Fréttablaðið - 10.12.2016, Blaðsíða 100
„Marigot hefur um árabil unnið
að rannsóknum með vísinda
mönnum á heilnæmi kalkþörunga
og niðurstöðurnar gefa til kynna
að neysla þeirra eigi sinn þátt í að
styrkja bein og liði og örvi einn
ig og bæti meltingu,“ segir Einar
Sveinn Ólafsson, framkvæmda
stjóri Íslenska kalþörungafélags
ins. Hann bendir á að Marigot sé
eitt helsta frumkvöðlafyrirtæki
heims á sviði þróunar á fæðubótar
efnum úr kalkþörungum fyrir holl
ustu og heilsumatvæli fyrir menn
og dýr, og þá aðallega kýr.
Acidbuf og Aquamin
Bætiefni Marigot fyrir landbúnað
eru merkt vörumerkinu Acidbuf
en afurðir til manneldis eru merkt
Aquamin. „Acidbuf hefur lengi
þótt hafa jákvæð áhrif á heilsu
húsdýra en stór hluti framleiðslu
Ískalks á Bíldudal er notaður sem
bætiefni í dýrafóður,“ segir Einar
Sveinn en kalkið þyki bæta og örva
meltingu og almennt stuðla að auk
inni vellíðan bústofnsins. „Frekari
rannsóknir á heilnæmi kalkþör
ungsins leiddi til þróunar og síðan
framleiðslu á heilsutengdum og
vottuðum afurðum til manneldis,“
segir hann.
Fjölmörg verðlaun
Jákvæð áhrif Aquamin á slitgigt
og beinrýrnun hefur leitt til þess
að Marigot hefur hlotið nokk
ur verðlaun fyrir Aquamin vöru
flokkinn. Einar Sveinn nefnir
meðal annars fyrstu verðlaun sem
Hráefni ársins 2016 (Ingredient of
the Year Award) í flokknum Heil
brigð öldrun (Healthy Aging) á al
þjóðlegri vörusýningu heilsuiðnað
arins, VitaFoods Exhibition 2016,
sem haldin var í Genf. „Marigot
hefur á undanförnum misserum
hlotið fleiri sambærileg verðlaun
fyrir þessa vöru sem seld er um
allan heim. Að mati dómnefnda
er Aquamin sérlega árangursríkt
heilsubótarefni til að stuðla að
heilbrigðri öldrun þegar kemur að
mataræði og hollum lífsháttum.“
Dregur úr beinþynningu
Einar Sveinn nefnir einnig að
Aquamin þyki draga úr beinþynn
ingu og hafa jákvæð áhrif gegn
æða og hjartasjúkdómum. Hann
greinir frá rannsókn sem hófst í
Bretlandi árið 2012. „Þar voru töl
fræðiupplýsingar skoðaðar í úr
taki 300 kvenna sem lokið höfðu
tíðahvörfum. „Einn hópurinn fékk
Aquamin, annar Aquamin sem
einnig innihélt fásykrur og þriðji
hópurinn fékk lyfleysu. Niður
stöður rannsóknarinnar sýndu að
báðir hóparnir sem fengu Aqua
min eða Aquamin með fásykrum
voru með minna LDLkólesteról,
oft kallað vonda kólesterólið, en
lyfleysuhópurinn. Fyrir upphaf
rannsóknarinnar voru gildi hóp
anna sambærileg. Kólesterólgild
in í heild (Total Cholesterol) voru
einnig lægri en í lyfleysuhópnum
og innan allra eðlilegra marka.
LDLkólesteról er meðal þess
sem valdið getur æða og hjarta
sjúkdómum. Einnig var gildi IL4,
sem hamlar gegn bólgusjúkdóm
um, umtalsvert hærra meðal
þeirra kvenna sem fengu Aqua
min eða Aqua min með fásykrum,“
upplýsir einar Sveinn og bendir á
að konunum í rannsókninni hafi
verið fylgt eftir í fjögur ár að lok
inni ransókn.
Íslenska kalkþörungafélagið
Íslenska kalkþörungafélagið, sem
oftast er kallað Ískalk, var stofn
að árið 2001. „Hjá fyrirtækinu eru
nú á þriðja tug starfsmanna og er
Ískalk því einn af máttarstólp
um atvinnulífsins á Bíldudal, þar
sem íbúum fer nú fjölgandi á ný,“
segir Einar Sveinn en fyrirtæk
ið vinnur árlega um 35 þúsund
tonn af þurrkuðum þörungum og
að sögn Einars Sveins er unnið að
framleiðsluaukningu í um 50 þús
und tonn á ári. „Kalkþörungar eru
æ víðar skilgreindir sem ofurfæða
(superfood) ásamt þara og ýmsum
þangtegundum og fer eftirspurnin
vaxandi, sérstaklega eftir að heil
næmi vestfirska kalksins var stað
fest,“ segir Einar Sveinn og bend
ir á að framleiðsluferlar Íslenska
kalkþörungafélagsins séu vottað
ir af Vottunarstofunni Túni ehf.
Tvær verksmiðjur á vegum
Marigot
Marigot hyggur á enn meiri upp
byggingu á Íslandi og undir
býr um þessar mundir byggingu
tveggja verksmiðja, annars vegar
í Stykkis hólmi þar sem stofnað
hefur verið til félags með Matís
til að vinna þang úr Breiðafirði,
og í Súðavík þar sem ætlunin er að
vinna kalkþörunga úr Ísafjarðar
djúpi.
Íslenska kalkþörungafélagið, Ískalk, starfar í fögru umhverfi Vestfjarða á Bíldudal.
Hjá Ískalk starfa nú á þriðja tug starfsmanna.
Fyrirtækið vinnur árlega um 35 þúsund tonn af þurrkuðum þörungum og unnið er
að framleiðsluaukningu í um 50 þúsund tonn á ári.
Kalkþörungar úr Arnarfirði stuðla
að betri heilsu manna og dýra
Kalkþörungar eru æ víðar skilgreindir sem ofurfæða. Íslenska kalkþörungafélagið er dótturfélag Marigot á Írlandi sem er framarlega í
þróun fæðubótarefna úr kalkþörungum og hefur hlotið verðlaun fyrir. Framleiðsla Íslenska kalkþörungafélagsins er vottuð af Túni ehf.
Einar Sveinn Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Íslenska kalkþörungafélagsins.
LÍFRÆNT VOTTAÐ Kynningarblað
10. desember 20168
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
A
1
-A
3
9
4
1
B
A
1
-A
2
5
8
1
B
A
1
-A
1
1
C
1
B
A
1
-9
F
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K