Fréttablaðið - 10.12.2016, Side 36
við komin með iPhone í hendurnar.
Ég veit ekki hvers vegna við reynum
að aðgreina tæknina frá því sem við
búum til. Það er eins og að reyna að
skera handlegginn af sér. Það er ekki
raunsætt að segja að við séum góð
og við erum hérna megin en tæknin
er vond og köld og er hinum megin.
Ég vil búa til brú á milli. Tæknin er
hluti af okkur,“ segir Björk og segist
hafa þörf fyrir að nota tækni í sköpun
sinni. „Já, ég tala bara fyrir mig. En
til að vera heiðarleg þá finnst mér ég
þurfa að nota tæknina sem við erum
að þróa í dag. Við horfum á mynd
bönd, Netflix, notum síma og erum í
sambandi við ástvini okkar. Ég vil ekki
sleppa þessum tækniheimi, sem er
bara hversdagurinn. Ég vil skapa með
honum. Við erum öll tilfinningaverur
og þurfum á því að halda að finna því
farveg í þessu daglegu lífi. Með þeim
tækjum sem við notum. Ég held að
það sé mjög mikilvægt að skrá alla
vega hluta af okkar hjartans málum
með þessum verkfærum.“
Ábyrgari heimspeki pönksins
Hún segir heimspeki pönksins enn
þá eiga við.
„Þetta var sá jarðvegur sem ég
kom úr og snerist mjög mikið um
það að reiða sig ekki á aðra. Þessi
heimspeki var skýr á Smekkleys
utímanum og í Sykurmolunum. Að
gera sjálf. Að taka ábyrgð. Bíða ekki
eftir einhverri þróun heldur hafa
áhrif sjálf. Eftir því sem ég eldist þá
eflist ábyrgðartilfinningin sem í raun
fylgir pönkinu. Ég skil enn betur að
maður er sjálfur ábyrgur fyrir því
að færa fram í þjóðfélagið það sem
maður óskar eftir að verði hluti af
því. Ef maður gerir það ekki sjálfur,
þá gerir það enginn. Í eldgamla daga
þá þýddi þetta það að reiða sig ekki
á Skífuna eða Steinar. Ef maður var
ekki ánægður með músíkina sem var
gefin út, þá gerði maður hana bara
sjálfur. Lærdómurinn er sá að það
er ekki hægt að benda á neinn og
kenna neinum um. Það er bara hægt
að skapa nýtt, og það er viðhorf mitt
til þeirra verkefna sem ég er að sinna
í dag,“ segir Björk og á við framþróun
í sýndarveruleika, forritun og tónlist.
„Ég vil frekar reyna að vera þátt
takandi. Prófa mig áfram og spyrja
spurninga. Hvað ef? Hvað ef við
förum þessa leið?“
Mikil nálægð
Á sýningu Bjarkar setja gestir á sig
sýndarveruleikagleraugu og heyrnar
tól og fylgjast með Björk í 360 gráðu
sýn ganga á svartri ströndinni við
Gróttu í myndbandi við lagið Stone
milker. Nálægðin er mikil í mynd
bandinu. Björk dansar í kringum
áhorfandann á ströndinni. Lagið
fjallar um einhvern sem reynir að fá
tilfinningar út úr annarri manneskju.
Og lýsir þörf fyrir skýrleika og svör.
What is it
that I have
That makes me
feel your pain?
Like milking
a stone
to get you
to say it
Getur þú sagt nánar frá texta lags
ins? Og er það rétt að þú hafir í raun
samið þetta lag gangandi á strönd?
„Ég samdi lagið gangandi á Gróttu
þar sem lagið var kvikmyndað. Það er
falleg heilun að eftir að hafa ferðast til
Ástralíu, Asíu, Ameríku og Evrópu sé
lagið komið aftur heim. Það er hægt
að sjá ströndina út um gluggann á
Hörpunni! Við fengum myndavél
lánaða, eina fyrstu 360 gráðu töku
vélina, og þegar við vorum hér að
filma Black Lake var þetta svona
skyndiákvörðun sem við Andy
tókum kvöldinu áður. Mér finnst
upptakan nokkuð fersk þess vegna.“
Í því lagi, Black Lake, sem var
samið tveimur mánuðum eftir sam
bandsslitin, er lýst mikilli reiði.
Did I love you
too much
Devotion bent
me broken
So I rebelled
destroyed
the icon
Þú hefur sagt að þér fyndist erf
iðast af öllu að tala um þetta lag.
Hvers vegna?
„Ég lagði mikla vinnu í textana og
mér finnst vera ástæða fyrir því af
hverju texta eða ljóðformið gerir
okkur kleift að tjá hluti sem ekki
er hægt í daglegu lífi eða í samræð
um. Þessi fáu skipti sem maður nær
að raða orðunum á réttan hátt nær
maður spennu og orku sem flæðir
milli línanna og oft liggur það sem
hefur mesta meiningu í dvala þar í
þögninni. Svo það að útskýra of mikið
gæti dregið lífið úr þeirri tjáningu.“
Skapandi ævisaga og farangur
Á Vulnicura er einnig að finna lög
sem eru samin áður en sambands
slitin urðu. Eitt fjallar um móður
hennar, Hildi Rúnu Hauksdóttur.
Björk samdi það eftir erfið veikindi
móður sinnar og segir laglínurnar
ákveðið uppgjör og sjálfsskoðun.
When I’m broken,
I am whole
And when I’m
whole, I’m broken
Our mother’s
philosophy
It feels like quicksand
And if she sinks
I’m going down
with her
„Quicksand er eitt elsta lagið á
plötunni og er um samband mitt við
móður mína og hennar við móður
sína. Sem er frekar flókið. Við erum
öll með hlaðna sögu. Farangur sem
við fáum við fæðingu. Eitthvað sem
ég þarf að leysa úr til að létta farangur
dóttur minnar. Þetta er keðja, frá
móður til móður,“ segir Björk.
Sýndarveruleikinn fer
beint í heilann.
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r36 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
A
1
-3
2
0
4
1
B
A
1
-3
0
C
8
1
B
A
1
-2
F
8
C
1
B
A
1
-2
E
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K