Fréttablaðið - 10.12.2016, Side 140
Ég get
verið
mjög vandlát
á föt og vil
helst vera í
einhverju sem
enginn annar á.
Magnea Einars-dóttir klæðist flíkum úr sinni eigin vetrarlínu yfir jólin. „Ég er þannig að ég vil
helst ekki mæta í tvö jólaboð í sama
kjólnum svo það kemur sér ágætlega
að vera með gott úrval sem ég get
valið úr. Ég ætla að vera í uppáhalds-
flíkinni minni – grænum silkikjól
með gegnsæju bakstykki á aðfanga-
dag og nota svo prjónakjólana mína
í veislurnar dagana á eftir sem ég hef
hugsað mér að poppa upp með silki-
toppum og skarti. Eftir jólin held ég
svo áfram að nota þá hversdags,“ segir
hún.
Magnea kveðst vera vandlát þegar
kemur að jólafötunum. „Já, síðustu
ár hef ég fengið mér fallega íslenska
hönnun fyrir jólin. Annars finn ég
oftast eitthvað í „vintage“-verslunum.
Ég get verið mjög vandlát á föt og vil
helst vera í einhverju sem enginn
annar á svo ég hef oftar en ekki endað
á að setja saman mín eigin dress úr
fataskápnum og keypt mér fylgihluti
til að setja punktinn yfir i-ð.“
„Vintage“-prjónakjóll eftirminni-
legastur
Þegar Magnea rifjar upp eftirminni-
legasta jóladress sitt þá kemur „vin-
tage“-kjóll upp í hugann. „Það er
hvítur síður prjónakjóll með silfur-
þráðum sem ég keypti í „vintage“-
búð í London þegar ég bjó þar fyrir
nokkrum árum.“ Aðspurð út í eftir-
minnilegustu tísku-jólagjöfina sína
nefnir hún bækur. „Fyrsta árið mitt
í fatahönnun fengu allir fjölskyldu-
meðlimir sömu hugmynd og gáfu
mér veglegar tískubækur í jólagjöf. Ég
elska fátt meira en fallegar bækur svo
ég var í skýjunum með þessar gjafir.“
Magnea selur hönnun sína í
versluninni Kiosk á Laugavegi ásamt
öðrum hönnuðum. Í þeirri verslun
Græni kjóllinn sem Magnea ætlar að
klæðast um jólin.
Í vetrarlínu Magneu má finna
prjóna kjóla sem hægt er að nota
bæði spari og hversdags.
Magnea Einars-
dóttir er búin að
finna jóladressið.
Fréttablaðið/
Eyþór
grænn
silkikjóll
varð fyrir valinu
er ýmislegt fallegt að finna og sú flík
sem er á óskalista Magneu þessa
stundina kemur einmitt frá öðrum
hönnuði Kiosk. „Mig dreymir um
dásamlega fallegan bláan kjól frá
Millu Snorrason sem var að koma í
verslunina okkar.“ gudnyhronn@365.is
Hvalfjörður fjallar um sam-band tveggja ungra bræðra sem búa í sveit á Íslandi og
hvernig sá yngri tekst á við það að
koma að eldri bróður sínum sem er
að reyna að taka sitt eigið líf,“ segir
Guðmundur Arnar Guðmunds-
son, leikstjóri stuttmyndarinnar
Hvalfjarðar, en Vimeo var að velja
stuttmyndina sem þeirra „Staff
Pick Prem ière“ og verður myndin
því heimsfrumsýnd á netinu á mið-
vikudaginn 14 desember.
Síðan stuttmyndin vann til verð-
launa í aðalkeppninni á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes fyrir þremur
árum hefur hún farið út um allan
heim og unnið til um 50 alþjóðlegra
verðlauna. En hvaða þýðingu hafa
þessi verðlaun fyrir myndina?
„Þetta er ákveðinn gæðastimpill
en Hvalfjörður hefur náttúrulega
gengið ótrúlega vel og við sjáum
þetta núna sem möguleika til að enn
fleiri fái tækifæri til að sjá myndina.
Aðstandendur Vimeo áætla að að
minnsta kosti 100.000 einstakling-
ar muni horfa á Hvalfjörð í gegnum
síðuna, sem er náttúrulega gríðar-
lega stór tala og veitir myndinni
og okkur sem listamönnum mikla
ánægju,“ útskýrir Guðmundur og
bætir við að myndin hafi nú þegar
verið sýnd bæði á RIFF og RÚV.
„Okkur finnst mjög gaman að
þeir Íslendingar sem misstu af að
sjá Hvalfjörð þar, en langar að sjá
myndina, fái tækifæri til þess á mið-
vikudaginn næsta,“ segir hann.
Guðmundur Arnar hefur vakið
mikla athygli undanfarið fyrir sína
fyrstu kvikmynd í fullri lengd,
Hjartastein, en móttökurnar hafa
farið fram úr þeirra björtustu
vonum.
„Eins og er þá er ég í Marokkó
þar sem ég er að sýna Hjartastein.
Ég mun næstu mánuði halda áfram
að ferðast með Hjartastein víða um
heim og sýna á hátíðum. Þess á milli,
þá aðallega í flugvélum, er ég að
skrifa mína næstu kvikmynd sem ég
er orðin mjög spenntur fyrir,“ segir
Guðmundur.
gudrunjona@frettabladid.is
hvalfjörður heimsfrumsýndur á vimeo
Guðmundur arnar Guðmundsson, leik-
stjóri stuttmyndarinnar Hvalfjarðar.
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r84 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð
Lífið
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
A
1
-4
0
D
4
1
B
A
1
-3
F
9
8
1
B
A
1
-3
E
5
C
1
B
A
1
-3
D
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K