Fréttablaðið - 10.12.2016, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 10.12.2016, Blaðsíða 58
„InsectDog er ekki aðeins tilvalið fyrir ofnæmisgjarna hunda með fóðuróþol heldur einnig sniðug nýj­ ung fyrir þá sem vilja fara ótroðn­ ar slóðir með hundinn sinn með sjálfbærni og umhverfissjónar­ mið að leiðarljósi,“ segir Kristjana Jónsdóttir, sölustjóri hjá Land­ stólpa. Í fóðrið er notað hágæða skordýraprótein. „VeggieDog án korns er um­ hverfisvænn, sjálfbær og heil­ brigður valkostur fyrir fullvaxta hunda en kartöflur og baunir eru undirstaðan í fóðrinu,“ segir Krist­ jana og bætir við að innihaldsefnin séu vandlega valin með það fyrir augum að virða náttúrulegar auð­ lindir en tryggja um leið að hundar fáu öll nauðsynleg næringarefni. Kristjana segir hundaeigendur mjög spennta fyrir þessum nýjung­ um enda kalli margir eftir fóðri sem sé umhverfisvænna. Landstólpi flytur einnig inn hefðbundið hunda­ og kattafóður frá þýska gæðamerkinu Josera. „Þetta er mjög breið lína, 18 teg­ undir fyrir hunda og 8 fyrir ketti. Fóðrið skiptist niður í 4 flokka – Mini­línu fyrir smáhunda, Daily sem er alhliða lína, Special fyrir sérstök tilfelli og Nature sem er kornlaus. Þannig getur hver fund­ ið fóður sem hentar dýrinu hans.“ Josera gæludýrafóðrið er til sölu í BYKO um allt land, í Lands­ tólpa á Selfossi og Egilsstöðum, Fákasporti á Akureyri, Vélavali í Varmahlíð, Dýralandsverslunum í Reykjavík, Fjórum loppum, Dýra­ læknastofu Eyrúnar á Egilsstöðum og Multitask í Neskaupstað Nánar á josera.is og á Facebook undir Josera á Íslandi. Elín Albertsdóttir elin@365.is Josera er bæði með hunda- og kattafóður. Kristjana er hundaræktandi og veit því hvað hún syngur þegar kemur að góðu fóðri. FÓÐUR ÚR SKORDÝRUM OG GRÆNMETI Landstólpi kynnir Landstólpi, sem lengi hefur flutt inn þýska gæðafóðrið Josera, býður nú upp á tvær spennandi nýjungar úr línunni Green pet food. Annars vegar InsectDog og hinsvegar VeggieDog. InsectDog úr skordýrapróteini og VeggieDog úr grænmeti. Ólöf Loftsdóttir dýralæknir segir að dýrin megi ekki borða sama mat og mannfólkið um jólin. Hundum og köttum hefur fjölg­ að mikið á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum árum, sérstaklega stórum hundum. Þeir þurfa mikla hreyfingu og eftirlit allan dag­ inn. Fæstir hundar geta verið einir heima. Ólöf Loftsdóttir, dýralæknir á Dýraspítalanum í Víðinesi, segir að um jól og áramót sé að mörgu að huga í sambandi við dýrahald. „Mikilvægt er að passa mataræði dýranna á hátíðum. Þau mega ekki borða hangikjöt, svínahamborgar­ hrygg eða annan slíkan mat. Jóla­ matur fer illa í dýrin, enda eru þau ekki vön því að borða reyktan eða mikið unninn mat. Einnig þarf fólk að passa að hafa ekki smákök­ ur eða sælgæti á borðum. Vitað er að súkkulaði fer mjög illa í hunda. Dýrin stelast í skálarnar og fá síðan í magann,“ segir hún. „Ef fólk vill gera vel við dýrin um jólin ætti að hafa nammið sem ferskast. Kettir mega til dæmis fá rækjur. Svo er allt í lagi að gefa dýr­ unum sérstaka jólapoka úr dýrabúð­ um,“ segir Ólöf og bendir á að mörg dýr þurfi að koma á Dýraspítalann um jólin vegna þess að þau hafi borðað reyktan mat eða sætindi. Þau fá í magann, jafnvel niður­ og uppgang. Þegar þau veikjast missa þau matarlystina og verða slöpp. Þá hafi kettir komið í aðgerðir um jól þar sem þeir hafi komist í krullu­ bönd utan af pökkum sem festast í meltingarveginum og þörmunum. „Kettir mega alls ekki komast í slík bönd,“ segir dýralæknirinn. Ólöf segir að ekki sé æskilegt að ungum börnum séu gefin dýr í jóla­ gjöf. „Það er allt í lagi að fjölskyld­ an taki sameiginlega ákvörðun um að fá sér dýr í kringum jólin. Hins vegar eru dýr ekki einhver pakki, þetta er líf sem þarf að hugsa vel um og bera virðingu fyrir. Svo þarf fólk að velja sér hund sem hæfir lífsstíl þess. Hundar þurfa mis­ mikla hreyfingu. Leggjast þarf í rannsóknarvinnu áður en þessi ákvörðun er tekin,“ segir hún. Ólöf brýnir fyrir fólki að hugsa vel um dýrin um áramótin á meðan sprengjur dynja úti við. Halda köttum innandyra og gefa þeim ró. Hundar þurfa mikla ást og hlýju um áramót og má alls ekki skilja þá eina eftir heima. Sum dýr þurfa róandi en það hefur minnk­ að á undan förnum árum þar sem fólk gerir sér betur grein fyrir umhyggjunni sem þau þurfa og er meðvitaðra um líðan þeirra. DÝRIN ÞURFA UMHYGGJU YFIR JÓL OG ÁRAMÓT Það krefst mikillar og ígrundaðrar umræðu á heimilinu áður en fjölskyldan ákveður að fá sér hund eða kött. Dýrin þurfa mikla umhyggju og alúð. Hundar þurfa hreyfingu á hverjum degi. Jólafríið gæti verið ágætt til að aðlagast nýjum heimilismeðlim. Lifandi dýr er þó ekki jólagjöf. JOSERA – einstakt fóður fyrir einstakan hund JOSERA býður upp á fóður sem hentar vel fyrir alla hunda. Allar Super Premium vörurnar eru án hveiti, soja, sykurs og erfðabreyttra efna. Að sjálfsögðu eru engin litar-, bragð- og rotvarnarefni í fóðrinu okkar. Hundafóðrið okkar er þróað til þess að fullnægja öllum þörfum hunda og fyrirbyggja helstu vandamál er við koma fóðrun. Sérvalin hráefni, framleiðslutækni og stöðugar prófanir á rannsóknarstofu okkar tryggja bestu mögulegu gæðin og auðmeltanleika í öllu hundafóðrinu okkar. JOSERA á Íslandi Kaupvangi 10 700 Egilsstaðir Sími: 471-1901 Farsími: 895-2414 Netfang: josera@josera.is 11.990,- TILBOÐ! gegn 12 mánaða bindi ngu. -sparaðu 36.000,- TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á 365.IS 1 0 . D E S E M B E R 2 0 1 6 L A U G A R D A G U R4 F Ó L K ∙ K Y N N I N G A R B L A Ð ∙ X X X X X X X XF Ó L K ∙ K Y N I N G A R B L A Ð ∙ H E L G I N 1 0 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 1 5 2 s _ P 1 1 0 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B A 1 -7 7 2 4 1 B A 1 -7 5 E 8 1 B A 1 -7 4 A C 1 B A 1 -7 3 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 5 2 s _ 9 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.