Fréttablaðið - 10.12.2016, Síða 24
Súrrandi brilljant út í gegn
Halla Oddný Magnúsdóttir,
dagskrárgerðarmaður, RUV
★★★★
Magnþrungin saga
Júlía M. Alexandersdóttir, MORGUNBLAÐIÐ
★★★★
Líkt og kúbískt listaverk
Jóhanna María Einarsdóttir, DV
Listavel gert … hefur afburðatök á því sem hún er að gera
Steinunn Inga Óttarsdóttir, KVENNABLAÐIÐ
Þetta er vægast sagt spennandi bók
Jórunn Sigurðardóttir, Orð um bækur, RUV
Draumkennd framvindan dregur mann inn í verkið,
forvitnin um heimildina knýr lesturinn áfram
Gunnþórunn Guðmundsdóttir, HUGRÁS
Vel skrifuð. Mjög vel hugsuð. Mér finnst hún býsna góð
Kolbrún Bergþórsdóttir, KILJAN
Vakti þar til ég var búinn með þessa klukkan tvö í nótt
Hún er góð. Mjög góð
Stefán Pálsson, sagnfræðingur
Grunnhugmyndin að verkinu snjöll. Mjög pælt verk
Sigurður Valgeirsson, KILJAN
Ný rödd í íslenskri skáldsagnalist
Jóhann Helgi Heiðdal, STARAFUGL
Uppfull af snilldarlegum kontrapunkti forms og inntaks
Halla Oddný Magnúsdóttir
Afar eftirminnileg lestrarupplifun og þrátt fyrir alvarlegan
undirtón er í honum hárfínn lágstemmdur húmor
Júlía M. Alexandersdóttir, MORGUNBLAÐIÐ
Margslungin og áhrifarík skáldsaga þar sem
hárnákvæmur stíll og hugvitssamleg uppbygging mætast
Dómnefnd um FJÖRUVERÐLAUN
Eftir höfund bókanna
Þóra biskups og
Sigrún og Friðgeir. Ferðasaga
Smekkleysa sm
TILNEFND
E
gi
ll
B
al
du
rs
so
n
AUGLÝSINGIN_NOTA ÞESSA 5. DES..qxp_Layout 1 9.12.2016 13:46 Page 1
Alþingi, það er réttur þinn og skylda, það er hlutverk þitt að stjórna landinu í sam-
ræmi við vilja fólksins sem byggir
það. Þú hefur hins vegar engan rétt
til þess að brjóta gegn vilja fólksins
þegar það hefur tjáð hann þannig
að ekki verði um villst. Þess vegna
skaltu hafa það í huga að það yrði
eftir því tekið ef þú samþykktir
það frumvarp til fjárlaga fyrir árið
2017 sem nú liggur fyrir og litið á
það sem dæmi um Ginnungagap
milli þings og þjóðar, brot á rétti
þess síðari, framið af þeim fyrri.
Þú glataðir trausti þjóðarinnar
við Hrunið og þér hefur gengið illa
að vinna það aftur. Fjárlagafrum-
varpið veitir þér núna tækifæri til
þess að sannfæra þjóðina um að þú
berir hag hennar þér fyrir brjósti,
fyrst og fremst, og hafnir því að
gera mistök einstakra ráðherra að
þínum, þótt meðal þeirra kunni
að vera formaður þess stjórn-
málaflokks sem telur innan sinna
raða fleiri einstaklinga sem mynda
þig en nokkur annar flokkur. Það
er einnig eins gott fyrir þig, kæra
Alþingi, að gera þér grein fyrir því
að ef þú samþykkir fjárlagafrum-
varpið í núverandi mynd er fullt
eins líklegt að forsetinn neyðist til
þess að nýta sér málsskotsréttinn
og vísa því til þjóðarinnar, vegna
þess að það gengur klárlega í ber-
högg við þann vilja sem hún hefur
tjáð á ýmsan máta.
Nú skulum við skoða röksemdir
sem styðja þá skoðun mína að fjár-
lagafrumvarp Bjarna Benedikts-
sonar stangist á við vilja þjóðar-
innar og sé í raun réttri helber
dónaskapur:
Heilbrigðiskerfi landsins er ekki
þess megnugt að sinna hlutverki
sínu vegna langvinns fjársveltis,
sem eitt og út af fyrir sig hefði nægt
til þess að lama það, en hefur líka
getið af sér glundroða sem hefur
bætt gráu ofan á svart og heimtar
endurskipulagningu kerfisins.
Á síðustu átján mánuðum hefur
þjóðin vaknað til meðvitundar
um vandamál heilbrigðiskerfisins
og sett fram harðorðar kröfur um
að betur sé hlúð að því. Til dæmis
skrifuðu 86.500 Íslendingar, 18
ára og eldri, undir þá kröfu að
Alþingi veitti 11% af vergri lands-
framleiðslu til rekstrar heilbrigðis-
kerfisins á ári hverju.
Allir stjórnmálaflokkarnir hétu
því fyrir kosningar að beita sér
fyrir endurreisn heilbrigðiskerfis-
ins ef þeir enduðu í ríkisstjórn,
þar á meðal Sjálfstæðisflokkurinn.
Landspítalinn er þungamiðja heil-
brigðiskerfisins. Stjórnendur hans
áttu fundi með forráðamönnum
stjórnmálaflokkanna fyrir kosn-
ingar og reyndu að sýna þeim fram
á að það þyrfti að bæta 14 millj-
örðum við rekstrarfé Spítalans til
þess að hann gæti sinnt hlutverki
sínu sómasamlega eins og það
er skilgreint í dag. Fjárlagafrum-
varp Bjarna Benediktssonar gerir
ráð fyrir því að Spítalinn fengi
einungis 4 milljarða í viðbót en
þar af væru rúmlega 3 milljarðar
verðbætur þannig að raunveruleg
aukning yrði einungis rúmlega 800
milljónir króna.
Það er engum vafa undirorpið
að fólk þjáist og deyr jafnvel af
völdum þess hvað spítalinn er illa
í stakk búinn til þess að sinna því.
Þjóðin gerir sér grein fyrir þessu og
krefst þess að þetta sé lagað. Bjarni
Benediktsson hunsar þessa kröfu
þjóðarinnar í fjárlagafrumvarpi
sínu, sem gerir þó ráð fyrir því að
ríkissjóður skili 28 milljarða króna
afgangi á næsta ári og skattar og
tollar séu lækkaðir. Þessi afgangur
er borð fyrir báru sem er ætlað að
draga úr hættunni á því að ríkis-
sjóður líti bókhaldslega illa út í
lok næsta árs. Afleiðingin af þessu
borði fyrir báru sem fjármálaráð-
herra ætlar sér er aukin hætta sem
steðjar að þeim sem eru meiddir
og lasnir og þurfa að leita til Spít-
alans.
Þetta er nístingskalt. Þetta er
ljótt. þetta er með öllu óásættan-
legt. En þetta á ekki rætur sínar í
grimmd fjármálráðherrans okkar,
sem er góður maður, heldur ann-
ars vegar í því að hann virðist ekki
skynja vandamál venjulegs fólks
og lítilmagnans og hins vegar í
hégómagirnd hans sem vill hafa
brilljantín greiddan ríkisreikning
í lok 2017. En Alþingi Íslendinga,
þú mátt ekki gleyma því að það
er á þínu valdi að koma í veg fyrir
að frumvarpið verði að lögum og
mæta á þann veg vilja fólksins í
landinu.
Þegar fjölmiðlafólk hefur leyft
sér að gagnrýna fjárlagafrum-
varpið hefur Bjarni gjarnan brugð-
ist við með forundran og sagt að
fólkið í landinu hafi aldrei haft
það betra en í dag, hann skilji ekki
þetta vanþakklæti. Það hefur líka
vottað fyrir svolitlum hroka, lík-
lega vegna þess að honum finnst
hann hafi verið góður strákur og
lagt töluvert af mörkum til þess að
lýðurinn sé í svona góðum málum.
Þetta er einfaldlega ekki rétt, nema
hann takmarki notkun sína á
heitinu, fólkið í landinu, við ríkis-
bubba eins og mig og hann sjálfan.
Ástandið er allt annað hjá venju-
legum launþegum, að maður tali
nú ekki um þá sem eru lasnir eða
meiddir eða eru að reyna að kaupa
sína fyrstu íbúð eða eru börn
eða unglingar eða ungmenni að
brjótast til menntunar. Honum
gleymist að venjulegt fólk í okkar
samfélagi sækir meiri verðmæti
í velferðarkerfið en í nokkurn
annan stað á ævi sinni, skólakerfið
til þess að mennta börnin sín, heil-
brigðiskerfið þegar eitthvað bjátar
á og húsnæðiskerfið til þess að
kaupa sína fyrstu íbúð.
Heilbrigðiskerfið er í rusli,
nýjustu kannanir benda til þess
að menntakerfið sé í engu betri
málum og það hefur aldrei verið
erfiðara fyrir ungt fólk að kaupa
sitt fyrsta húsnæði. Venjulegir
launþegar á Íslandi eru verr settir
en oft áður vegna þess að velferð-
arkerfið hefur verið vanrækt. Fjár-
málaráðherra gleymist að það ger-
ist svo ótrúlega margt utan debit
og kredit dálka ríkisfjármála af
þeirri gerð sem ærlegt fólk vill að
sé gert upp í lok árs eins og 2017.
Það eru líka áleitnar spurningar
sem Bjarni forðast eins og heitan
eldinn í frumvarpinu sínu, eins
og til dæmis hvernig beri að færa
við uppgjör ríkisfjármála 75.000
klukkutíma af sársauka og 100.000
klukkutíma af annarri vanlíðan
sem hefði verið hægt að forðast
með því að hlúa betur að Spítal-
anum, 300 ónauðsynlega dauð-
daga fyrir aldur fram og óteljandi
klukkutíma af sorg og angist þeirra
sem eftir lifðu. Stjórnmálamaður
sem á jafn auðvelt og Bjarni Bene-
diktsson með að forðast spurn-
ingar af þessu tagi og er í jafn litlu
sambandi við örlög venjulegs fólks
í landinu er ekki líklegri til þess
að geta leitt þjóðina í samfélagi
réttlætis og kærleika en einfættur
maður að spila fótbolta í meistara-
deild.
Hæstvirt Alþingi Íslendinga,
þjóðin krefst þess að þú lesir fjár-
lagafrumvarpið í tætlur, sem víti til
varnaðar og lærir það utanbókar.
Helst ættir þú að varpa því yfir á
bundið mál þannig að það yrði
auðveldara fyrir komandi kyn-
slóðir að gera hið sama. Að lokum
þetta, ef þú átt í einhverjum erfið-
leikum með að hafna frumvarpinu
mundu að fyrir nokkrum dögum
sótti 100 ára gömul kona í okkar
samfélagi um vist á hjúkrunar-
heimili og var sett á biðlista. Það
er lítil huggun að því að þau
nákvæmu gögn sem við eigum í
íslensku samfélagi um lífslíkur
fólks benda til þess að hún verði
þar ekki mjög lengi.
Alþingi Íslendinga, þjóðin er
þinn herra, ekki satt?
Opið bréf til löggjafans
Kári Stefánsson
forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar
Hæstvirt Alþingi Íslendinga,
þjóðin krefst þess að þú lesir
fjárlagafrumvarpið í tætlur,
sem víti til varnaðar og lærir
það utanbókar. Helst ættir
þú að varpa því yfir á bundið
mál þannig að það yrði
auðveldara fyrir komandi
kynslóðir að gera hið sama.
Að lokum þetta, ef þú átt
í einhverjum erfiðleikum
með að hafna frumvarpinu
mundu að fyrir nokkrum
dögum sótti 100 ára gömul
kona í okkar samfélagi um
vist á hjúkrunarheimili og
var sett á biðlista.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r24 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
A
1
-2
3
3
4
1
B
A
1
-2
1
F
8
1
B
A
1
-2
0
B
C
1
B
A
1
-1
F
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K