Fréttablaðið - 23.07.2016, Side 64

Fréttablaðið - 23.07.2016, Side 64
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Pawels Bartoszek Bakþankar Í vikunni gengu fulltrúar skattstjóra ásamt lögreglu milli húsa og hræddu túrista. Já, því þrátt fyrir að ný lög heimili fólki að leigja hús­ næði sitt í allt að 90 daga á ári án sérstakra leyfa þá taka þau lög ekki gildi fyrr en eftir áramót. Lögreglan tilkynnti að samskonar rassía myndi eiga sér stað í næstu viku. Aukið frelsi virðist alltaf þurfa aðlögunartíma. Segjum að Alþingi samþykki einhvern tímann að hætta að refsa fólki fyrir að reykja gras. Lögreglan mun biðja um frest. „Þetta er svo stórt mál. Það eru svo margar reglur sem þarfnast breytinga, svo margir verkferlar sem þarf að endurskoða.“ Ef Alþingi fellst á þetta mun þá lögreglan, fram á seinustu stundu, ryðjast inn í vel valda kjallara Þingholtanna og handtaka freðið fólk þar sem það horfir á Áramóta­ skaupið? Verður settur sérstakur mannskapur í það að eyðileggja atvinnu­ og ferðamöguleika, nokkurra einstaklinga til viðbótar, rétt áður en klukkan slær tólf á miðnætti? Nú er ekki sagt að lögreglan eigi ekki að bregðast við ábend­ ingum um ónæði eða skattsvik. En ákvörðun um að skera upp sérstaka herör gegn útleigu heima­ gistingar rétt áður en hún verður lögleg segir okkur að sá frestur sem Alþingi gefur stofnunum til að laga sig að breyttum lögum er of rúmur. Það hefði verið í lagi að gefa sýslumanni einn mánuð til að und­ irbúa nýtt eyðublað um skráningu heimagistingar. En óþarfi er að gefa öðrum yfirvöldum hálft ár til að veifa hnefa sínum framan í fólk með handahófskenndum hætti í því skyni að sporna við athæfi sem Alþingi er búið að samþykkja að eigi að vera löglegt. Valdið notar tímann Dr. Eyþór Kristjánsson, sjúkraþjálfari Sérfræðingur í stoðkerfinu. Skyndileg bak - og háls- vandamál S. 822-1575 Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka 2 3 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :0 9 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 1 0 -C 6 9 4 1 A 1 0 -C 5 5 8 1 A 1 0 -C 4 1 C 1 A 1 0 -C 2 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 6 4 s _ 2 2 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.