Fréttablaðið - 10.12.2016, Page 131

Fréttablaðið - 10.12.2016, Page 131
Ljóð m una rödd 70 70145 145 211 12 „Algjörlega frábær bók … Ofsalega fallegt.“ Eiríkur Guðmundsson / Kiljan ✶✶✶✶ „Þetta er falleg bók, utan sem innan.“ Sölvi Sveinsson / Morgunblaðið „Í þessari bók er allt vel gert. Þetta er ákaflega falleg bók. Örugglega áhrifamesta verk sem Sigurður hefur sent frá sér á sínum ferli.“ Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan „Þetta er með allra bestu bókum hans og þá er mikið sagt.“ Jón Yngvi Jóhannsson / Víðsjá „… ljóð Sigurðar Pálssonar í Ljóð muna rödd munu seint líða mér úr minni. Svo sterk eru þau, fögur og magnþrungin og ægifögur sáttargjörð við lífið.“ Sigríður Albertsdóttir / Víðsjá ✶✶✶✶ „Verkið er svellandi óður til lífsins, óður til ástarinnar og sjónarhorns skáldskaparins, sem er ljósið sem lýsir; hin eilífa bergvatnsá, birtan.“ Arnaldur Máni Finnsson / DV „Meistaraverk.“ Egill Helgason / Kiljan Metsölulisti Eymundsson ljóð vika 48 1. 29. nóvember – 05. desember 2016 L J Ó Ð1 www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu 1. PRENTUN UPPSELD 2. PRENTUN Á ÞROTUM 3. PRENTUN VÆNTANLEG TónlisT Kórtónleikar HHHHH Jólatónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju. Stjórnandi: Hörður Áskelsson Organisti: Mattias Wager Einsöngvari: Maria Keohane Hallgrímskirkja þriðjudagurinn 6. desember Sænsk jólastemning var í algleym- ingi á tónleikum Mótettukórs Hallgrímskirkju á þriðjudags- kvöldið. Ástæðan var sú að organ- istinn, Mattias Wager, er sænskur, og einsöngvarinn, Maria Keohane, er það líka. Wager er sérlega snjall í að leika af fingrum fram og því var spuni áberandi á efnisskránni. Orgelspuni var oft á milli laga, og í sumum tilvikum tók kórinn þátt í spunanum. Engu að síður var prógrammið ekki aðeins einhver tilraunamennska, þarna var hefð- bundin músík líka sem flutt var á virðulegan máta. Eða hvað? Ef ég á að segja alveg eins og er þá saknaði ég þess síðar- nefnda, þrátt fyrir að það hafi vissulega verið til staðar. Það var bara ekki nóg af því. Sópransöng- konan Maria Keohane var mjög ráðandi og þó hún hafi sungið glæsilega Rejoice Greatly úr Mess- íasi eftir Händel og annað í svip- uðum dúr, voru hófsamari lög full ýkt í meðförum hennar. Tilfinn- ingasemin var of mikil, útkoman átti það til að vera væmin. Söng- konan GERÐI of mikið í stað þess að leyfa tónlistinni að njóta sín í einfaldleika sínum. Wager var aftur á móti með allt á hreinu við orgelið. Það sem hann spilaði var svo sem ekki krefjandi, en spunarnir hans voru skemmti- legir. Þeir tóku á sig ólíkar myndir, allt frá villtum sveitadansi yfir í fjarlægar kirkjuklukkur. Orgelið býr yfir ótal möguleikum – enda er það kallað drottning hljóðfær- anna. Kannski hefði mátt vera smá einleikur á efnisskránni. Kórinn söng fallega undir stjórn Harðar Áskelssonar, hreint og af innlifun. Spunarnir voru áhrifa- ríkir. Það var  til dæmis  dásam- legt þegar kórinn söng Hátíð fer að höndum ein um leið og hann gekk hægt inn í kirkjuna – sem leystist svo á undursamlegan hátt upp í allt annað lag. Sömuleiðis var Heims um ból í lokin magnað. En kórinn var bara í aukahlut- verki á tónleikunum. Mistækur einsöngurinn var alltof áberandi, sem gerði dagskrána belgingslega. Ekkert er eins jólalegt og þegar Mótettukórinn syngur án ein- söngs þekkta jólasálma. Stundum er minna meira. Það hefði mátt hafa í huga hér. Jónas Sen niðursTaða: Fínn en nokkuð til- gerðarlegur einsöngur, kórinn söng hins vegar prýðilega og organistinn var góður. Einfaldleikinn er stundum bestur Þannig geymist tíminn eftir barsmíðar hans. Þarna veit heilt þorp af því hvað er á sey i en tíðarandinn var þess eðlis að enginn taldi sig þess umkominn að skipta sér af. Þannig er lífið í þorp- inu ekki eintóm póstkortasæla en í endurliti æskunnar er allt samt svo bjart og Bjartmari tekst vel að fanga þennan áhyggjulausa blæ með létt- um og gamansömum frásagnarstíl. Hann dregur upp skemmtilegar og fróðlegar mannlýsingar og lýsir æskuvinum sínum einkar vel og af miklum kærleika, einkum situr þó Indi vinur hans eftir með lesand- anum, Indi sem var alltaf snyrti- legri en allir hinir, sem skipulagði fyrsta fylleríið þeirra félaganna með því að leggja á borð og hafa til munnþurrkur og var bara allt of líkur Paul McCartney. Eftirminni- legur er einnig Meysi frændi, sem gat ekki átt eina konu heldur vildi eiga þær allar uns að því koma að hann fékk magasár af eintómri rómantík. Lýsingar Bjartmars af sjálfum sér á unglingsárunum eru einnig glettnar, hann lýsir því vel hvernig hormónar sveifla fólki milli svæsinnar minnimáttarkenndar og upphafinnar sjálfsástar, fyrsta ástin er krufin vandlega og þroskastigið milli barns og fullorðins kannað af virðingu og húmor. Frásagnirnar eru stuttar og hnit- miðaðar frekar en að um langa og samfellda frásögn sé að ræða, meira svipmyndir af aðstæðum en heild- stætt skáldverk eða sjálfsævisaga. Bókina prýða teikningar og mál- verk eftir hinn fjölhæfa listamann og einnig textabrot og ljóðsögur sem brjóta bókina upp á skemmti- legan hátt. Í þessari bók lifa sögur og minn- ingar góðu lífi og spretta fram hver af annarri, vel varðveittur og vand- lega pressaður tími og sannarlega ekki týndur. Brynhildur Björnsdóttir niðursTaða: Fallega unnið og skemmtilega skrifað minningakver sem aðdáendur Bjartmars eiga eftir að njóta þess að lesa. Í þessari bók er tÍminn einmitt til umræðu, bjartmar lÍtur langt um öxl, alla leið til æskunnar sem er kannski það tÍmaskeið sem lifir skýrast og sterkast Í minningunni. M e n n i n g ∙ F r É T T a B l a ð i ð 75l a u g a r D a g u r 1 0 . D e s e M B e r 2 0 1 6 1 0 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 1 5 2 s _ P 1 3 1 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 1 1 4 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 5 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B A 1 -0 F 7 4 1 B A 1 -0 E 3 8 1 B A 1 -0 C F C 1 B A 1 -0 B C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 5 2 s _ 9 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.