Fréttablaðið - 10.12.2016, Síða 30
FRÍKIRKJAN - FRÍKIRKJUSÖFNUÐURINN - LOGO B3
FRÍKIRKJAN
Í REYKJAVÍK
FRÍKIRKJAN
Í REYKJAVÍK
Í FULLUM LITUM / TVÍLITT1 LITUR - GRÁTÓNAR 1 LITUR - STIMPLAR - GYLLING
FRÍKIRKJAN
Í REYKJAVÍK
FRÍKIRKJAN
Í REYKJAVÍK
Sunnudaginn 11. des kl 14:00 Jólatrésskemmtun Fríkirkjunnar í Reykjavík.
Hefst með jólastund í kirkjunni. Síðan verður haldið upp í
Safnaðarheimili og sungið og dansað í kringum jólatréð með
jólasveininum. Kaffi og meðlæti fyrir alla.
Þriðjudaginn 13. des kl 20:00 Tónleikar – Sönghópurinn við Tjörnina; Arne Hiorth – Gissur Páll
Einsöngvari verður Gissur Páll Gissurarson.
Sérstakur gestur tónleikanna verður norski trompetleikarinn og
stjórnandinn Arne Hiorth. Hljómsveitina skipa auk hans, Ásgeir
Ásgeirsson, Tómas R. Einarsson og Kristofer Rodriguez Svönuson.
Stjórnandi er Gunnar Gunnarsson, organisti Fríkirkjunna
Fimmtudaginn 15. des kl 20:00 Aðventukvöld, fjölbreytt og glæsilegt tónlistarkvöld.
Ræðu kvöldsins flytur rithöfundurinn Þórarinn Eldjárn. Fram koma
Stefanía Svavarsdóttir, söngkona, Sönghópurinn við Tjörnina,
Fríkirkjubandið ásamt Gunnari Gunnarssyni sem jafnframt er organisti
kirkjunnar og stjórnandi sönghóps, Barnakór Fríkirkjunnar undir stjórn
Álfheiðar Björgvinsdóttur og Sr.Hjörtur Magni.
Sunnudaginn 18. des kl 14:00 Heilunarguðsþjónusta á vegum Sálarrannsóknarfélags Íslands,
Fríkirkjunnar og Kærleikssetursins.
Laugardaginn 24. des kl 18:00 Aftansöngur á aðfangadagskvöldi.
Söngkonan Heiðdís Hanna Sigurðardóttir syngur einsöng.
Sönghópurinn við Tjörnina syngur jólin inn og leiðir safnaðar- söng
undir stjórn Gunnars Gunnarssonar. Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina.
Laugardaginn 24. des kl 23:30 Miðnætursamvera á jólanótt.
Ellen Kristjánsdóttir og dætur ásamt strengjasveit. Sr. Hjörtur Magni
talar til viðstaddra. Sönghópur Fríkirkjunnar ásamt Gunnari Gun-
narssyni. Mætið vel tímanlega til að fá góð sæti!
Sunnudaginn 25. des kl 14:00 Hátíðarguðsþjónusta á jóladag. Ljósanna hátíð fagnað með rísandi sól.
Egill Ólafsson söngvari syngur og spjallar um tónlistarval sitt. Sr. Hjörtur
Magni, Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni.
Laugardaginn 31. des kl 17:00 Aftansöngur á gamlársdag.
Hljómsveitin Eva ásamt Sönghópnum við Tjörnina leiða safnaðarsöng
ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista. Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina
Fríkirkjan í Reykjavík
Viðburðir á Aðventu og jólum
Stína fagnar útgáfu í Kaldalóni á
sunnudag.
Þetta eru nemendur af myndlistardeildinni í Listaháskólanum, BA-nemendur frá fyrsta ári upp í þriðja ár. Það er alls konar til sölu hjá
okkur: þarna verða prent, málverk,
teikningar og skúlptúrar,“ segir Vera
Hilmarsdóttir myndlistarkona og
ein af þeim sem verða með vörur
til sölu á jólamarkaði myndlistar-
deildar LHÍ sem verður haldinn í
Gym og tónik sal Kex hostels, það
er innri salnum, í dag frá ellefu til
fimm.
„Þetta verða allir þeir nemendur
úr þessum árgöngum sem vilja taka
þátt. Tilgangurinn með markaðnum
er að láta sjá sig og sjá aðra, sem er
svo mikilvægt fyrir listamenn, og
selja list fyrir jólin auðvitað. Það er
margt sem safnast upp hjá okkur í
náminu sem er gott að losna við.“
Á markaðnum er hægt að fá list á
hagstæðu verði en list er auðvitað
ágætis jólagjöf og því hægt að losna
við dass af jólastressi með því að
næla sér í listaverk í nokkra eða jafn-
vel alla pakka þarna á einum degi.
Síðan er hægt að líta á þetta sem fjár-
festingu, enda eru þetta myndlistar-
menn framtíðarinnar og því mögu-
leiki að ódýra jólagjöfin margfaldist
í verði þegar einhverjir nemendanna
slá óhjákvæmilega í gegn.
„Markaðurinn var haldinn sein-
ustu jól og hefur verið tvisvar núna
á árinu – bæði í mars og svo aftur í
júlí. Í þetta sinn verður meiri jóla-
bragur yfir þessu. Það er aldrei að
vita hvort það verði eitthvað meira í
gangi en þetta verður allavega mjög
lifandi markaður þarna hjá okkur.“
Það er tilvalið að halda upp á
aðventuna með að prútta við upp-
rennandi listamenn á Kexi hosteli
og losa sig í leiðinni við nokkra af
jólagjafa-gátlistanum. Á viðburða-
síðu markaðarins á Facebook má
svo líta á nokkur af þeim verkum
sem verða þarna í boði.
Verk upprennandi listamanna
Nemendur myndlistardeildar Listaháskóla Íslands halda jólamarkað á Kexi hosteli þriðja árið í röð. Þar verða til
sölu verk eftir þau og þarna verður vafalaust hægt að fá ódýrar gjafir eftir upprennandi myndlistarmenn.
Söngkonan Stína Ágústsdóttir heldur tónleika á sunndag í Kaldalóni í Hörpu tónlistar-
húsi og fagnar útgáfu sinnar þriðju
plötu, Jazz á íslensku. Stína samdi
textana sjálf og fékk hjálp við yfir-
lestur frá Þórarni Eldjárn. Stína
kemur fram ásamt þeim Sigurði
Flosasyni, Önnu Grétu Sigurðar-
dóttur, Einari Scheving og Þorgrími
Jónssyni.
Stína hefur starfað sem söngkona
í Reykjavík, Montreal og nú í Stokk-
hólmi. Hvernig er senan þar? „Hún
er ansi lifandi en djasssenan er jú
frekar lítil eins og gengur og gerist.
Það er mikið af mjög færu tón-
listarfólki í Stokkhólmi og svaka-
lega gaman að fá tækifæri til að
vinna með því. Ég skrifa þetta ein-
mitt á hótelherbergi í Norður-Sví-
þjóð, Hudiksvall, þar sem ég var að
syngja með verkefninu okkar Önnu
Grétu Sigurðardóttur sem heitir
Björkologi. Við erum á tónleika-
ferðalagi og höfum með okkur frá-
bæra tónlistarmenn, Max Schultz
(sem er eiginlega legend í Svíþjóð),
Sebastian Ågren (spilar mikið með
Eurovision-stjörnunni Erik Saade)
og Josef Karnebäck.“
Um hvað syngur þú? Um hvað
semur þú?
„Það er ofsalega misjafnt. Ég
nálgast texta og tónlist úr öllum
áttum. Stundum er það bara eitt
orð sem verður til þess að maður
fær innblástur, stundum lagbútur,
stundum einhver saga. Ást er mjög
oft viðfangsefnið en líka bara hvers-
dagslegir hlutir, það er hægt að gera
allt ljóðrænt.
Textarnir á plötunni eru mikið
innblásnir af lögunum en eitt lagið
(Ég veit einn gimstein) er t.d. samið
um ófætt barn og hluti af textanum
kom til þegar ég var ólétt. Annar er
innblásinn af flóttamannastraumn-
um í Evrópu (Vísa um veginn).
Stína er menntaður verkfræðingur
– hefur verkfræðin ekkert smitað
sönginn?
„Öll lífsreynsla skapar mann
náttúrulega og ég hef kannski ein-
hvern annan vinkil á tilveruna en
einhver sem hefur ekki lært verk-
fræði. Ég reyni alltaf að skjóta inn
tilvitnunum í eitthvað annað, texta,
lög, bækur, fólk í mínum textum og
afla mér upplýsinga í gríð og erg oft
á tíðum á meðan ég skrifa texta. Það
er kannski einhver fræðimennska
fólgin í því en ekki veit ég hvort hún
er tengd verkfræði.“ – kbg
Á morgun sunnudag:
Jazz á íslensku
„Þetta verða allir þeir nemendur úr þessum árgöngum sem vilja taka þátt, við verðum líklega um 20 til 30 manns þarna,“ segir
Vera Hilmars en hún og fleiri nemendur Listaháskólans ætla að selja verkin sín fyrir jólin á Kexi í dag. FréttabLaðið/Ernir
Stefán þór
Hjartarson
stefanthor@frettabladid.is
Ég nálgast texta
og tónlist úr öllum
áttum. stundum er
það bara eitt orð sem
verður til þess að
maður fær innblástur.
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r30 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
helgin
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
A
1
-5
E
7
4
1
B
A
1
-5
D
3
8
1
B
A
1
-5
B
F
C
1
B
A
1
-5
A
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K