Fréttablaðið - 10.12.2016, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 10.12.2016, Blaðsíða 24
Súrrandi brilljant út í gegn Halla Oddný Magnúsdóttir, dagskrárgerðarmaður, RUV ★★★★ Magnþrungin saga Júlía M. Alexandersdóttir, MORGUNBLAÐIÐ ★★★★ Líkt og kúbískt listaverk Jóhanna María Einarsdóttir, DV Listavel gert … hefur afburðatök á því sem hún er að gera Steinunn Inga Óttarsdóttir, KVENNABLAÐIÐ Þetta er vægast sagt spennandi bók Jórunn Sigurðardóttir, Orð um bækur, RUV Draumkennd framvindan dregur mann inn í verkið, forvitnin um heimildina knýr lesturinn áfram Gunnþórunn Guðmundsdóttir, HUGRÁS Vel skrifuð. Mjög vel hugsuð. Mér finnst hún býsna góð Kolbrún Bergþórsdóttir, KILJAN Vakti þar til ég var búinn með þessa klukkan tvö í nótt Hún er góð. Mjög góð Stefán Pálsson, sagnfræðingur Grunnhugmyndin að verkinu snjöll. Mjög pælt verk Sigurður Valgeirsson, KILJAN Ný rödd í íslenskri skáldsagnalist Jóhann Helgi Heiðdal, STARAFUGL Uppfull af snilldarlegum kontrapunkti forms og inntaks Halla Oddný Magnúsdóttir Afar eftirminnileg lestrarupplifun og þrátt fyrir alvarlegan undirtón er í honum hárfínn lágstemmdur húmor Júlía M. Alexandersdóttir, MORGUNBLAÐIÐ Margslungin og áhrifarík skáldsaga þar sem hárnákvæmur stíll og hugvitssamleg uppbygging mætast Dómnefnd um FJÖRUVERÐLAUN Eftir höfund bókanna Þóra biskups og Sigrún og Friðgeir. Ferðasaga Smekkleysa sm TILNEFND E gi ll B al du rs so n AUGLÝSINGIN_NOTA ÞESSA 5. DES..qxp_Layout 1 9.12.2016 13:46 Page 1 Alþingi, það er réttur þinn og skylda, það er hlutverk þitt að stjórna landinu í sam- ræmi við vilja fólksins sem byggir það. Þú hefur hins vegar engan rétt til þess að brjóta gegn vilja fólksins þegar það hefur tjáð hann þannig að ekki verði um villst. Þess vegna skaltu hafa það í huga að það yrði eftir því tekið ef þú samþykktir það frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2017 sem nú liggur fyrir og litið á það sem dæmi um Ginnungagap milli þings og þjóðar, brot á rétti þess síðari, framið af þeim fyrri. Þú glataðir trausti þjóðarinnar við Hrunið og þér hefur gengið illa að vinna það aftur. Fjárlagafrum- varpið veitir þér núna tækifæri til þess að sannfæra þjóðina um að þú berir hag hennar þér fyrir brjósti, fyrst og fremst, og hafnir því að gera mistök einstakra ráðherra að þínum, þótt meðal þeirra kunni að vera formaður þess stjórn- málaflokks sem telur innan sinna raða fleiri einstaklinga sem mynda þig en nokkur annar flokkur. Það er einnig eins gott fyrir þig, kæra Alþingi, að gera þér grein fyrir því að ef þú samþykkir fjárlagafrum- varpið í núverandi mynd er fullt eins líklegt að forsetinn neyðist til þess að nýta sér málsskotsréttinn og vísa því til þjóðarinnar, vegna þess að það gengur klárlega í ber- högg við þann vilja sem hún hefur tjáð á ýmsan máta. Nú skulum við skoða röksemdir sem styðja þá skoðun mína að fjár- lagafrumvarp Bjarna Benedikts- sonar stangist á við vilja þjóðar- innar og sé í raun réttri helber dónaskapur: Heilbrigðiskerfi landsins er ekki þess megnugt að sinna hlutverki sínu vegna langvinns fjársveltis, sem eitt og út af fyrir sig hefði nægt til þess að lama það, en hefur líka getið af sér glundroða sem hefur bætt gráu ofan á svart og heimtar endurskipulagningu kerfisins. Á síðustu átján mánuðum hefur þjóðin vaknað til meðvitundar um vandamál heilbrigðiskerfisins og sett fram harðorðar kröfur um að betur sé hlúð að því. Til dæmis skrifuðu 86.500 Íslendingar, 18 ára og eldri, undir þá kröfu að Alþingi veitti 11% af vergri lands- framleiðslu til rekstrar heilbrigðis- kerfisins á ári hverju. Allir stjórnmálaflokkarnir hétu því fyrir kosningar að beita sér fyrir endurreisn heilbrigðiskerfis- ins ef þeir enduðu í ríkisstjórn, þar á meðal Sjálfstæðisflokkurinn. Landspítalinn er þungamiðja heil- brigðiskerfisins. Stjórnendur hans áttu fundi með forráðamönnum stjórnmálaflokkanna fyrir kosn- ingar og reyndu að sýna þeim fram á að það þyrfti að bæta 14 millj- örðum við rekstrarfé Spítalans til þess að hann gæti sinnt hlutverki sínu sómasamlega eins og það er skilgreint í dag. Fjárlagafrum- varp Bjarna Benediktssonar gerir ráð fyrir því að Spítalinn fengi einungis 4 milljarða í viðbót en þar af væru rúmlega 3 milljarðar verðbætur þannig að raunveruleg aukning yrði einungis rúmlega 800 milljónir króna. Það er engum vafa undirorpið að fólk þjáist og deyr jafnvel af völdum þess hvað spítalinn er illa í stakk búinn til þess að sinna því. Þjóðin gerir sér grein fyrir þessu og krefst þess að þetta sé lagað. Bjarni Benediktsson hunsar þessa kröfu þjóðarinnar í fjárlagafrumvarpi sínu, sem gerir þó ráð fyrir því að ríkissjóður skili 28 milljarða króna afgangi á næsta ári og skattar og tollar séu lækkaðir. Þessi afgangur er borð fyrir báru sem er ætlað að draga úr hættunni á því að ríkis- sjóður líti bókhaldslega illa út í lok næsta árs. Afleiðingin af þessu borði fyrir báru sem fjármálaráð- herra ætlar sér er aukin hætta sem steðjar að þeim sem eru meiddir og lasnir og þurfa að leita til Spít- alans. Þetta er nístingskalt. Þetta er ljótt. þetta er með öllu óásættan- legt. En þetta á ekki rætur sínar í grimmd fjármálráðherrans okkar, sem er góður maður, heldur ann- ars vegar í því að hann virðist ekki skynja vandamál venjulegs fólks og lítilmagnans og hins vegar í hégómagirnd hans sem vill hafa brilljantín greiddan ríkisreikning í lok 2017. En Alþingi Íslendinga, þú mátt ekki gleyma því að það er á þínu valdi að koma í veg fyrir að frumvarpið verði að lögum og mæta á þann veg vilja fólksins í landinu. Þegar fjölmiðlafólk hefur leyft sér að gagnrýna fjárlagafrum- varpið hefur Bjarni gjarnan brugð- ist við með forundran og sagt að fólkið í landinu hafi aldrei haft það betra en í dag, hann skilji ekki þetta vanþakklæti. Það hefur líka vottað fyrir svolitlum hroka, lík- lega vegna þess að honum finnst hann hafi verið góður strákur og lagt töluvert af mörkum til þess að lýðurinn sé í svona góðum málum. Þetta er einfaldlega ekki rétt, nema hann takmarki notkun sína á heitinu, fólkið í landinu, við ríkis- bubba eins og mig og hann sjálfan. Ástandið er allt annað hjá venju- legum launþegum, að maður tali nú ekki um þá sem eru lasnir eða meiddir eða eru að reyna að kaupa sína fyrstu íbúð eða eru börn eða unglingar eða ungmenni að brjótast til menntunar. Honum gleymist að venjulegt fólk í okkar samfélagi sækir meiri verðmæti í velferðarkerfið en í nokkurn annan stað á ævi sinni, skólakerfið til þess að mennta börnin sín, heil- brigðiskerfið þegar eitthvað bjátar á og húsnæðiskerfið til þess að kaupa sína fyrstu íbúð. Heilbrigðiskerfið er í rusli, nýjustu kannanir benda til þess að menntakerfið sé í engu betri málum og það hefur aldrei verið erfiðara fyrir ungt fólk að kaupa sitt fyrsta húsnæði. Venjulegir launþegar á Íslandi eru verr settir en oft áður vegna þess að velferð- arkerfið hefur verið vanrækt. Fjár- málaráðherra gleymist að það ger- ist svo ótrúlega margt utan debit og kredit dálka ríkisfjármála af þeirri gerð sem ærlegt fólk vill að sé gert upp í lok árs eins og 2017. Það eru líka áleitnar spurningar sem Bjarni forðast eins og heitan eldinn í frumvarpinu sínu, eins og til dæmis hvernig beri að færa við uppgjör ríkisfjármála 75.000 klukkutíma af sársauka og 100.000 klukkutíma af annarri vanlíðan sem hefði verið hægt að forðast með því að hlúa betur að Spítal- anum, 300 ónauðsynlega dauð- daga fyrir aldur fram og óteljandi klukkutíma af sorg og angist þeirra sem eftir lifðu. Stjórnmálamaður sem á jafn auðvelt og Bjarni Bene- diktsson með að forðast spurn- ingar af þessu tagi og er í jafn litlu sambandi við örlög venjulegs fólks í landinu er ekki líklegri til þess að geta leitt þjóðina í samfélagi réttlætis og kærleika en einfættur maður að spila fótbolta í meistara- deild. Hæstvirt Alþingi Íslendinga, þjóðin krefst þess að þú lesir fjár- lagafrumvarpið í tætlur, sem víti til varnaðar og lærir það utanbókar. Helst ættir þú að varpa því yfir á bundið mál þannig að það yrði auðveldara fyrir komandi kyn- slóðir að gera hið sama. Að lokum þetta, ef þú átt í einhverjum erfið- leikum með að hafna frumvarpinu mundu að fyrir nokkrum dögum sótti 100 ára gömul kona í okkar samfélagi um vist á hjúkrunar- heimili og var sett á biðlista. Það er lítil huggun að því að þau nákvæmu gögn sem við eigum í íslensku samfélagi um lífslíkur fólks benda til þess að hún verði þar ekki mjög lengi. Alþingi Íslendinga, þjóðin er þinn herra, ekki satt? Opið bréf til löggjafans Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Hæstvirt Alþingi Íslendinga, þjóðin krefst þess að þú lesir fjárlagafrumvarpið í tætlur, sem víti til varnaðar og lærir það utanbókar. Helst ættir þú að varpa því yfir á bundið mál þannig að það yrði auðveldara fyrir komandi kynslóðir að gera hið sama. Að lokum þetta, ef þú átt í einhverjum erfiðleikum með að hafna frumvarpinu mundu að fyrir nokkrum dögum sótti 100 ára gömul kona í okkar samfélagi um vist á hjúkrunarheimili og var sett á biðlista. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r24 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 0 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 1 5 2 s _ P 1 2 9 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 1 1 6 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B A 1 -2 3 3 4 1 B A 1 -2 1 F 8 1 B A 1 -2 0 B C 1 B A 1 -1 F 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 5 2 s _ 9 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.