Fréttablaðið - 10.12.2016, Blaðsíða 49
Lífræn ræktun snýst
um að vinna í sátt við
náttúruna, þar sem
jarðvegurinn er lifandi
og næringarríkur. Það
má ekki nota kemískan
tilbúinn áburð. Þegar
slíkur áburður er not-
aður rýkur gróðurinn
upp á kostnað örveru- og
skordýralífs sem er
forsenda frjósamrar
gróðurmoldar.
Rannveig Guðleifsdóttir
Lífrænt vottað
10. desember 2016
KynningarbLað Móðir Jörð | Sóley Organics | Himneskt | Nesbúegg | Villimey
rannveig guðleifsdóttir, verkefnastjóri hjá Vottunarstofunni Túni. MynD/gVa
Vottunarstofan Tún veitir fram
leiðendum í landbúnaði, sjávarút
vegi og vinnslu náttúrulegra af
urða gæðaþjónustu. Fyrirtækið
starfar í samræmi við alþjóðlega
staðla varðandi lífríki og náttúru.
Rannveig Guðleifsdóttir er verk
efnastjóri hjá Vottunarstofunni
Túni. Hún segir að fyrirtækið sé
rekið án allra ríkisstyrkja.
„Við störfum aðallega á tveim
ur sviðum, lífrænni vottun og vott
un og eftirliti með sjálfbærum
sjávar nytjum samkvæmt viðmið
unarreglum Marine Stewardship
Council eða MSC. Tún er eina
fyrirtæki sinnar tegundar hér á
landi,“ útskýrir hún.
„Bundið er í lög að landbún
aðarafurðir sem markaðssettar
eru með tilvísun í lífrænar fram
leiðsluaðferðir hafi vottun. Þeir
sem vilja kynna vörur sínar sem
lífrænt vottaðar þurfa að leita
eftir slíkri vottun til okkar,“ segir
Rannveig. „Vottunarstofan Tún
framkvæmir ítarlega úttekt á við
komandi framleiðslu í upphafi og
árlega eftir það. Þeir sem eru vott
aðir eru undir reglubundnu eftir
liti. Einnig gerum við fyrirvara
lausar úttektir samkvæmt handa
hófskenndu úrtaki. Menn geta því
alltaf átt von á okkur,“ útskýrir
Rannveig.
Sextíu vottuð fyrirtæki
Um sextíu fyrir tæki eru vottuð í
dag. Þau eru í landbúnaði, jarð
yrkju, matjurtarækt, búfjárrækt,
fiskeldi og söfnun villtra plantna.
Þá eru vinnslustöðvar sem vinna
úr lífrænum hráefnum, pakka,
endurpakka, endurmerkja og
flytja inn lífrænar vörur. „Þetta er
mjög fjölbreytt starfsemi, mjólk
urvinnsla, sláturhús, bakarí, bjór
gerð, kaffibrennsla og margt
fleira. Öll fyrir tæki sem eru með
vottun frá Túni hafa leyfi til að
nota vottunarmerkið okkar á vott
aðar vörur. Vottunarmerkið er því
staðfesting til neytenda á því að
umrædd vara hafi lífræna vottun.
Við fáum öðru hvoru ábending
ar frá fólki um tilvísanir í lífræn
ar framleiðsluaðferðir án þess að
vottun liggi þar að baki, en þá er
ekkert vottunarmerki á umbúðun
um. Við komum slíkum ábending
um til eftirlits aðila.“
Langur aðlögunartími
Vottunarstofan Tún var stofn
uð 1994 og fyrstu vottorðin gefin
út við hátíðlegar athafnir haustið
1996. „Undanfarin ár hefur verið
mestur vöxtur hjá vinnslufyrir
tækjum,“ segir Rannveig. „Það eru
erfið skref fyrir bónda að skipta
yfir í lífræna framleiðslu því að
lögunartíminn er langur, tvö ár.
Á þeim tíma þarf viðkomandi að
uppfylla kröfur um lífræna fram
leiðslu og greiða eftirlitsgjöld,
en getur ekki markaðssett vörur
sínar sem lífrænar. Það getur því
verið átak að taka slíkt skref. Í
sumum tilvikum þarf að gera tölu
vert kostnaðarsamar breytingar,
t.d. fækka í búfjárstofninum til að
standast rýmiskröfur, gera breyt
ingar á gripahúsum eða jafnvel
byggja nýtt hús, en eins og stað
an er núna fá bændur ekki aðlög
unarstyrki til að fjármagna svona
breytingar. Það hefur haldið aftur
af nýliðun í þessari stétt. Ég býst
við að aðlögunar styrkir sem tíðk
ast í öðrum Evrópu löndum, gætu
liðkað fyrir bændum að fara út í
lífræna framleiðslu. Við finnum
fyrir áhuga, en margir bændur
sjá ekki að dæmið geti gengið upp
fjárhagslega. Aftur á móti þarf
vinnslufyrir tæki ekki aðlögunar
tíma, þótt oft þurfi að breyta
vinnsluferlum, uppfæra gæðakerfi
og afla nýrra birgja. Vinnslan er
tekin út og síðan er hægt að byrja,
sem gerir ferlið allt einfaldara,“
segir Rannveig.
Áhugi á lífrænum vörum
Mikill og vaxandi áhugi er meðal
neytenda að kaupa vörur með líf
ræna vottun. Rannveig segir að
þau sjái það mjög vel með t.d.
mjólkurvörur þar sem eftirspurn
hefur verið meiri en framboð í
nokkur ár.
„Lífræn ræktun snýst um að
vinna í sátt við náttúruna, þar
sem jarðvegurinn er lifandi og
næringarríkur. Það má ekki nota
kemískan tilbúinn áburð. Þegar
slíkur áburður er notaður rýkur
gróðurinn upp á kostnað örveru
og skordýralífs sem er forsenda
frjósamrar gróðurmoldar. Þegar
fólk hættir að nota tilbúinn áburð
tekur mörg ár að fá líf í jarðveg
inn. Einnig má nefna að tilbúinn
áburður nýtist oft illa, talsverður
hluti hans getur skolast út í ár og
þaðan út í sjó, en mengun af þeim
völdum er nú stórt umhverfis
vandamál í öllum heiminum. Í líf
rænni ræktun eru notuð áburðar
efni af lífrænum uppruna, en þó
eru takmarkanir á árlegri köfn
unarefnisnotkun. Eins eru mikl
ar takmarkanir á notkun varnar
efna, og kemísk eiturefni sem
notuð eru í hefðbundnum land
búnaði eru bönnuð. Það skilar sér
í hreinni afurðum, en rannsóknir
hafa sýnt að eiturefni sem mælast
í þvagi snarminnka þegar skipt er
yfir í lífrænt mataræði. Einnig eru
mjög strangar reglur um aðbúnað
dýra og að þau geti sinnt sínum
eðlislægu þörfum. Í matvæla
framleiðslu er notkun aukefna
mjög takmörkuð. Þess vegna er
vara með lífræna vottun almennt
með mun styttri innihaldslýsingu
en aðrar vörur.“ segir Rannveig.
Góð fyrirmynd
Vottunarstofan Tún gefur út regl
ur um lífrænar aðferðir í fram
leiðslu landbúnaðar og náttúru
afurða. Reglur Túns miðast við ís
lenskar og evrópskar lagareglur
um sama efni. Þar sem alþjóðleg
um reglum sleppir og enn skortir
viðmið hefur Tún þróað eigin regl
ur, til dæmis um lagargróður og
þörunga, ylræktun matjurta og um
matreiðslu lífrænna veitinga.
Á sviðum lagargróðurs og yl
ræktar hafa reglur Túns orðið
fyrir mynd í fjölþjóðastarfi við
mótun sameiginlegra viðmiða
fyrir lönd Evrópusambandsins og
EES.
nánar má kynna sér Vottunarstof-
una Tún á www.tun.is.
byggir upp lífræna vottun og þróun
Vottunarstofan Tún er einkarekin faggild eftirlits- og vottunarstofa fyrir lífræna og sjálfbæra framleiðslu. Fyrirtækið sem var stofnað árið
1994 hefur átt ríkan þátt í lífrænni þróun hér á landi. Tún hefur einnig mikilvægu hlutverki að gegna í vottun sjálfbærra sjávarnytja.
Vottunar-
stofan Tún
merkir vottuð
fyrirtæki með
þessu merki.
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
A
1
-B
2
6
4
1
B
A
1
-B
1
2
8
1
B
A
1
-A
F
E
C
1
B
A
1
-A
E
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K