Fréttablaðið - 10.12.2016, Page 114

Fréttablaðið - 10.12.2016, Page 114
Ég sagði víst flest það, en þegar þú lest það þá virkar það alveg fatalt. Sem barnaleg þvæla, tóm vitleysa og stælar, samt sagði ég þeim þetta allt. En ég er ei svona, það ætl’ég að vona, ég meinti það allt saman vel. Þeir spurðu mig frétta, ég sagði allt af létta, mitt mannorð er brotið í mél. Í þessum átakanlega texta Þor-steins Eggertssonar segir frá vinsælli poppstjörnu sem verður fórnarlamb öfundar-manna á ritstjórn tímaritsins Samúels. Vanhugsað viðtal leggur ferilinn í rúst og söngvarinn sem áður dáleiddi allar stúlkur yngri en tuttugu og sex ára hættir að selja lög sín en eyðir þeim mun lengri tíma á hádegisbarnum. Sagan er full af sambærilegum dæmum um fólk sem lét vanhugsuð orð falla í blaðaviðtölum með afdrifa- ríkum afleiðingum. Listamenn hafa komið sér í vandræði og stjórnmála- menn eyðilagt feril sinn með þessum hætti. Ekkert viðtal hefur þó reynst jafnafdrifaríkt í mannkynssögunni og það sem Vilhjálmur II. Þýskalands- keisari veitti breska blaðinu Daily Telegraph árið 1908. Litlu mátti muna að viðtalið kostaði hann keisara- tignina og áhrifin á þýsk stjórnmál og alþjóðasamskipti reyndust varanleg. Orsakir þessa stærsta almanna- tengslaslyss tuttugustu aldar mátti finna í skapgerð keisarans. Vilhjálmur fæddist árið 1859 inn í prússnesku konungsfjölskylduna. Afi hans og nafni var krýndur konungur Prúss- lands tveimur árum síðar og átti á næstu árum eftir að gegna lykilhlut- verki í sameiningu þýsku smáríkjanna í eitt öflugt stórveldi. Það takmark náðist endanlega þegar Vilhjálmur var krýndur keisari Þýskalands í Versölum snemma árs 1871 í miðri styrjöld Frakka og Þjóðverja sem lauk með niðurlægjandi ósigri þeirra fyrr- nefndu. Ör valdaskipti Vilhjálmur I. fól kanslara sínum, Otto von Bismarck, stjórn ríkisins að mestu og má líta á Bismarck sem hinn raun- verulega valdhafa, þótt keisarinn væri alvaldur að nafninu til. Bismarck var átján árum yngri en keisarinn og var því undir það búinn að ráðskast með eftirmann hans, Friðrik III., sem tók við völdum að föður sínum látnum árið 1888. Friðrik III. var kvæntur Viktoríu prinsessu, elstu dóttur Viktoríu Breta- drottningar og horfði krónprinsinn mjög til Bretlands sem fyrirmyndar- samfélags. Hugðist hann sveigja stjórnarfarið í átt til bresks skipu- lags, með aukinni áherslu á þingræði. Vonlaust er segja til um hvernig glímu Bismarcks og nýja keisarans um völdin hefði lyktað, því áður en til krýningar- innar kom var Friðrik orðinn hel- sjúkur af krabbameini. Hann lést eftir aðeins 99 daga í embætti, sem féll nú í skaut sonar hans, hins 29 ára gamla Vilhjálms. Keisarinn ungi hafði allt aðra sýn á tilveruna en faðirinn. Samband hans við foreldrana var flókið og hann hafði andstyggð á dálæti þeirra á Bretlandi. Raunar átti Vilhjálmur alla tíð í ástar/ haturssambandi við Bretland, þar sem honum var meinilla við ættingja sína við bresku hirðina en þráði þó á sama tíma viðurkenningu þeirra. Best naut ríkisarfinn sín í hernum og hann lét sig dreyma um að feta í spor afa síns og stýra Þýskalandi til mikilla sigra á hernaðarsviðinu. Þær hugmyndir gengu í berhögg við stefnu Bismarcks sem vildi fremur dansa línudans í stór- veldapólitík Evrópu, halda friðinn við helstu grannríki en einbeita sér að uppbyggingu innviða. Gamli klækjarefurinn vildi fremur efla Þýskaland sem iðnveldi en að vinna ný landsvæði með hernaði í Evr- ópu eða elta önnur stórveldi út í nýlendukapphlaup á fjar- lægum slóðum. Í huga hins nýja keisara var varkárni Bismarcks merki um íhaldssemi og að gamli skarf- urinn hefði ekki lengur kjark og þor. Bismarck lét hins vegar fljótfærni og glanna- skap unga mannsins fara í taugarnar á sér og lét svo um mælt að keisarinn vildi helst eiga afmæli á hverjum degi og hugsaði aldrei um afleiðingar gjörða sinna. Vilhjálmur notaði fyrsta tækifæri sem gafst til að losa sig við Bismarck úr embætti. Eftirmenn hans á kanslarastóli reyndust mun jákvæðari fyrir hugmyndum um að Þýskaland gerði sig gildandi á alþjóða- vettvangi. Undir forystu Vilhjálms II. hófu Þjóðverjar þátttöku í nýlendu- kapphlaupinu. Bestu bitarnir voru þó flestir fráteknir og kostnaðurinn við að leggja undir sig og stofna nýlendur á kostarýrum svæðum reyndist meiri en ábatinn. Þá olli nýlendubröltið árekstrum við hin nýlenduveldin. Hvergi kom það skýrar fram en í deilunum um Marokkó árin 1905-6. Frakkar ásæld- ust yfirráð í landinu en Þýskalands- keisari hafði aðrar hugmyndir. Vil- hjálmur tók þá hvatvíslegu ákvörðun að halda til borgarinnar Tangier, ríða um hana á hvítum hesti og lýsa því yfir að Þýskaland styddi áframhald- andi yfirráð soldánsins á svæðinu. Ræðunni var ætlað að ögra Frökkum og um tíma leit út fyrir að stórstyrjöld brytist út í Evrópu vegna Marokkó. Svo fór þó að lokum að Þjóðverjar töpuðu störukeppninni, Frakkar fóru sínu fram og keisarinn var niður- lægður frammi fyrir öllum. Vöknuðu þá þegar efasemdir hjá ýmsum um slægð hans og pólitíska dómgreind. Leikið tveimur skjöldum Verra var þó fyrir Þjóðverja að Mar- okkó-deilan varð til þess að styrkja samband Breta og Frakka, en eitt lykilatriði þýskrar utanríkisstefnu var að tryggja að þessar gömlu fjandþjóðir yrðu ekki of nánar. Þetta var þeim mun bagalegra þar sem Þjóðverjum var mikið í mun að sannfæra Breta um að stórfelld flotaupp- bygging þeirra beindist ekki sérstaklega að Bret- landi. Vilhjálmur II. hafði ástríðufullan áhuga á smíði stórra og öflugra herskipa og varði löngum stundum í að teikna upp hugmyndir sínar um risaherskip, þrátt fyrir að hafa ekki til þess neina verkfræðilega kunnáttu. Freistandi er að tengja þetta herskipablæti keisarans við hina mót- sagnakenndu afstöðu hans til Bretlands og viðleitni til að gera sig breiðan í augum frændfólks síns. Hins vegar var útilokað annað fyrir Breta en að líta á herskipa- ævintýri Þjóðverja sem ögrun í þeirra garð. Meginlands- veldið Þýskaland gat komist af án stóreflis herskipaflota, en fyrir eyríkið Bretland voru yfirburðir á höfunum algjör forsenda þess að landið héldi stöðu sinni í samfélagi þjóðanna. Það var í ljósi þessa sem Vilhjálmur II ákvað að fara í viðtal við breskt dag- blað. Sá sem tók viðtalið var raunar enginn blaðasnápur, heldur breskur aðalsmaður sem skömmu áður hafði lánað keisaranum höll sína meðan á kurteisisheimsókn hans til bresku hirðarinnar stóð. Markmið keisarans var skýrt: að sannfæra Breta um hlýjan hug sinn til þeirra með því að hamra á fjölskyldutengslum sínum og minna á að sjálfur hefði hann setið dögum saman við rúmstokk Viktoríu ömmu sinnar þegar hún lá banaleguna. Þau áform urðu að engu. Þess í stað tókst Vilhjálmi að móðga bæði landa sína og flestar helstu ríkisstjórnir og líta sjálfur út eins og fáráður. Minnis- stæðasta setning viðtalsins var á þá leið að Englendingar væru „óðir, óðir, óðir eins og hérar“ að skilja ekki ást keisarans á þeim – sem væri veru- lega frábrugðin því sem hinn almenni Þjóðverji hugsaði um Englendinga. Keisarinn útskýrði að alls ekki mætti líta á uppbyggingu flotans sem aðför að Bretum, heldur væri tilgang- urinn sá að vígvæðast gegn Japönum – ummæli sem skiljanlega ollu lítilli gleði í Tókýó. Þá reyndi Vilhjálmur að sýna fram á hollustu sína við Breta með því að saka Frakka og Rússa um að hafa reynt að fá Þýskaland til að blanda sér í Búastríðin fáeinum árum áður til að tryggja niðurlægingu Bretlands. Eins og nærri má geta var mönnum hvorki skemmt í París né Moskvu. Eftir þessa alslemmu móðgana braust út gríðarleg reiði í Þýskalandi. Keisarinn hafði orðið sér til skammar og stórskaðað utanríkishagsmuni landsins. Háværar kröfur risu um afsögn og sjálfur íhugaði keisarinn alvarlega að láta af völdum. En böndin bárust líka að kanslaranum Bernhard von Bülow. Skrifstofa hans hafði fengið afrit af viðtalinu fyrir birtingu og samþykkt nær athugasemdalaust. Hvernig gat staðið á slíkri hand- vömm? Kanslarinn sagðist hafa fengið handritið í ólæsilegri handskrift og áframsent til reynslulítils undir- manns. Sagnfræðingar hafa þó leitt í ljós að von Bülow hafði viðtalið í tvígang vélritað undir höndum. Af því hafa sumir leitt þær líkur að von Bülow hafi í raun viljað að keisarinn fengi skellinn í von um að geta knúið hann til að taka upp þingræðisstjórn- arhætti í Þýskalandi. Aðrir efast um að kanslarinn hafi haft neinar slíkar lýðræðisgrillur, en líklegra sé að hann hafi viljað kenna keisaranum lexíu til að draga úr framhleypni hans í utanríkismálum, en ekki áttað sig á hversu risavaxið hneykslismálið yrði. Hvað sem því líður markaði viðtalið í Daily Tele- graph endalok stjórnmálaferils von Bülows, því hann hafði glatað trausti keisarans sem losaði sig við hann skömmu síðar. Vilhjálmur II. jafnaði sig aldrei eftir niðurlæginguna. Orðspor hans hafði beðið hnekki og forystumenn þýskra stjórnmála og hersins töldu sig ekki þurfa að taka tillit til hans á sama hátt og áður. Þannig var hann að mestu áhrifalaus á árum fyrri heimsstyrj- aldarinnar, þótt breskar og franskar áróðursmyndir létu oft eins og keisar- inn bæri einn alla ábyrgð á stríðinu. Og fyrir þróun mannkynssögunnar hafði þetta versta blaðaviðtal allra tíma þau áhrif að líkurnar á að byggja brýr milli Breta og Þjóðverja minnk- uðu enn frekar. Afleiðingin varð tvær heimsstyrjaldir. Versta viðtal sögunnar Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um seinheppinn keisara. … tókSt Vilhjálmi að móðga bæði landa Sína og fleStar helStu ríkiSStjórnir og líta Sjálfur út einS og fáráður. 1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r58 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 0 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 1 5 2 s _ P 1 3 1 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 1 1 4 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B A 1 -0 F 7 4 1 B A 1 -0 E 3 8 1 B A 1 -0 C F C 1 B A 1 -0 B C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 5 2 s _ 9 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.