Fréttablaðið - 10.12.2016, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 10.12.2016, Blaðsíða 40
Hlín Reykdal hönnuður hefur nýverið opnað verslun á Fiskislóð á Grandanum utan um skartgripa- hönnun sína sem flestum lands- mönnum er kunn. Þar hefur hún einnig vinnustofu, þar sem hönnun og framleiðsla skartgripa hennar fer fram. Eiginmaðurinn tekur virkan þátt í framleiðsluferli skartgripanna. Hlín útskrifaðist sem fatahönnuður úr Listaháskóla Íslands árið 2009, en segir skartið alltaf í aðalhlut- verki. Listin er henni í blóð borin, en foreldrar hennar eru báðir lands- þekktir myndlistarmenn. „Pabbi minn heitinn var list- málari og hét Jón Reykdal, hann lést árið 2013. Mamma mín heitir Jóhanna Þórðardóttir og er mynd- höggvari. Eldri systir mín, Hadda Fjóla, er einnig myndlistarmaður sem gerir mögnuð verk – ég veit að hún er systir mín en mér finnst hún vera með okkar betri samtíma- listamönnum!“ segir Hlín og stoltið leynir sér ekki. „Flestar ef ekki allar helgar í æsku okkar fóru í að vera með mömmu og pabba á listasýningum. Mér leiddist það aldrei sem barn. Ég hef elskað að teikna og skapa frá því að ég man eftir mér. Ég hafði alltaf aðgang að blýöntum, málningu og litum.“ Þau ferðuðust líka til útlanda til að berja helstu listamenn heimsins augum. „Við heimsóttum öll helstu listasöfnin. Ég man ekki betur en að mér hafi alltaf þótt það áhuga- vert og gaman – svo voru mamma og pabbi dugleg að segja okkur frá listamönnunum og vekja áhuga okkar á þeim.“ Kom stundum grátandi heim Hlín segir margt hafa verið gott í náminu við Listaháskólann, en það kom aldrei annað til greina en að leggja fjölskylduatvinnugreinina fyrir sig. Annað við skólann hafi mátt vera betra. „Það voru mjög margir áhuga- verðir kennarar – og aðrir sem voru algjörlega úti að aka. Ég byrjaði í Listaháskólanum, nýskriðin út úr menntaskóla og fannst rosalega gaman. Ég eyddi flestum stundum uppi í skóla eða við vinnuborðið mitt heima. Svo var pressa fyrir yfirferðirnar! Maður lagði sig allan fram en það kom fyrir að maður fékk harkalega dóma. Stundum fór maður grátandi heim úr þessum yfirferðum,“ rifjar Hlín upp, og brosir. „En það herti mann. Það sem ég myndi helst vilja gagnrýna í dag við skólann er að þegar yfirferðirnar voru, verið var að leggja dóm á verk manns, þá fékk maður ekkert alltaf þessa uppbyggilegu gagnrýni – af hverju þetta eða hitt væri gott eða vont. Ég tel það mikilvægt í kennslu að rýna til gagns.“ Í dag lifir Hlín af hönnun sinni, þó fyrstu árin hafi verið mögur. En er aldrei erfitt að ná endum saman? „Við skulum orða það svo að suma mánuði þarf maður að vera sparsamari en aðra,“ segir Hlín, hlæjandi og heldur áfram. „Mér finnst almennt mikill áhugi fyrir íslenskri hönnun og maður finnur stigvaxandi virðingu fyrir faginu. Þar hefur Hönnunar- miðstöð spilað stóra rullu, með Höllu Helgadóttur í fararbroddi. HönnunarMars er náttúrulega frábært framtak. Það er rosalega mikilvægt fyrir okkur hönnuði að eiga Hönnunarmiðstöð. Svo verð ég að nefna Eyjólf í Epal – hann er hreint út sagt frábær fyrir þennan bransa. Hefur komið alls konar samstarfsverkefnum á koppinn og verið mörgum ungum hönnuðum góður ráðgjafi.“ Almennt þyki henni gott á milli fólks í geiranum. „Mér finnst gott andrúmsloft á milli hönnuða og finnst þeir duglegir að hrósa hver öðrum þegar vel gengur. Einnig að Heimagerðar jólagjafir geta líka slegið í gegn Hlín Reykdal hönnuður rekur verslun í uppáhaldshverfinu sínu, Granda. Henni var boðin þátttaka í stórri skartgripasýningu í New York á næsta ári. Hlín gefur hugmyndir að heimagerðum jólagjöfum. Hlín eyðir mestum tíma sínum bak við búðarborðið í verslun sinni á Fiskislóð úti á Granda. Fréttablaðið/Ernir Vinnustofa Hlínar er inn af versluninni á Granda. Eiginmaðurinn tekur virkan þátt í framleiðslu skartgripanna. Fréttablaðið/Ernir deila upplýsingum um framleiðslu og annað.“ nýi Kjötbærinn En að versluninni sem Hlín rekur í nýja uppáhaldshverfinu sínu, Granda. „Þetta er svo skemmtilegt og sjarmerandi hverfi. Það er svo mikið af listamönnum og hönn- uðum allt í kring. Í dag er verið að opna fullt af sérverslunum, kaffi- og veitingahúsum. Sem dæmi opnaði OmNom-súkkulaði verslun rétt hjá okkur, á svipuðum tíma og við opn- uðum. Farmer’s Market hefur verið hér í lengri tíma,“ útskýrir Hlín. „Síðan var opnað mjög spennandi te- og kaffihús þar sem Granda- kaffi var áður, sem heitir Kumiko. Þau eru klárlega með besta heita súkkulaði á landinu einmitt gert úr OmNom-súkkulaði – talandi um samstarf á Grandanum! Vinkonur mínar í Reykjavík Letterpress voru líka að flytja í sömu götu og svo mætti lengi telja.“ Hún nefnir Val- dísi, Ostabúðina, Búrið, Matarbúrið – þar sem bóndinn sjálfur tekur á móti viðskiptavinum og afgreiðir kjöt. „Flottasta jógastöð landsins er rétt við hliðina á okkur. Svo var opnuð gleraugnabúð á Grandanum í síðustu viku. Ég vildi að ég gæti talið alla upp sem eru með verslun á Grandanum en þá væri ég komin í algjöra langloku,“ segir Hlín – sem telur mikla framtíð í þessu til- tölulega nýja hverfi. „Það er svo sjarmerandi hérna að það er svona kaupstaðarstemning. Eigandinn oftast bak við búðarborðið og tekur fagnandi á móti gestum og gangandi – oft sér maður líka inn á verk- stæðin, eldhúsin eða framleiðsluna hjá viðkomandi.“ Almennt sé mikil uppbygging úti á Granda. „Miðbærinn hefur líka breyst hratt og mikið undanfarið – sem er alls ekkert neikvætt – frekar jákvætt. Það sem gerist þá er að upp spretta ný og spennandi hverfi. Fyrir nokkrum árum varð svipuð þróun í Kaupmannahöfn en þá varð Kjöt- bærinn aðalhverfið.“ Á leið til new York En nú er jólavertíð og því í mörg horn að líta fyrir verslunareigand- ann í nýja Kjötbænum. Hún eyðir mestum tíma bak við búðarborðið um þessar mundir – en hún reynir að vera jólaleg heima fyrir með fjölskyldunni líka. „Ég vakna venju- lega um sjö, helli upp á gott kaffi og kem stelpunum mínum í skóla og leikskóla. Tek mér tíma til að spjalla við þær á sloppnum um daginn og veginn. Síðan verður oftast smá panikk á heimilinu, þegar allir verða allt í einu of seinir. „Oftast slengi ég í úfinn snúð og mála mig svo í bílnum,“ segir Hlín hlæjandi. Dagarnir eru mjög fjölbreyttir og skemmtilegir. „Ég eyði til að mynda miklum tíma þessa dagana í að spjalla við töffarana í tollinum – þar sem við erum að flytja inn vörur fyrir búðina – sápur og skartgripi eftir aðra hönnuði og alls konar fal- lega gjafavöru. Svo vinn ég oftast til rúmlega sex.“ Hlín elskar að elda mat, sem hún segir eitt af sínum aðaláhugamálum. „Ég nýt þess í botn að elda góðan mat fyrir fjölskylduna og eiga gæða- stund með þeim.“ Svo er margt fram undan. Á dögunum var Hlín boðin þátttaka í stórri skartgripasýningu í New York á næsta ári. „Sýningin heitir Loot og er haldin í Museum of Art and Design in New York. Þetta er mjög spennandi sýning en skartgripa- hönnuðir víðs vegar að úr heim- inum sýna. Safnið er virkilega flott og stórt og er þetta mikill heiður að vera valin inn í þessa sýningu. Sýningarstjórinn hafði sam- band við mig fyrir um ári, en hún hafði lesið litla grein um mig í New York Times. Sú er búin að vinna í skartgripaheiminum í mörg ár og sérhæfir sig meðal annars í að finna nýja og spennandi skartgripa- hönnuði. Ég er mjög spennt fyrir sýningunni bæði að sjá hvað aðrir hönnuðir eru að gera og svo er bara spurning hvert svona sýning leiðir mann,“ segir Hlín. Hugmyndir að heimatilbúnum jólagjöfum: 1 Heimatilbúnar sultur, smákökur, kæfur, hrökk- brauð, jafnvel jólaglögg eða heimatilbúnar kara- mellur. „Mér finnst rosalega smart að gefa eitthvert gúmmelaði úr eldhúsinu,“ segir Hlín. „Málið er bara að pakka þessu svolítið smart inn – til dæmis í bök- unarpappír með smart borða.“ 2 Önnur frábær hugmynd sé að gefa uppskrift að uppáhaldsbrauðinu sínu eða smákökum. „Blanda þurrefnunum saman og setja í flotta krukku og láta uppskriftina fylgja. Eina sem þarf svo að gera er að skella blautefnunum inn í ofn og voilá!“ 3 Á persónulegri nótum segir Hlín að góð hugmynd að jólagjöf sé að setja saman persónulegan laga- lista og gefa. „Það er til dæmis hægt að setja slíkt upp á Spotify. Það er hugurinn sem gildir!“ 4 Nú þegar allir eru svo duglegir að taka myndir á símana sína, sé skemmtileg pæling að prenta út myndir af skemmtilegum samverustundum. „Setja svo upp í fallegt albúm eða í eitthvert smart box.“ Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is 1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r40 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 0 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 1 5 2 s _ P 1 3 2 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 1 1 3 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B A 1 -0 A 8 4 1 B A 1 -0 9 4 8 1 B A 1 -0 8 0 C 1 B A 1 -0 6 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 5 2 s _ 9 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.