Fréttablaðið - 10.12.2016, Blaðsíða 102
„Útgáfuævintýrið byrjaði haust-
ið 2009 þegar við maðurinn minn,
Jón Árnason, byrjuðum með út-
varpsþátt á RÚV sem við kölluð-
um Í boði náttúrunnar. Þar fjöll-
uðum við um ræktun og sjálf-
bærni í stóru samhengi. Þetta var
rétt eftir hrun og okkur, líkt og
marga aðra, langaði til að rækta,“
segir Guðbjörg en þátturinn var
á dagskrá Rásar 1 í þrjú sumur.
„Við flökkuðum á milli garða og
landshluta og kynntumst fjölda
af áhugaverðu fólki,“ segir Guð-
björg sem í kjölfarið ákvað að
þetta væri það sem hana lang-
aði að gera, það er að vinna með
náttúrunni í víðum skilningi, taka
heildræna nálgun að grænum lífs-
stíl og öllu sem íslensk náttúra
hefur upp á að bjóða.
Tímarit í slow-stefnunni
„Eftir fyrsta sumarið í útvarpinu
var ég verkefnalaus. Þá kviknaði
sú hugmynd að taka það sem við
höfðum verið að gera í útvarp-
inu og færa það yfir í tímarit,“
segir Guðbjörg en fyrsta tímarit-
ið undir heitinu Í boði náttúrunn-
ar kom út sumarið 2010.
„Markmiðið er að veita inn-
blástur og fróðleik um það sem
tengir fólk betur við náttúruna og
fá fólk til að hugsa um hvernig við
nýtum hana og njótum. Um leið að
stuðla að andlegu og líkam legu
heilbrigði bæði hjá okkur og nátt-
úrunni,“ lýsir Guðbjörg en í blað-
inu má finna fjölmargt um heilsu,
útivist, mat og ræktun.
„Innblásturinn er sá að fólk fái
þær upplýsingar sem þarf til að
taka lítil skref í átt að heilbrigð-
ara líferni bæði hjá sjálfu sér og
gagnvart nátúrunni.“
En hvaðan kemur áhuginn á
málefninu? „Ég bjó í New York í
sjö ár og þegar ég kom heim kunni
ég svo miklu betur að meta nátt-
úruna. Það kraumaði í mér að
gera eitthvað tengt okkar æðis-
legu náttúru á Íslandi,“ svarar
Guðbjörg sem er grafískur hönn-
uður að mennt og er því annt um
að tímaritið líti sem allra best út.
„Ég vil sýna náttúruna í sinni feg-
urstu mynd.“
Tímaritið kemur út þrisvar á
ári en þó ekki á sérstökum árs-
tímum heldur þegar það er tilbú-
ið í hvert sinn. „Við fylgjum slow-
stefnunni í útgáfunni,“ segir hún
glettin.
„Hins vegar höfum við brydd-
að upp á þeirri nýjung að senda
áskrifendum fleira en blaðið.
Til dæmis sátum við fjölskyld-
an á dögunum og pökkuðum inn
handteiknuðu dagatali, korti
til að skrifa á áramótaheit, líf-
rænu súkkulaði og taupoka til að
minnka plastpokanotkun.“
Guðbjörg reynir einnig að gefa
til baka til náttúrunnar. „Við
eigum lítinn lund í Heiðmörk og
gróðursetjum eitt tré fyrir hvern
áskrifanda á ári.“
Áhugavert vefrit
Vefsíðan www.ibn.is fór í loft-
ið 2014 en það er vefrit með fjöl-
mörgum upplýsingum, uppskrift-
um og fróðleik. „Vefsíðan gefur
okkur frekari tækifæri til að búa
til samfélag, miðla efni sem við
teljum skipta máli og er mikil-
vægur hlekkur í þeirri hugafars-
breytingu sem er að eiga sér stað
varðandi umhverfismál og nátt-
úrulegar leiðir að andlegri og lík-
amlegri heilsu.“
HandPicked Iceland
Guðbjörg hefur fleiri járn í eld-
inum og gefur til að mynda út
bæklinginn HandPicked Iceland.
„Þetta hófst á því að mig vantaði
lista yfir góða matsölustaði úti á
landi fyrir blaðið. Síðan heyrði ég
í fararstjóra sem sagði að þetta
væri það sem ferðamenn kvört-
uðu helst yfir, að vita ekki hvar
þeir gætu fengið góðan mat. Þetta
þróaðist út í litla bæklinga sem
liggja frammi á hótelum og víðar.“
Jólamarkaður á aðventunni
Skrifstofur Í boði náttúrunnar
eru í gamla bænum á Elliðavatni.
„Það er yndislegt að vera hér og
geta gengið beint út í náttúruna,“
segir Guðbjörg en nú verður jóla-
markaður við bæinn allar helgar
fram að jólum. „Við verðum með
bás og kynnum tímaritið og fleira
sem við erum að gera. Til dæmis
handmálað náttúrukort þar sem
merktar eru áhugaverðar nátt-
úruperlur um land allt. Það gefur
bæði Íslendingum og ferðamönn-
um nýjar hugmyndir um áfanga-
staði.“
Gróðursetja tré fyrir hvern áskrifanda
Guðbjörgu Gissurardóttur er umhugað um að taka sífellt skref í átt að betra líferni. Hún er stofnandi Í boði náttúrunnar sem gefur út
tímarit þrisvar á ári þar sem lífrænu líferni, heilbrigði, umhverfinu og öllu íslensku er gert hátt undir höfði.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
Guðbjörg er með skrifstofu í gamla Elliðavatnsbænum og kann vel að meta
nálægðina við náttúruna. Mynd/GVA
HIMNESK HOLLUSTA SELUR
EINUNGIS LÍFRÆNAR VÖRUR
HEILBRIGÐ SKYNSEMI
lífrænt VottAð Kynningarblað
10. desember 201610
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
A
1
-B
7
5
4
1
B
A
1
-B
6
1
8
1
B
A
1
-B
4
D
C
1
B
A
1
-B
3
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K