtaka með ráðherra
eftir nýju götunni sem liggur frá
Barónsstíg að K-byggingu Land-
spítala samhliða nýju sjúkrahóteli
sem tekið verður í notkun 2017.
Bygging sjúkrahótelsins geng-
ur vel og er hluti af fyrsta áfanga
uppbyggingar Nýs Landspítala við
Hringbraut. Í sjúkrahótelinu verða
75 herbergi og með tilkomu þess
breytist aðstaða fyrir sjúklinga og
aðstandendur mikið til batnaðar.
„Það var ánægjulegt að taka þátt
í þessum áfanga uppbyggingar í
Hringbrautarverkefninu. Verkleg-
ar framkvæmdir við sjúkrahótelið
ganga vel og opnun nýju götunnar
er mikilvægur áfangi í heildarupp-
byggingu nýs þjóðarsjúkrahúss,“
sagði Kristján Þór Júlíusson heil-
brigðisráðherra við tilefnið.
Gunnar Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri NLSH, sagði ástæðu
til að gleðjast. „Það var ánægjulegt
að fá fulltrúa frá sjúklingasam-
tökunum til liðs við okkur í dag
við opnun götunnar. Uppbygging
Hringbrautarverkefnisins gengur
vel, nýtt sjúkrahótel rís senn sem
mun gerbreyta aðstöðu sjúklinga
og aðstandenda þeirra. Við horfum
björtum augum á framtíðina og á
þá uppbyggingu sem hér á sér stað.
Að þessu verki koma fjölmargir
aðilar og verkefnið gengur vel.“
Þeir fulltrúar frá sjúklinga-
samtökum sem tóku þátt í athöfn-
inni voru, Ólína Ólafsdóttir frá
MS félaginu, Emil Thoroddsen
frá Gigtarfélagi Íslands, Guðjón
Sigurðsson frá MND félaginu,
Sveinn Guðmundsson frá Hjarta-
heill, Bergþór Böðvarsson frá
Geðhjálp, Guðbjörg Kristín Ei-
ríksdóttir frá Öryrkjabandalagi
Íslands, Bryndís Snæbjörnsdótt-
ir frá Landssamtökunum Þroska-
hjálp og Sigrún Gunnarsdóttir frá
Krabbameinsfélagi Íslands.
Opnun nýrrar götu
Heilbrigðisráðherra, Kristján Þór Júlíusson, opnaði nýverið, með fulltrúum
sjúklingasamtaka, nýja götu sem er fyrsti áfangi í uppbyggingu í
Hringbrautarverkefninu við Landspítala Hringbraut.
„Hver og einn verkefnastjóri
hefur sitt sérsvið og mikil áhersla
er lögð á sérhæfingu hvers og eins
innan verkefnisins,“ segir Gunn-
ar Svavarsson, verkfræðing-
ur og framkvæmdastjóri NLSH.
Hann segir ávallt gætt að því að
allir verkefnastjórar séu upplýst-
ir um heildarverkefnið og ein-
staka þætti þess þannig að hver
og einn geti verið traust bakland
fyrir vinnufélaga sína. „Þannig
nýtist einnig sú sérhæfing sem
hver starfsmaður býr yfir hópn-
um í heild,“ segir Gunnar. Verk-
efnastjórar skrifstofunnar vinna í
samvinnu við innlenda og erlenda
ráðgjafa að hönnun og fá einnig
góða innsýn notenda, en um er að
ræða notendastudda hönnun.
Gunnar hefur verið í forsvari
Hringbrautarverkefnisins frá
haustinu 2009. Hans fyrri störf
hafa einkum verið á sviði fyrir-
tækja- og verkefnisstjórnunar.
Hann stofnaði Aðalskoðun hf.
árið 1994 og starfaði þar til 2006,
en hann var einnig virkur í starfi
sveitarstjórna í á annan áratug og
varð svo þingmaður og formaður
fjárlaganefndar á árunum 2007
til 2009. Gunnar segir að „um sé
að ræða notendastudda hönnun
og settir hafa verið upp fjölmarg-
ir samráðshópar þar sem á annað
hundrað aðilar taka þátt. Sam-
ráðshópar taka mið af sérhæf-
ingu og gert er ráð fyrir að hóp-
arnir starfi óslitið á meðan hönn-
unar- og verktími stendur yfir.
Umgjörð er fastmótuð eins og al-
mennt í opin berri stjórnsýslu t.d.
eru reglulegir fundartímar líkt og
hjá nefndum sveitarfélaga.“
Góður vinnuandi
Gunnar segir mikla áherslu lagða
á góðan vinnuanda og traust
meðal starfsmanna. „Það er lyk-
illinn að góðu dagsverki,“ segir
hann. „Gísli Georgsson stýrir
samráði notenda og hönnuða og
tryggir nauðsynlegt flæði upp-
lýsinga þannig að nýbyggingar
í Hringbrautarverkefninu upp-
fylli þarfir notenda en búi jafn-
framt yfir sveigjanleika til að
geta uppfyllt aðrar þarfir í fram-
tíðinni,“ upplýsir Gunnar, en verk-
efni Gísla snúa einkum að tækni-
væddri klínískri starfsemi í bygg-
ingum. „Gísli hefur starfað lengi
á sviði heilbrigðistækni á Land-
spítala og einnig erlendis í spítala-
verkefnum og býr því að mikilli
reynslu á því sviði.“
Sjúkrahótel rís
Gunnar segir að Hringbrautar-
verkefnið gangi vel. Til dæmis sé
bygging nýs og glæsilegs sjúkra-
hótels í fullum gangi. „Erlendur
Árni Hjálmarsson hefur yfirum-
sjón með byggingu sjúkrahótels-
ins í góðri samvinnu við Fram-
kvæmdasýslu ríkisins. Samhliða
því er Erlendur Árni verkefna-
stjóri yfir hönnun og byggingu
bílastæða-, tækni- og skrifstofu-
húss á lóð Landspítalans. Hann
sinnir einnig verkefnastjórn
yfir verkefni sem snýr að sam-
ræmingu á hönnun og útfærslu á
götum, veitum og lóð og að skil-
greina aksturs- og gönguleiðir á
svæðinu á verktímanum,“ segir
Gunnar.
Hlustað á óskir notenda
Þarfir og óskir notenda eru
mikil vægar í hönnunarferlinu
að sögn Gunnars. Ein þeirra sem
sér til þess að komið sé til móts
við þarfir notenda er Ásdís Ing-
þórsdóttir arkitekt, sem hefur
komið að Hringbrautarverkefn-
inu frá 2004. „Málaflokkar Ás-
dísar snúa aðallega að bráðamót-
töku, gjörgæslu og skurðstofum
í meðferðarkjarna sem og þjón-
ustubyggingum á Hringbrautar-
lóðinni. Hún hefur einnig séð um
verkefnahandbók NLSH sem og
sannanir vegna BREEAM-vott-
unar bygginga.“ Ásdís er vottað-
ur verkefnastjóri og sinnir fjöl-
mörgum stærri og smærri verk-
efnum á vegum NLSH ohf.
Samræming er nauðsynleg
„Mikil vinna liggur að baki því
að samræma öll þau stóru verk-
efni sem falla undir Hringbraut-
arverkefnið. Þar er Ásbjörn
Jónsson, fyrrverandi leikmaður
Fram, ÍR og Aftureldingar, betri
en enginn,“ segir Gunnar glett-
inn en Ásbjörn ber m.a. ábyrgð á
heildarverkáætlun Hringbraut-
arverkefnisins, það er samræm-
ingu allra þessara stóru verka
meðal annars með tilliti til vinnu-
hagræðis, tíma og rekstrarlegra
þarfa á meðan á framkvæmd-
um stendur. „Hann stýrir einn-
ig samráði milli notenda og ráð-
gjafa þegar kemur að hönnun
rannsóknarhúss annars vegar
og legudeilda í meðferðarkjarna
hins vegar.“
Mikilvæg upplýsingagjöf
Samskipti og upplýsingagjöf
eru mikilvæg en samskipta-
stjóri NLSH er Magnús Heimis-
son. „Hringbrautarverkefnið er
mjög viðamikið verkefni þar sem
fjölmargir aðilar koma að skipu-
lagningu. Magnús samræmir og
samhæfir upplýsingar og gerir
þær aðgengilegar almenningi og
öðrum hópum. Hann sinnir innri
og ytri samskiptum NLSH, sam-
skiptum við fjölmiðla, fagaðila
og aðra hópa, umsjón heimasíðu
og undirbúning viðburða,“ lýsir
Gunnar.
Að lokum nefnir Gunnar aðal-
samstarfsaðila NLSH ohf. sem
eru Framkvæmdasýsla ríkisins,
Landspítali, Háskóli Íslands og
auk þess að sjálfsögðu velferðar-
ráðuneytið og fjármála- og efna-
hagsráðuneytið.
Fólkið á bak
við Nýja
Landspítalann
Í Hringbrautarverkefninu, hjá opinbera hlutafélaginu
Nýjum Landspítala ohf. (NLSH), starfar samhentur
hópur með mikla þekkingu og reynslu úr hönnunar- og
framkvæmdaverkefnum á byggingarsviði, en einnig í
verkefnum á heilbrigðistæknisviði. Samráðsþátturinn
er mjög mikilvægur í verkefninu og hundruð aðila eru í
samstarfi við NLSH ohf.
Árið 2010 setti Alþingi lög um bygg-
ingu nýs Landspítala við Hring-
braut. Lögin nr. 64/2010 kveða á um
að opinbert hlutafélag, Nýr Land-
spítali ohf., sjái um undirbúning og
framkvæmd verkefnisins.
Stjórn NLSH ohf. er skipuð
þremur aðilum og hana skipa Er-
ling Ásgeirsson formaður, Dagný
Brynjólfsdóttir og Hafsteinn S.
Hafsteinsson. Stjórnarformaður
NLSH, Erling Ásgeirsson, hefur
víðtæka reynslu úr atvinnulífinu
og af sveitarstjórnarmálum. Erling
var formaður bæjarráðs Garða-
bæjar samfellt frá 1997-2014. Er-
ling segir að „það sé mikil ábyrgð
að takast á við þetta mikla verk-
efni sem Hringbrautarverkefnið
er. Að verkefninu koma hundruð
aðila og þegar nýr spítali er risinn
við Hringbraut mun það gerbreyta
allri aðstöðu fyrir sjúklinga og
starfsmenn“.
„Þörfin á nýjum spítala er brýn
og núverandi aðstaða er alls ekki
boðleg. Það er mikil áskorun og um
leið heiður að fá að leggja hönd á
plóg í þessu mikla þjóðþrifamáli ís-
lenskrar heilbrigðisþjónustu,“ segir
Erling Ásgeirsson, stjórnarformað-
ur NLSH ohf.
Stjórn NLSH ohf.
Mikil vinna liggur
að baki því að
samræma öll þau stóru
verkefni sem falla undir
Hringbrautarverkefnið.
Gunnar Svavarsson
Opnun nýju
götunnar er
mikilvægur áfangi í
heildaruppbyggingu nýs
þjóðarsjúkrahúss.
Kristján Þór Júlíusson
Frá opnun nýju götunnar. Fulltrúar frá sjúklingasamtökum tóku þátt í athöfninni.
Starfsmenn NLSH ohf. Frá vinstri: Ásdís Ingþórsdóttir, Magnús Heimisson, Gísli Georgsson, Gunnar Svavarsson, Erlendur
Árni Hjálmarsson og Ásbjörn Jónsson. MyNd/EyÞór
Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH (efst t.v.) ásamt stjórn félagsins en
hana skipa Hafsteinn S. Hafsteinsson, dagný Brynjólfsdóttir og Erling Ásgeirsson,
formaður NLSH.
HrINGBrautarvErKEFNIð
24. október 201612
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
9
-3
7
C
0
1
B
0
9
-3
6
8
4
1
B
0
9
-3
5
4
8
1
B
0
9
-3
4
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K