Fréttablaðið - 10.12.2016, Blaðsíða 28
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r28 s p o r t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
sport
körFUboLti Sigurður Ingimundar-
son, þjálfari karlaliðs Keflavíkur,
hefur aðeins getað stýrt liðinu í
einum leik í vetur vegna veikinda
sem komu upp skömmu fyrir tíma-
bilið.
„Eins og staðan er núna ætla ég
að taka mér frí fram yfir áramót og
planið er svo að koma inn á fullu
eftir það,“ segir þjálfarinn en hvað
nákvæmlega hefur verið að plaga
hann?
Mín ákvörðun að stíga til hliðar
„Ég lenti í smá leiðindum með
hjartað sem varð taktlaust og vit-
laust. Ég vildi laga það almennilega.
Ég hef verið að vinna í því vanda-
máli síðustu vikur og það var mín
ákvörðun að stíga til hliðar meðan
ég væri að því. Ég lenti í þessu fyrir
tíu árum og þá tók svolítinn tíma
að fá mig góðan. Svo varð það allt
gott. Fyrst þetta kom aftur núna
ákvað ég að hætta strax og byrja að
fá mig góðan. Ég er að verða nokkuð
sprækur.“
Sigurður segir að aðalatriðið hjá
sér sé að fá sig góðan áður en hann
fer á fullt að stýra Keflavíkurliðinu á
nýjan leik. „Körfuboltinn fer ekkert.
Hann verður þarna áfram.“
Margt sem þarf að laga
Gengi Keflavíkur hefur verið
á stöðugri niðurleið og á
fimmtudagskvöldið féll liðið
niður í fallsæti. Ekki sjón
sem Keflvíkingar eru vanir.
Eftir frábæran sigur á
Tindastóli í byrjun tapaði
liðið fimm leikjum
í röð og flestum
þ e i r r a l e i k j a
tapaði liðið illa.
Liðið náði samt
langþráðum sigri
á Akureyri í gær. „Ég er ekki með
nein svör á reiðum höndum um
hvað hefur vantað hjá okkur. Það
eru alls konar hlutir sem þarf að
laga hjá okkur. Vonandi gengur það
eftir fljótlega að laga það. Besti mað-
urinn kom, fór svo út og kom aftur.
Það þarf að aðlaga ýmsa hluti,“ segir
Sigurður og er þar að tala um Hörð
Axel Vilhjálmsson sem kom síðasta
sumar, fór svo út fyrir tímabilið en
sneri aftur á dögunum.
„Hörður er frábær leikmaður og
við erum með fleiri góða leikmenn.
Ég held það sé bara tímaspursmál
hvenær þetta smelli hjá okkur.“
Höfum verið arfaslakir
Keflavík vann Tindastól stórt, 101-
79, þann 3. nóvember en hvað
nákvæmlega gerðist svo hjá liðinu?
„Við höfum verið arfaslakir en
ég hef ekki verið nógu mikið í
kringum liðið í vetur til að átta mig
almennilega á því hvað sé
að. Þó svo liðið sé í smá
krísu núna þá er þetta
ekkert sem við höfum
áhyggjur af. Við vitum
alveg hvað býr í liðinu,“
segir þjálfarinn en
einhverjir hafi
bent á að það
vanti Kefla-
víkurandann
í liðið. Það
sé að hluta
til af því
að hrein-
r æ k t a ð i r
Keflvíkingar sér ekki lengur í lykil-
hlutverkum hjá liðinu.
„Það eru örugglega einhverjir
sem finnst það en þetta er staðan
sem við erum í núna. Við erum með
þessa leikmenn. Við erum ánægðir
með þá og þetta eru góðir leikmenn.
Við munum finna rétta taktinn.
Það er alveg klárt. Leikmennirnir
eru staðráðnir í því að bæta sig og
komast aftur á sigurbraut. Ég per-
sónulega hef engar áhyggjur af því
að það gerist ekki.“
Ekkert stress
Þjálfarinn sigursæli segir að það sé
ekki verið að grípa til neinna sér-
stakra ráðstafana til þess að koma
liðinu í gang á nýjan leik. Það er ekki
búið að hringja í neinn sálfræðing.
„Það er bara verið á fullu á hverri
æfingu og reynt að verða betri.
Menn vita að við getum orðið betri
og ágætt að hafa það bak við eyrað
er það gengur illa. Andinn er mjög
góður og menn eru alls ekki að
missa sig í neinu stressi yfir þessu,“
segir Sigurður, en hvernig tilfinning
var það fyrir sigursælan Keflvíking
að sjá Keflavík í fallsæti í desember?
„Hún var sérstök. Af því að ég veit
að við munum snúa þessu við þá er
ég rólegur yfir þessu.“
henry@frettabladid.is
Hjartað varð taktlaust
Sigurður Ingimundarson mun ekki stýra liði Keflavíkur aftur fyrr en eftir ára-
mót. Hann lenti í hjartveikindum rétt fyrir tímabil en segist vera á góðum bata-
vegi. Hann hefur engar áhyggjur af lélegu gengi Keflavíkur framan af vetri.
Sigurður er hér að brýna sína menn í leik Hauka og Keflavíkur. Það er eini leikurinn þar sem Sigurður hefur stýrt Keflavíkurliðinu í vetur. fréttablaðið/Ernir
innkoma Harðar
axels dugði ekki
til að kveikja á
Keflavíkurliðinu.
fréttablaðið/Ernir
Ég lenti í þessu fyrir
tíu árum og þá tók
svolítinn tíma að fá mig
góðan. Fyrst þetta kom aftur
núna ákvað ég að hætta strax
og byrja að fá mig góðan.
Sigurður Ingimundarson
Haukar - Stjarnan 67-70
Stigahæstir: Sherrod Nigel Wright 31 (13
frák./5 stoðs.), Finnur Atli Magnússon 10,
Breki Gylfason 8, Ívar Barja 7 - Hlynur Elías
Bæringsson 17 (12 frák.), Devon Andre
Austin 15, Justin Shouse 13, Marvin Valdi-
marsson 11, Tómas Heiðar Tómasson 9.
Þór Þorl. - Skallagrím. 74-76
Stigahæstir: Tobin Carberry 33 (15 frák.),
Maciej Baginski 14, Halldór Garðar Her-
mannsson 10 - Flenard Whitfield 21 (16
frák.), Magnús Þór Gunnarsson 13, Darrell
Flake 11, Sigtryggur Arnar Björnsson 9,
Davíð Ásgeirsson 8.
Þór ak. - Keflavík 77-89
Stigahæstir: George Beamon 28, Darrel
Keith Lewis 18 (10 frák.), Danero Thomas
17 - Amin Stevens 41 (17 frák.), Hörður Axel
Vilhjálmsson 20 (7 stoðs.), Reggie Dupree
12, Guðmundur Jónsson 8.
Keflvíkingar enduðu fjögurra leikja tap-
hringu í Domino’s deildinni á Akureyri
í gær og unnu sinn fyrsta deildarsigur
síðan 3. nóvember. Sigurinn þýddi líka að
Njarðvíkingar eru komnir niður í fallsæti í
deildinni sem eru stórtíðindi.
Efri
KR 16
Tindastóll 16
Stjarnan 16
Grindavík 12
Skallagrímur 10
Þór Ak. 10
neðri
Haukar 8
Þór Þ. 8
ÍR 8
Keflavík 8
Njarðvík 8
Snæfell 0
Nýjast
Domino’s-deild karla
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
A
1
-4
A
B
4
1
B
A
1
-4
9
7
8
1
B
A
1
-4
8
3
C
1
B
A
1
-4
7
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K