Fréttablaðið - 10.12.2016, Blaðsíða 114
Ég sagði víst flest það,
en þegar þú lest það
þá virkar það alveg fatalt.
Sem barnaleg þvæla,
tóm vitleysa og stælar,
samt sagði ég þeim þetta allt.
En ég er ei svona,
það ætl’ég að vona,
ég meinti það allt saman vel.
Þeir spurðu mig frétta,
ég sagði allt af létta,
mitt mannorð er brotið í mél.
Í þessum átakanlega texta Þor-steins Eggertssonar segir frá vinsælli poppstjörnu sem verður fórnarlamb öfundar-manna á ritstjórn tímaritsins Samúels. Vanhugsað viðtal
leggur ferilinn í rúst og söngvarinn
sem áður dáleiddi allar stúlkur yngri
en tuttugu og sex ára hættir að selja
lög sín en eyðir þeim mun lengri
tíma á hádegisbarnum.
Sagan er full af sambærilegum
dæmum um fólk sem lét vanhugsuð
orð falla í blaðaviðtölum með afdrifa-
ríkum afleiðingum. Listamenn hafa
komið sér í vandræði og stjórnmála-
menn eyðilagt feril sinn með þessum
hætti. Ekkert viðtal hefur þó reynst
jafnafdrifaríkt í mannkynssögunni og
það sem Vilhjálmur II. Þýskalands-
keisari veitti breska blaðinu Daily
Telegraph árið 1908. Litlu mátti muna
að viðtalið kostaði hann keisara-
tignina og áhrifin á þýsk stjórnmál og
alþjóðasamskipti reyndust varanleg.
Orsakir þessa stærsta almanna-
tengslaslyss tuttugustu aldar mátti
finna í skapgerð keisarans. Vilhjálmur
fæddist árið 1859 inn í prússnesku
konungsfjölskylduna. Afi hans og
nafni var krýndur konungur Prúss-
lands tveimur árum síðar og átti á
næstu árum eftir að gegna lykilhlut-
verki í sameiningu þýsku smáríkjanna
í eitt öflugt stórveldi. Það takmark
náðist endanlega þegar Vilhjálmur
var krýndur keisari Þýskalands í
Versölum snemma árs 1871 í miðri
styrjöld Frakka og Þjóðverja sem lauk
með niðurlægjandi ósigri þeirra fyrr-
nefndu.
Ör valdaskipti
Vilhjálmur I. fól kanslara sínum, Otto
von Bismarck, stjórn ríkisins að mestu
og má líta á Bismarck sem hinn raun-
verulega valdhafa, þótt keisarinn væri
alvaldur að nafninu til. Bismarck var
átján árum yngri en keisarinn og var
því undir það búinn að ráðskast með
eftirmann hans, Friðrik III., sem tók
við völdum að föður sínum látnum
árið 1888.
Friðrik III. var kvæntur Viktoríu
prinsessu, elstu dóttur Viktoríu Breta-
drottningar og horfði krónprinsinn
mjög til Bretlands sem fyrirmyndar-
samfélags. Hugðist hann sveigja
stjórnarfarið í átt til bresks skipu-
lags, með aukinni áherslu á þingræði.
Vonlaust er segja til um hvernig glímu
Bismarcks og nýja keisarans um völdin
hefði lyktað, því áður en til krýningar-
innar kom var Friðrik orðinn hel-
sjúkur af krabbameini. Hann lést eftir
aðeins 99 daga í embætti, sem féll nú
í skaut sonar hans, hins 29 ára gamla
Vilhjálms.
Keisarinn ungi hafði allt aðra sýn á
tilveruna en faðirinn. Samband hans
við foreldrana var flókið og hann hafði
andstyggð á dálæti þeirra á Bretlandi.
Raunar átti Vilhjálmur alla tíð í ástar/
haturssambandi við Bretland, þar sem
honum var meinilla við ættingja sína
við bresku hirðina en þráði þó á sama
tíma viðurkenningu þeirra.
Best naut ríkisarfinn sín í
hernum og hann lét sig dreyma
um að feta í spor afa síns og
stýra Þýskalandi til mikilla
sigra á hernaðarsviðinu. Þær
hugmyndir gengu í berhögg
við stefnu Bismarcks sem vildi
fremur dansa línudans í stór-
veldapólitík Evrópu, halda
friðinn við helstu grannríki en
einbeita sér að uppbyggingu
innviða. Gamli klækjarefurinn
vildi fremur efla Þýskaland
sem iðnveldi en að vinna ný
landsvæði með hernaði í Evr-
ópu eða elta önnur stórveldi
út í nýlendukapphlaup á fjar-
lægum slóðum.
Í huga hins nýja keisara var
varkárni Bismarcks merki um
íhaldssemi og að gamli skarf-
urinn hefði ekki lengur kjark
og þor. Bismarck lét hins
vegar fljótfærni og glanna-
skap unga mannsins fara
í taugarnar á sér og lét svo
um mælt að keisarinn vildi
helst eiga afmæli á hverjum
degi og hugsaði aldrei um
afleiðingar gjörða sinna.
Vilhjálmur notaði fyrsta
tækifæri sem gafst til að losa sig
við Bismarck úr embætti. Eftirmenn
hans á kanslarastóli reyndust mun
jákvæðari fyrir hugmyndum um að
Þýskaland gerði sig gildandi á alþjóða-
vettvangi. Undir forystu Vilhjálms II.
hófu Þjóðverjar þátttöku í nýlendu-
kapphlaupinu. Bestu bitarnir voru þó
flestir fráteknir og kostnaðurinn við
að leggja undir sig og stofna nýlendur
á kostarýrum svæðum reyndist meiri
en ábatinn.
Þá olli nýlendubröltið árekstrum
við hin nýlenduveldin. Hvergi kom
það skýrar fram en í deilunum um
Marokkó árin 1905-6. Frakkar ásæld-
ust yfirráð í landinu en Þýskalands-
keisari hafði aðrar hugmyndir. Vil-
hjálmur tók þá hvatvíslegu ákvörðun
að halda til borgarinnar Tangier, ríða
um hana á hvítum hesti og lýsa því
yfir að Þýskaland styddi áframhald-
andi yfirráð soldánsins á svæðinu.
Ræðunni var ætlað að ögra Frökkum
og um tíma leit út fyrir að stórstyrjöld
brytist út í Evrópu vegna Marokkó.
Svo fór þó að lokum að Þjóðverjar
töpuðu störukeppninni, Frakkar fóru
sínu fram og keisarinn var niður-
lægður frammi fyrir öllum. Vöknuðu
þá þegar efasemdir hjá ýmsum um
slægð hans og pólitíska dómgreind.
Leikið tveimur skjöldum
Verra var þó fyrir Þjóðverja að Mar-
okkó-deilan varð til þess að styrkja
samband Breta og Frakka, en
eitt lykilatriði þýskrar
utanríkisstefnu var að
tryggja að þessar gömlu
fjandþjóðir yrðu ekki
of nánar. Þetta var þeim
mun bagalegra þar sem
Þjóðverjum var mikið í
mun að sannfæra Breta
um að stórfelld flotaupp-
bygging þeirra beindist
ekki sérstaklega að Bret-
landi.
Vilhjálmur II. hafði
ástríðufullan áhuga á smíði
stórra og öflugra herskipa
og varði löngum stundum
í að teikna upp hugmyndir
sínar um risaherskip,
þrátt fyrir að hafa ekki til
þess neina verkfræðilega
kunnáttu. Freistandi er að
tengja þetta herskipablæti
keisarans við hina mót-
sagnakenndu afstöðu hans
til Bretlands og viðleitni til
að gera sig breiðan í augum
frændfólks síns. Hins vegar
var útilokað annað fyrir
Breta en að líta á herskipa-
ævintýri Þjóðverja sem ögrun
í þeirra garð. Meginlands-
veldið Þýskaland gat komist
af án stóreflis herskipaflota,
en fyrir eyríkið Bretland voru
yfirburðir á höfunum algjör
forsenda þess að landið héldi stöðu
sinni í samfélagi þjóðanna.
Það var í ljósi þessa sem Vilhjálmur
II ákvað að fara í viðtal við breskt dag-
blað. Sá sem tók viðtalið var raunar
enginn blaðasnápur, heldur breskur
aðalsmaður sem skömmu áður hafði
lánað keisaranum höll sína meðan
á kurteisisheimsókn hans til bresku
hirðarinnar stóð. Markmið keisarans
var skýrt: að sannfæra Breta um hlýjan
hug sinn til þeirra með því að hamra
á fjölskyldutengslum sínum og minna
á að sjálfur hefði hann setið dögum
saman við rúmstokk Viktoríu ömmu
sinnar þegar hún lá banaleguna.
Þau áform urðu að engu. Þess í stað
tókst Vilhjálmi að móðga bæði landa
sína og flestar helstu ríkisstjórnir og
líta sjálfur út eins og fáráður. Minnis-
stæðasta setning viðtalsins var á þá
leið að Englendingar væru „óðir, óðir,
óðir eins og hérar“ að skilja ekki ást
keisarans á þeim – sem væri veru-
lega frábrugðin því sem hinn almenni
Þjóðverji hugsaði um Englendinga.
Keisarinn útskýrði að alls ekki
mætti líta á uppbyggingu flotans sem
aðför að Bretum, heldur væri tilgang-
urinn sá að vígvæðast gegn Japönum
– ummæli sem skiljanlega ollu lítilli
gleði í Tókýó. Þá reyndi Vilhjálmur
að sýna fram á hollustu sína við Breta
með því að saka Frakka og Rússa
um að hafa reynt að fá Þýskaland til
að blanda sér í Búastríðin fáeinum
árum áður til að tryggja niðurlægingu
Bretlands. Eins og nærri má geta var
mönnum hvorki skemmt í París né
Moskvu.
Eftir þessa alslemmu móðgana
braust út gríðarleg reiði í Þýskalandi.
Keisarinn hafði orðið sér til skammar
og stórskaðað utanríkishagsmuni
landsins. Háværar kröfur risu um
afsögn og sjálfur íhugaði keisarinn
alvarlega að láta af völdum. En böndin
bárust líka að kanslaranum Bernhard
von Bülow. Skrifstofa hans hafði
fengið afrit af viðtalinu fyrir birtingu
og samþykkt nær athugasemdalaust.
Hvernig gat staðið á slíkri hand-
vömm?
Kanslarinn sagðist hafa fengið
handritið í ólæsilegri handskrift
og áframsent til reynslulítils undir-
manns. Sagnfræðingar hafa þó leitt
í ljós að von Bülow hafði viðtalið í
tvígang vélritað undir höndum. Af
því hafa sumir leitt þær líkur að von
Bülow hafi í raun viljað að keisarinn
fengi skellinn í von um að geta knúið
hann til að taka upp þingræðisstjórn-
arhætti í Þýskalandi.
Aðrir efast um að kanslarinn hafi
haft neinar slíkar lýðræðisgrillur, en
líklegra sé að hann hafi viljað kenna
keisaranum lexíu til að draga úr
framhleypni hans í utanríkismálum,
en ekki áttað sig á hversu risavaxið
hneykslismálið yrði. Hvað sem því
líður markaði viðtalið í Daily Tele-
graph endalok stjórnmálaferils von
Bülows, því hann hafði glatað trausti
keisarans sem losaði sig við hann
skömmu síðar.
Vilhjálmur II. jafnaði sig aldrei eftir
niðurlæginguna. Orðspor hans hafði
beðið hnekki og forystumenn þýskra
stjórnmála og hersins töldu sig ekki
þurfa að taka tillit til hans á sama hátt
og áður. Þannig var hann að mestu
áhrifalaus á árum fyrri heimsstyrj-
aldarinnar, þótt breskar og franskar
áróðursmyndir létu oft eins og keisar-
inn bæri einn alla ábyrgð á stríðinu.
Og fyrir þróun mannkynssögunnar
hafði þetta versta blaðaviðtal allra
tíma þau áhrif að líkurnar á að byggja
brýr milli Breta og Þjóðverja minnk-
uðu enn frekar. Afleiðingin varð tvær
heimsstyrjaldir.
Versta viðtal
sögunnar
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson skrifar
um seinheppinn
keisara.
… tókSt Vilhjálmi
að móðga bæði landa
Sína og fleStar helStu
ríkiSStjórnir og líta
Sjálfur út einS og
fáráður.
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r58 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
A
1
-0
F
7
4
1
B
A
1
-0
E
3
8
1
B
A
1
-0
C
F
C
1
B
A
1
-0
B
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K