Fréttablaðið - 24.10.2016, Page 52
Trendið
hettupeysan
Masha Ma
Hettupeysan er komin
aftur í tísku og er afar
áberandi á tískupöllunum
þessa stundina. Peysurnar
eru í öllum sniðum, bæði
þröngar, víðar, síðar og
stuttar. Þær skarta öllum
litum regnbogans og eru
virkilega frjálslegar. Þar sem
íþróttastíllinn kemur sterk-
ur inn með haustinu henta
peysurnar afar vel. Það ætti
ekki að vera erfitt að finna
gamla, góða hettupeysu í
fataskápnum fyrir veturinn.
Hettupeysur eru bæði
þægilegar og henta vel fyrir
íslenskan vetur.
Myndir/Getty
rag & bone
Zalando
Fashion
Healthcare
Foundation
tommy
Hilfiger
„Verkefnið okkar Halldóru gengur
eiginlega út á hálfgerðan leik að
garni og litum. Halldóra Sigríður
prjónar mikið og er afskaplega góð
í því. Þessar tilteknu peysur eru
algjörlega hennar hugmynd. Þær
eru litríkar og glaðar og í þeim er
mikill leikur. Börn elska að vera í
peysunum hennar Halldóru Sig-
ríðar,“ segir Erla Dís Arnardóttir,
textílkennari og textílhönnuður,
en þær Halldóra hafa unnið saman
að litríkum peysum sem hafa vakið
mikla athygli.
List án landamæra er listahátíð
með áherslu á fjölbreytileika mann-
lífsins. Á hátíðinni vinnur listafólk
saman að alls konar list með frá-
bærri útkomu. Það leiðir til auð-
ugra samfélags og aukins skilnings
manna á milli.
„Við Halldóra Sigríður erum
miklar vinkonur og jafnframt mág-
konur. Við höfum báðar mikinn
áhuga á prjóni og fannst því tilvalið
að vinna að einhverju saman. Sam-
starfið gengur gríðarlega vel. Við
hittumst ýmist á vinnustofunni
minni eða heima hjá Halldóru og
ræðum málin, pælum í litum og
öðrum útfærsluatriðum,“ segir Erla,
ánægð með samstarfið.
Halldóra Sigríður Bjarnadóttir
starfar hjá Ás vinnustofu, ásamt
því að prjóna tátiljur og fleira fyrir
Handprjónasamband Íslands.
Saman vinna þær að sýningu sem
fram fer helgina 26.-27. nóvember
í Hannesarholti.
„Sýningin er hluti af listahátíðinni
List án landamæra sem snýst um að
fagna fjölbreytileika mannlífsins,“
segir Halldóra spennt.
En hvaðan kom hugmyndin af
peysunum?
„Ég prjónaði eina svona peysu á
dóttur hennar Erlu og hún var svo
hrifin af peysunni að ég stakk upp á
því að gera meira úr því,“ segir Hall-
dóra.
„Við dóttir mín vorum virkilega
hrifnar af peysunni. Einnig þótti
mér einstakt auga Halldóru Sigríð-
ar fyrir litum og litasamsetningum,
sem kemur skýrt fram í peysunni,“
bætir Erla við.
Peysurnar munu fara í sölu eftir
sýninguna, þar sem hluti af ágóð-
anum rennur til einhverfusam-
takanna. Halldóra Sigríður er á ein-
hverfurófi með asperger og fannst
þeim því tilvalið að einhverfusam-
tökin yrðu fyrir valinu.
„Við erum alveg virkilega spennt-
ar og þakklátar fyrir þetta skemmti-
lega verkefni og vonumst að sjálf-
sögðu eftir að sjá sem flestar,“ segja
þær. gudrunjona@frettabladid.is
Börnin elska peysurnar
Þær Halldóra Sigríður Bjarnadóttir og Erla Dís Arnardóttir vinna að verkefni á listahá-
tíðinni List án landamæra. Sýningin þeirra fer fram í Hannesarholti helgina 26.-27. nóvember.
Peysurnar eru mjög litríkar og börn elska að vera í þeim. Mynd/HaFdís
Peysurnar verða til sölu eftir sýninguna. Mynd/HaFdísHalldóra sigríður og erla dís njóta þess að prjóna saman. Mynd/erla
2 4 . o k t ó b e r 2 0 1 6 M Á N U D A G U r24 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð
Lífið
2
4
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
9
-4
1
A
0
1
B
0
9
-4
0
6
4
1
B
0
9
-3
F
2
8
1
B
0
9
-3
D
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
2
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K