Fréttablaðið - 23.07.2016, Side 20
S jálfsagt hefði ég verið á Promenade des Anglais þar sem þessar hörmungar áttu sér stað ef okkur Olivier, manninum mínum, hefði ekki verið boðið í
siglingu af henni Önnu Charlottu,
sænskri vinkonu okkar, svo við
vorum að horfa á flugeldana úti á
hafi þegar þetta gerðist,“ segir Berg
þór Bjarnason í Nice, um atburði
fimmtudagsins í síðustu viku þegar
truflaður maður keyrði trukk inn í
mannfjölda.
„Það eru nokkur ár frá því að við
fórum á strandgötuna á Bastillu
daginn, því Olivier er lítið fyrir
flugelda og enn minna fyrir fólks
mergð en ég var búinn að tala um
að mig langaði að fara núna. Einnig
stóð til að bróðir hans yrði hér með
kærustunni sinni, það hefði örugg
lega orðið til þess að við hefðum
verið á svæðinu, en svo varð ekk
ert af því að þau kæmu. Í staðinn
vorum við nokkur hundruð metra
frá, á siglingu. Við vissum því ekkert
um þessa atburði fyrr en komið var
að landi, þá hringdi maður enskrar
vinkonu okkar í okkur, hann var
staddur á Englandi og sagði konu
sína hafa flúið inn á veitingastað
við ströndina í Nice, þar sem ein
hvers konar árás hefði verið gerð.
Á heimleið mættum við vígbúinni
lögreglu á Garibalditorgi, sem er
nálægt höfninni, sem öskraði á fólk
að drífa sig í burtu. Okkur virtist
sem yfir stæði leit að einhverjum en
seinna kom svo í ljós að maðurinn
var einn að verki.“
Ástandið var algjörlega súrreal
ískt á götum borgarinnar, að sögn
Bergþórs, líktist mjög hernaðar
ástandi. „Lögreglan var gjörsam
lega að fara yfir um. Við Olivier
komumst í sporvagn enda var fyrsta
hugsunin sú að fara heim og læsa
dyrum og þegar þangað kom settum
við strax skilaboð á Facebook um að
við værum hólpnir, þar sem síminn
var farinn að rauðglóa af skila
boðum og hringingum úr ýmsum
áttum. Svo var kveikt á fréttastöðv
unum sem voru strax með beina
útsendingu.“
Kökkur í hálsinum
Bergþór er verslunarstjóri hjá
Michael Kors í stórverslun Galeries
Layfayette við Massenatorg sem er
skammt frá staðnum þar sem ill
virkið átti sér stað og þurfti að fara í
vinnu strax um helgina. „Það er ekki
þægilegt að vera á svo berskjölduðu
svæði sem stórverslun er, þrátt fyrir
aukið öryggiseftirlit. Ég hefði helst
viljað vera í friði heima hjá mínum
manni. Depurð er það orð sem
helst lýsir líðan okkar og einhvern
veginn er eins og kökkur í hálsinum.
Mér finnst þó eins og ég hafi ekki
enn getað greint þessa atburði og
brugðist við, ólíkt því sem gerðist
í nóvember, eftir árásirnar í París,
þegar tárin runnu á hverju kvöldi
yfir fréttunum. Nú hef ég varla
horft á fréttir, það er einfaldlega of
mikið.“
Óttinn í borginni leynir sér ekki
að sögn Bergþórs. „Fólk er auð
vitað slegið. Svo tala allir í ferða
málabransanum og viðskiptalíf
inu um afbókanir og að hvergi sé
hræða síðan á fimmtudagskvöld. Á
mánudag sagði ég við Olivier að við
skyldum fara út og fá okkur í glas og
svo borða á einhverjum veitinga
stað, það væri ekki hægt að láta
einhverja djöfla vinna svona auð
veldlega. Eðlilegt mannlíf verður að
komast aftur í gang og ef enginn fer
neitt eða eyðir einni einustu evru þá
leggst allt í dvala.
Við höfum vanist því síðan á
síðasta ári, þegar í tvígang voru
gerðar árásir í Frakklandi, að vera
á varðbergi en svo gleymist óttinn
smám saman þangað til að eitthvað
nýtt gerist eins og nú. Það er samt
kannski kaldranalegt að segja það
en oftast eftir svona atburði eins og
urðu hér í Nice á þjóðhátíðardaginn
er öryggið fullkomið því eftirlitið er
svo mikið.“
Inntur eftir umfjöllun fjölmiðla
um málið svarar Bergþór: „Ég verð
að viðurkenna að ég hef ekki mikið
fylgst með sjónvarpi þar sem ég
hef ekki haft löngun til þess. Það er
orðin hefð að allar fréttastöðvar séu
með óendanlegar beinar útsend
ingar þegar eitthvað alvarlegt gerist
og maður fær alveg yfirskammt af
fréttum og algjört ógeð á því hvernig
reynt er að bródera í beinni tímun
um saman þegar ekkert nýtt kemur
fram. Svo er líka verið að spila inn
á tilfinningasemi því hárfín lína er
á milli þess að sýna í raun og veru
það sem er að gerast og þess að nota
hörmungar annarra til að laða að
áhorfendur. Þess vegna finnst mér
betra að hlusta á útvarp.“
Fólk er reitt
Þótt margir sameinist í sorginni í
Nice þessa dagana finnur Bergþór
líka fyrir aukinni spennu gagnvart
minnihlutahópum eftir voðaverkið
sem framið var. „Fólk hér syðra er
blóðheitt og lætur oft ljót orð falla
til annarra. Sá sem fer yfir götu á
grænu ljósi er hundskammaður af
bílstjóranum þegar hann verður
næstum undir bíl og á fótum fjör að
launa. Við því mátti búast að eitt
hvað yrði um svívirðingar í garð
múslima eftir þessar hörmungar.
Fólk er reitt og skilur ekki hvernig
þetta getur gerst. Almenningur er
líka orðinn langþreyttur á vandræð
um sem fylgja litlum hópi af afkom
endum innflytjenda, það er líkt og
að önnur og þriðja kynslóð eigi í
vandræðum með að finna sitt sjálf
í eigin landi. Þar að baki er fjörutíu
Fólk er
auðvitað
slegið
Bergþór Bjarnason býr í Nice þar sem morð
óður maður ók yfir fjölda fólks fyrir rúmri
viku er það naut flugeldasýningar á þjóð
hátíðardaginn. Bergþór var á báti utan við
ströndina þegar ódæðið átti sér stað. Þegar
hann kom í land mætti hann vígbúinni lög
reglu og breyttum aðstæðum í borginni.
Bergþór á strandgötunni Promenade des Anglais þar sem 84 týndu lífi, þar af tíu börn og unglingar.
Það er einkennilegt að
heyra að franska ríkið
ætli að auka
loftárásir í írak og
sýrlandi sem viðbröð
við Þessum hörmulega
atburði. verkefnin
heimafyrir eru mörg
og flókin og erfitt að
sjá hvernig á að líma
saman brotin svo fólk
sé tilbúið til að búa
saman í friði og ró.
ára sorgarsaga um hvernig sam
félaginu hefur mistekist að koma
góðum gildum sínum til skila.“
Nú hyggst François Hollande
Frakklandsforseti bregðast við
þessu hryðjuverki með því að bæta
í herflotann hjá sér. Ekki telur Berg
þór það kunna góðri lukku að stýra.
„Ég held að það sé ekki til þess fallið
að friða fólk og auka samstöðu með
því að tala um hryðjuverk þegar
einn maður, sem ekki er í jafnvægi,
fremur fjöldamorð. Það er líka
algjörlega fáránlegt að heyra Daesh
lýsa ábyrgð atburðarins á hendur
sér þegar sá sem framdi verknað
inn hafði, eftir því sem ég best veit,
engin sambönd við þau samtök. Í
ljósi þessa er það einkennilegt að
heyra að franska ríkið ætli að auka
loftárásir í Írak og Sýrlandi sem
viðbrögð við þessum hörmulega
atburði. Verkefnin heima fyrir eru
mörg og flókin og erfitt að sjá hvern
ig á að líma saman brotin svo fólk sé
tilbúið að búa saman í friði og ró.“
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Mikilvægt að halda stillingu
„Þjóðernissinnar hafa um nokkurt skeið verið mjög áberandi í héraðinu Les
Alpes Maritimes, þar sem Nice er. Í morgun (fimmtudaginn 21. júlí) voru
viðtöl í útvarpinu við Nicebúa og hræðilegt kynþáttahatur kom þar fram.
Þetta ódæðisverk hefur vissulega áhrif í þá veru en viti bornara fólk segir að
óskastaða hjá hryðjuverkamönnum sé einmitt að sundra fólki og æsa það
hvert gegn öðru, svo mikilvægt er að halda stillingu.“
Á myndinni er krans á Promenade des Anglais frá samtökum múslima í
héraðinu Les Alpes Maritimes.
Hvort atburðirnir í Nice á þjóðhá
tíðardaginn breyti afstöðu fólks til
innflytjendamála til lengri tíma segir
Bergþór erfitt að spá um. „Þjóðernis
flokkurinn í Frakklandi hefur verið í
uppgangi um nokkurt skeið en ég hef
á tilfinningunni að það sé efnahags
kreppa sem veldur vanlíðan almenn
ings frekar en innflytjendur. Reyndar
verða þeir fórnarlömb kreppunnar
og það er hér eins og víðar einhvers
konar „Trumpismi“ í gangi sem fellur
vel í fólk þegar illa gengur.“
2 3 . j ú l í 2 0 1 6 l A U G A R D A G U R20 h e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð
2
3
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:0
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
1
0
-E
9
2
4
1
A
1
0
-E
7
E
8
1
A
1
0
-E
6
A
C
1
A
1
0
-E
5
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
2
2
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K