Fréttablaðið - 23.07.2016, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 23.07.2016, Blaðsíða 54
Mér líst vel á þetta starf, ann-ars hefði ég ekki sagt já við því,“ segir Páll Valsson rit- höfundur sem sest í stól útgáfustjóra hjá  Bjarti um næstu mánaðamót. „Bókaforlagið Bjartur var stofnað af æskuvini mínum Snæbirni Arn- grímssyni og mér hefur alltaf verið hlýtt til þess. Þar hafa menn ein- beitt sér að góðum bókmenntum í gegnum tíðina og staðið sig vel. Mér sýnist ég taka við góðu búi.“ Páll var um margra ára skeið útgáfustjóri Máls og menningar en hefur frá árinu 2007 verið bók- menntaráðunautur Forlagsins meðfram ritstörfum. Hefur honum kannski þótt erfitt að vera hinum megin við borðið og keppa við Bjart? „Samkeppni í þessum bransa er nú þannig að allir róa í sömu átt. Þetta snýst um að gefa út góðar bækur, bæði íslenskar og þýddar, og öll samkeppni í því er af hinu góða. Markaðurinn er vitaskuld örsmár en metnaðarfull og öflug forlög hljóta að reyna að stækka hann, það er markmiðið að sífellt fleiri lesi góðar bækur.“ Eitt af því sem Páll hyggst beita sér fyrir hjá Bjarti er að gefa út í auknum mæli erlendar bækur í íslenskri þýð- ingu eftir mikilvæga samtímahöf- unda. „Það er áhyggjuefni að margt af því sem er skarplegast hugsað og skrifað í veröldinni kemur ekki út á íslenskri tungu. Mér finnst að þar hafi útgefendur aðeins gefið eftir og þurfi að taka sig á. Margir helstu höfundar okkar tíma koma ekki lengur út á íslensku. Ég tel að þetta komi niður á íslenskunni til lengri tíma. Tungumálið verður að þróast áfram og eflast og það gerist í glímu við það sem best er skrifað á öðrum tungum á hverjum tíma.“ Páll segir engan skort á þýð- endum. „Við eigum bæði góða höf- unda og góða þýðendur, oft eru það reyndar sömu persónurnar,“ segir hann, en reiknar ekki með að hafa mikinn tíma til að þýða sjálfur. „En ég mun halda áfram að skrifa því ég er með bækur í pípunum sem ég þarf að ljúka. Þær koma þó varla út á þessu ári en vonandi fljótlega, ef guð lofar.“ gun@frettabladid.is Markmiðið að fleiri lesi góðar bækur Páll Valsson, bókmenntafræðingur og rithöfundur, tekur senn við starfi útgáfustjóra bókaforlagsins Bjarts og lítur til þess verkefnis með bjartsýni í huga. Hann vill efla útgáfu á íslenskum þýðingum. „Ég mun halda áfram að skrifa því ég er með bækur í pípunum sem ég þarf að ljúka. Þær koma þó varla út á þessu ári en vonandi fljótlega, ef Guð lofar,“ segir Páll. FrÉttablaðið/Hanna Það er áHyggju­ efni að margt af ÞVí sem er skarPlegast Hugsað og skrifað í Veröld- inni kemur ekki út á íslenskri tungu. ORKA NÁTTÚRUNNAR · Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn um allt land og sér höfuðborgarbúum fyrir heitu vatni. Við nýtum auðlindir af ábyrgð til að bæta lífsgæðin í nútíð og framtíð. E N N E M M / S ÍA / N M 6 9 4 0 2 Enn meira rafmagn í umferð í sumar Orka náttúrunnar hefur opnað tvær hraðhleðslustöðvar á Akureyri. Stöðvarnar eru orðnar 13 talsins og er meðal annars að finna á höfuðborgarsvæðinu, í Borgarnesi, á Selfossi og í Reykjanesbæ. Straumurinn liggur svo sannarlega í vistvænni ferðamáta og ON er stolt af því að leggja sitt af mörkum í þessu hljóðláta samgönguátaki. ON selur hreina og endurnýjanlega íslenska orku til heimila og fyrirtækja um allt land og nú ganga sífellt fleiri rafbílar fyrir orku náttúrunnar. Fylltu á rafbílinn með Orku náttúrunnar 2 3 . j ú l í 2 0 1 6 l A U G A R D A G U R30 M e n n i n G ∙ F R É T T A B l A ð i ð menning 2 3 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :0 9 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 1 0 -F 3 0 4 1 A 1 0 -F 1 C 8 1 A 1 0 -F 0 8 C 1 A 1 0 -E F 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 2 2 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.