Fréttablaðið - 10.12.2016, Blaðsíða 120
Útför
Steingríms Gauts
Kristjánssonar
lögmanns og fyrrverandi
héraðsdómara,
fer fram frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 14. desember kl. 15.00.
F.h. aðstandenda,
Guðrún Einarsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Sverrir Helgason
Sléttuvegi 31, Reykjavík,
sem lést þriðjudaginn 6. desember
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 13. desember klukkan 13.
Þeir sem vilja minnast hans láti
Krabbameinsfélag Íslands njóta þess.
Óskar Sverrisson Eiríksína Hafsteinsdóttir
Jón Sverrir Sverrisson Margrét Steindórsdóttir
Helgi Sverrisson Sigurborg K. Stefánsdóttir
Sigríður Ragna Sverrisdóttir Sigurbjörn J. Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Erla Guðlaug Eyjólfsdóttir
Álfaskeiði 86, Hafnarfirði,
lést á heimili sínu sunnudaginn
4. desember. Útför hennar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn
14. desember klukkan 13.
Björn Kristmann Guðmundsson
Rúnar Sigurður Guðlaugsson Hulda Kristjánsdóttir
Guðmundur St. Björnsson Fríða Kr. Jóhannesdóttir
Eyjólfur A. Björnsson Sunneva G. Kolbeinsdóttir
Bergþóra Pálína Björnsdóttir Reynir Smári Markússon
og fjölskyldur þeirra.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og stuðning við andlát
og útför elskulegrar eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður, dóttur, systur
og mágkonu,
Dagmarar Hrannar
Guðnadóttur
Sóleyjarima 9, í Reykjavík,
sem lést þann 3. nóvember 2016. Stuðningur ykkar allra
er ómetanlegur og fer í sjóð minninganna og fléttast þar
saman við aðrar góðar minningar sem við eigum. Innilegar
þakkir skulu færðar til þeirra sem önnuðust hana síðustu
vikurnar, starfsfólksins á Reykjalundi, deildar 6A og
gjörgæsludeildar Landspítalans í Fossvogi.
Guðmundur Eiríksson
Guðni Eiríkur Guðmundsson Hanna Björg Sigurðard.
Guðni Arnberg Þorsteinsson Hallgerður Á. Þórðardóttir
Þorsteinn Arnberg Guðnason Ingigerður Þórðardóttir
og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hrefna Jónsdóttir
lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
mánudaginn 5. desember síðastliðinn.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Birgir Þór Gunnarsson Guðrún Erna Gunnarsdóttir
Erla Björk Gunnarsdóttir Angantýr Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Okkar yndislega móðir, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Ragnheiður Þyri Jónsdóttir
matráðskona,
lést 6. desember. Starfsfólki á
deild 3 á Hrafnistu í Hafnarfirði eru
færðar sérstakar þakkir fyrir alúðlega
umönnun og hlýju þann tíma sem hún bjó þar. Hún verður
jarðsungin frá Langholtskirkju 15. desember kl. 15.00.
Júlía Imsland Ragnar Imsland
barnabörn og makar, barnabarnabörn og makar og
barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát
og útför okkar ástkæru
Ingibjargar Helgu
Óskarsdóttur
hjúkrunarfræðings
og heiðruðu minningu hennar. Innilegar þakkir til
Hjúkrunarheimilisins Sóltúns fyrir góða umönnun.
Guð blessi ykkur og gefi gleðileg jól.
Alfreð S. Jóhannsson Magdalena Sigurðardóttir
Ingibjörg Ósk Jónsdóttir Ólafur Gunnarsson
Eiríkur Jónsson Oddný Sigurðardóttir
Ferdinand Jónsson Ishaiga Jalloh
Hylla framlag læknisins
til skipulags fyrir einni öld
Í tilefni 100 ára útgáfuafmælis ritsins Um skipulag bæja eftir Guðmund Hannesson lækni
hefur það verið endurútgefið ásamt nýju riti, Aldarspegli, þar sem litið er til baka.
Skipulagið hans Guðmundar kemur lygilega vel undan öld-inni og hefur staðist vel tímans tönn,“ segir Ásdís Hlökk Theó-dórsdóttir skipulagsfræðingur. Þar á hún við hugmyndir sem
Guðmundur Hannesson læknir setti fram
í ritinu Um skipulag bæja sem út kom árið
1916. Það hefur nú verið gefið út aftur, auk
annars rits, Aldarspegils, þar sem nútíma-
fólk eins og Ásdís metur þessar hundrað
ára gömlu hugmyndir.
En veit hún af hverju lækninum voru
skipulagsmál svona hugleikin?
„Þegar Guðmundur var í sínu námi í
Danmörku þá setti hann sig vel inn í það
nýjasta sem var að gerast í skipulagskenn-
ingum og uppbyggingu bæja í Evrópu.
Afleiðingar iðnvæðingarinnar voru þar
skýrar, miklir flutningar fólks úr sveitum
í borgir og við farsóttir var að etja sem
stöfuðu af óheilnæmu húsnæði, skorti á
hreinu vatni og ófullnægjandi fráveitum.
Því voru náin tengsl milli viðfangsefna í
skipulagsvinnu og heilbrigðismálum. Það
er eflaust þannig sem hans áhugi kviknar.
Auk þess að koma út áðurnefndu riti
1916 var Guðmundur hvatamaður að
fyrstu skipulagslögum landsins árið 1921.
Með þeim varð til formleg nefnd sem var
falið að vinna skipulag fyrir þéttbýlisstaði,
kauptún og sjávarþorp. Sjálfur hlaut hann
sæti í þeirri nefnd sem sérfræðingur á sviði
heilbrigðismála. Hinir voru Guðjón Samú-
elsson, húsameistari ríkisins og Geir Zoëga
vegamálastjóri. Þeir fóru um landið og
unnu skipulag að meira og minna öllum
þéttbýlisstöðum. Þær hugmyndir sem
Guðmundur setti fram í bók sinni lágu þar
til grundvallar og nefndin hvatti hrepps-
nefndir til að kynna sér bókina.“
Þótt þetta virðist hafa verið einfalt fyrir-
komulag hvað stjórnsýslu varðar hrósar
Ásdís Hlökk Guðmundi lækni fyrir víð-
sýni. „Hann er ekki bara að hugsa um
línur og lagnir og lóðir og götur, hann
hugsar um fagurfræði, jöfnuð, rekstur
sveitarfélaga og þarfir atvinnulífsins. Þetta
rit er ekkert gríðarlegt að vöxtum, rúmar
200 síður, en það kemur mörgu að og nú
þegar öld er liðin frá útgáfu þess fannst
okkur við hæfi að endurútgefa það og um
leið að hylla framlag Guðmundar til þessa
málaflokks.
Lendingin var að fara í tveggja binda
útgáfu, annað bindið er endurúrgefið rit
Guðmundar en hitt nefnist Aldarspegill og
þar eru fjögur úr bransanum með greinar
auk þess sem hjónin Sigrún Magnúsdóttir
umhverfisráðherra og Páll Pétursson skrifa
kafla um Guðmund sjálfan. Guðmundur
var afabróðir Páls og þau hjón búa að
safni með bréfum sem fóru á milli þeirra
bræðra.
„Niðurstaða okkar allra er sú að það sé
sérstakt hvað þessi maður var framsýnn
og ég tel áhugavert fyrir þá sem vinna við
skipulagsmál að kynna sér tillögur hans.“
gun@frettabladid.is
Hann er ekki bara að hugsa um
línur og lagnir og lóðir og götur,
hann hugsar um fagurfræði,
jöfnuð, rekstur sveitarfélaga og
þarfir atvinnulífsins.
Aldarspegill
Í Aldarspegli beinir Ásdís Hlökk
sjónum að bæjarmynd og byggða-
mynstri, Pétur H. Ármannsson fjallar
um húsagerð og hönnun, Salvör Jóns-
dóttir skoðar félagslega og efnahags-
lega þætti skipulagsmála og Dagur B.
Eggertsson skrifar um tengsl lýðheilsu
og skipulags. Loks bregða Páll Péturs-
son og Sigrún Magnúsdóttir ljósi á
persónu og lífshlaup Guðmundar
Hannessonar.
Ásdís Hlökk telur áhugavert fyrir alla sem vinna við skipulagsmál að kynna sér tillögur Guðmundar Hannessonar læknis. Fréttablaðið/GVa
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r64 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
A
1
-4
A
B
4
1
B
A
1
-4
9
7
8
1
B
A
1
-4
8
3
C
1
B
A
1
-4
7
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K