Fréttablaðið - 23.07.2016, Side 12
Á morgun verður heldur betur stuð og stemning á Klambratúni þegar barnahátíðin Kátt á Klambra fer fram en sann
kölluð karnivalstemning mun ríkja og
fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir
börn og fullorðna.
„Hugmyndin kviknaði á tónlist
arhátíðinni Secret Solstice í fyrra.
Á sunnudeginum var sól, reggí og
íslenskar hiphophljómsveitir. Ég fór
með litlu stelpuna mína sem var ekki
orðin tveggja ára og hún skemmti
sér konunglega. Ég hitti vini mína
sem voru með börnin sín líka og það
myndaðist einhver svona fjölskyldu
stemning ef ekki hefði verið fyrir
áfengið og sígaretturnar,“ segir Jóna
Elísabet Ottesen sem skipuleggur
hátíðina ásamt Valdísi Helgu Þor
geirsdóttur.
Jóna segir undirbúninginn hafa
gengið stórvel og þær Valdís fundið
fyrir því að stemning væri fyrir hátíð
á borð við þessa, þar sem öll fjöl
skyldan gæti skemmt sér saman og
fundið eitthvað við sitt hæfi.
„Ég fór líka að hugsa um þessi
grænu svæði sem eru í borginni og
hvað það væri oft hægt að nýta þau
betur. Og einmitt þessi hugmynd að
barnaskemmtanir þurfi ekki alltaf að
vera þannig að Íþróttaálfurinn mæti,
hoppukastalar, ís og einhver trylling
ur heldur að það sé líka hátíð þar sem
foreldrarnir geta notið sín saman, hitt
aðra foreldra og börnin þeirra þannig
að þetta snúist ekki bara um að troða
ís í börnin, hoppa aðeins og fara svo
heim,“ segir Jóna en fjölbreytt dagskrá
verður á morgun.
Meðal þess sem í boði verður á
morgun er barnajóga, hiphopdans
sýning, barnadiskó, Frikki Dór og
barnadiskó. Auk skemmtidagskrár
innar verða ýmsar uppákomur á
svæðinu. Til dæmis húllafjör, tattú
bás, tombólumarkaður, sögustund
og listasmiðjur á Kjarvalsstöðum. Þeir
sem verða svangir geta keypt ýmsar
veitingar á svæðinu.
Dagskráin hefst klukkan 14.00 og
stendur til klukkan 17.00. Nánari
upplýsingar má nálgast á Facebook
síðunni Kátt á Klambra.
Allir kátir á Klambratúni
Hugmyndin að Kátt á Klambra kviknaði á Secret Solstice. Fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir alla fjölskylduna.
Það verður alls konar við að vera á Klambratúni í dag. Fréttablaðið/EyÞór
Farðu
í Druslugönguna, þar sem
þolendur kynferðisofbeld
is skila skömminni.
HorFðu
á þáttaröðina
Vinyl, fram
leidda af
Martin Scors
ese á Stöð 2
Maraþon.
Gyða Lóa
Ólafsdóttir
gydaloa@frettabladid.is
Hvað á að gera um helgina?
Hlustaðu
á Retro Stefson – boð
skap þeirra og tón
listina!
Drusluþema
Eg ætla að sjálfsögðu í
Druslugönguna. Svo heim
að kúra því ég græt alltaf
svo mikið í göngunni að
ég er alveg búin á því. Um
kvöldið er ég síðan að halda
karókíkvöld með drusluþema
á Prikinu!
Ásdís maría söngkona
meðgöngujóga
Ótrúlegt en satt mun ég sækja
minn fyrsta meðgöngujógatíma.
Unnusta mín er langt gengin með
okkar fyrsta barn og ekki seinna
vænna að skella sér í einn para
tíma. Restin af helginni fer svo í
hreiðurgerð en nú fara allir dagar í
að undirbúa komu barnsins.
Frosti logason fjölmiðlamaður
Bætir Fyrir synDir
Ég ætla í Druslugönguna. Hvet alla
til að mæta, oft var þörf en nú er
nauðsyn! Kíki líka á hinn æðislega
matarmarkað Krás í Fógetagarðin
um. Helgin er að öðru leyti helguð
því að bæta fyrir syndir; vinna á
villigróðri og ofsprottnu grasi í
garðinum. Skömm að þessu.
Dagur B. eggertsson borgarstjóri
lestu
nýjasta tölublað
Glamour. Tíska,
hönnun og allt
það nýjasta!
2 3 . j ú l í 2 0 1 6 l A U G A R D A G U R12 h e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð
Helgin
2
3
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:0
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
1
0
-E
E
1
4
1
A
1
0
-E
C
D
8
1
A
1
0
-E
B
9
C
1
A
1
0
-E
A
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
2
2
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K