Fréttablaðið - 23.07.2016, Side 54
Mér líst vel á þetta starf, ann-ars hefði ég ekki sagt já við því,“ segir Páll Valsson rit-
höfundur sem sest í stól útgáfustjóra
hjá Bjarti um næstu mánaðamót.
„Bókaforlagið Bjartur var stofnað
af æskuvini mínum Snæbirni Arn-
grímssyni og mér hefur alltaf verið
hlýtt til þess. Þar hafa menn ein-
beitt sér að góðum bókmenntum í
gegnum tíðina og staðið sig vel. Mér
sýnist ég taka við góðu búi.“
Páll var um margra ára skeið
útgáfustjóri Máls og menningar
en hefur frá árinu 2007 verið bók-
menntaráðunautur Forlagsins
meðfram ritstörfum. Hefur honum
kannski þótt erfitt að vera hinum
megin við borðið og keppa við
Bjart?
„Samkeppni í þessum bransa er
nú þannig að allir róa í sömu átt.
Þetta snýst um að gefa út góðar
bækur, bæði íslenskar og þýddar,
og öll samkeppni í því er af hinu
góða. Markaðurinn er vitaskuld
örsmár en metnaðarfull og öflug
forlög hljóta að reyna að stækka
hann, það er markmiðið að sífellt
fleiri lesi góðar bækur.“
Eitt af því sem Páll hyggst beita sér
fyrir hjá Bjarti er að gefa út í auknum
mæli erlendar bækur í íslenskri þýð-
ingu eftir mikilvæga samtímahöf-
unda. „Það er áhyggjuefni að margt
af því sem er skarplegast hugsað og
skrifað í veröldinni kemur ekki út á
íslenskri tungu. Mér finnst að þar
hafi útgefendur aðeins gefið eftir
og þurfi að taka sig á. Margir helstu
höfundar okkar tíma koma ekki
lengur út á íslensku. Ég tel að þetta
komi niður á íslenskunni til lengri
tíma. Tungumálið verður að þróast
áfram og eflast og það gerist í glímu
við það sem best er skrifað á öðrum
tungum á hverjum tíma.“
Páll segir engan skort á þýð-
endum. „Við eigum bæði góða höf-
unda og góða þýðendur, oft eru það
reyndar sömu persónurnar,“ segir
hann, en reiknar ekki með að hafa
mikinn tíma til að þýða sjálfur. „En
ég mun halda áfram að skrifa því
ég er með bækur í pípunum sem ég
þarf að ljúka. Þær koma þó varla út
á þessu ári en vonandi fljótlega, ef
guð lofar.“ gun@frettabladid.is
Markmiðið að fleiri lesi góðar bækur
Páll Valsson, bókmenntafræðingur og rithöfundur, tekur senn við starfi útgáfustjóra bókaforlagsins
Bjarts og lítur til þess verkefnis með bjartsýni í huga. Hann vill efla útgáfu á íslenskum þýðingum.
„Ég mun halda áfram
að skrifa því ég er með
bækur í pípunum sem
ég þarf að ljúka. Þær
koma þó varla út á
þessu ári en vonandi
fljótlega, ef Guð lofar,“
segir Páll.
FrÉttablaðið/Hanna
Það er
áHyggju
efni að margt
af ÞVí sem er
skarPlegast
Hugsað og
skrifað í Veröld-
inni kemur ekki
út á íslenskri
tungu.
ORKA NÁTTÚRUNNAR · Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is
Orka náttúrunnar framleiðir og
selur rafmagn um allt land og sér
höfuðborgarbúum fyrir heitu vatni.
Við nýtum auðlindir af ábyrgð til að
bæta lífsgæðin í nútíð og framtíð.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
9
4
0
2
Enn meira rafmagn
í umferð í sumar
Orka náttúrunnar hefur opnað tvær hraðhleðslustöðvar á Akureyri. Stöðvarnar eru orðnar 13 talsins og
er meðal annars að finna á höfuðborgarsvæðinu, í Borgarnesi, á Selfossi og í Reykjanesbæ. Straumurinn
liggur svo sannarlega í vistvænni ferðamáta og ON er stolt af því að leggja sitt af mörkum í þessu
hljóðláta samgönguátaki.
ON selur hreina og endurnýjanlega íslenska orku til heimila og fyrirtækja um allt land og nú ganga sífellt
fleiri rafbílar fyrir orku náttúrunnar.
Fylltu á rafbílinn með Orku náttúrunnar
2 3 . j ú l í 2 0 1 6 l A U G A R D A G U R30 M e n n i n G ∙ F R É T T A B l A ð i ð
menning
2
3
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:0
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
1
0
-F
3
0
4
1
A
1
0
-F
1
C
8
1
A
1
0
-F
0
8
C
1
A
1
0
-E
F
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
2
2
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K