Fréttablaðið - 10.12.2016, Blaðsíða 148
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lífið í
vikunni
04.12.16-
10.12.16
● Auka blóðflæði í
höfði;
● Slaka á vöðvum í
hnakka;
● Bæta öndun með
því að slaka á
axlasvæði;
● Samhæfa ósjálfráða
taugakerfið;
● Slaka á vöðvum í
efri hluta kviðar;
● Bæta virkni
meltingar kerfisins;
● Bæta blóðflæði í
nára.
ÖRVUN MEÐ SVÆÐANUDDS-
INNLEGGI MIÐAR AÐ ÞVÍ AÐ:
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
SLÖKUN OG VELLÍÐAN
F YRIR ALL AN LÍK AMANN
BYLTING FYRIR
ÞREYTTA FÆTUR
7.900 K R.
Með fimmsvæða nuddinnleggi UNDRA heilsuinni
skónna nærðu slökun og vellíðan sem dregur úr
spennu og örvar blóðflæði. Skórnir
eru fallegir, hlýir og einstaklega
þægilegir. Fáanlegir í dökkgrárri eða
ljósri Merinoull.
Komdu og prófaðu!
UNDRI HEILSUINNISKÓR
B Y LT I N G A K E N N T
5 S VÆ Ð A N U D D I N N L E G G
O P I Ð A L L A
D A G A T I L J Ó L A
Fyrir nokkrum mánuðum flutti Manuela Ósk til Los Angeles ásamt fjöl-skyldu sinni til að stunda nám. Hún er búin að koma sér vel fyrir á nýja
staðnum og er meira að segja búin
að fá sér hund. Hundurinn heitir
Suzie Q og hefur átt erfiða ævi.
„Ég fékk hundinn minn hjá hunda-
skýli hérna í Los Angeles sem heitir
Dogs Without Borders. Á hverjum
sunnudegi er hægt að fara í dýrabúð
í hverfinu mínu og skoða hundana
sem þessi samtök hafa bjargað og þar
sem dóttir mín er gjörsamlega hunda-
sjúk þá var ekkert annað í stöðunni
en að fara með hana að skoða. Eðli-
lega labbaði ég út með hund í bandi,
enda tekur það virkilega á mann að
sjá þessi litlu grey sem mörg hver hafa
þolað hræðilegt ofbeldi og mikla van-
rækslu,“ segir Manuela.
Þegar kom að því að velja hund
lagði Manuela áherslu á að hundur-
inn væri góður í návist barna. „Það
er mjög mikið af hundum í boði
og auðvitað er erfitt að velja en ég
spurði yfirmanninn bara hvaða
hundar væru góðir með börnum og
það var ansi öflug sía. Það voru þrír
hundar sem komu til greina. Suzie
Q valdi okkur áður en okkur tókst
að skoða hina tvo. Hún er alveg
dásamleg,“ útskýrir Manuela sem
þekkir sögu Suzie lauslega. „Ég veit
að hún er fjögurra ára chihuahua og
var skilin eftir af eiganda sínum. Hún
sýnir ekki merki þess að hafa verið
beitt ofbeldi en hún var svolítið illa
farin eftir að hafa verið á vergangi.“
Passar vel upp á fjölskylduna
Að sögn Manuelu hefur Suzie gengið
vel að aðlagast nýja heimilinu. „Þetta
hefur gengið alveg ótrúlega vel og
okkur finnst eiginlega bara eins og
hún hafi alltaf verið okkar. Hún er
rosalega hlýðin og góð og elskar
okkur ofsalega mikið. Ég finn það svo
greinilega, því hún passar mjög upp á
okkur öll, þótt lítil sé.“
Það kom aldrei til greina að kaupa
hund af ræktanda að sögn Manuelu.
„Ég hef enga þörf fyrir að snobb ast
eitthvað og kaupa af ræktanda þegar
ég get styrkt frábæra starfsemi og
gefið munaðarlausum hundi gott
heimili. Það kostar líka að ættleiða
hundana en sú upphæð er framlag til
samtakanna. Þetta hefur verið algjör
„win-win“-staða því hún Suzie hefur
gefið okkur svo rosalega mikla ást og
gleði.“ gudnyhronn@365.is
Manuela tók að sér
heimilislausan hund
Manuela Ósk Harðardóttir er mikill dýravinur og hundamann-
eskja. Nýverið tók hún að sér fjögurra ára chihuahua-hund sem
hafði verið yfirgefinn af eiganda sínum. Hún segir hundinn hafa
aðlagast vel og fært sér og fjölskyldu sinni mikla gleði.
Manuela ásamt hundinum Suzie Q.
Ég veit að Hún
er fjögurra
ára cHiHuaHua og var
skiLin eftir af eiganda
sínuM. Hún sýnir ekki
Merki þess að Hafa
verið beitt ofbeLdi.
ný pLata frá eMiLíönu
torrini
Emilíana Torrini og hljóm
sveitin Colorist Orch
estra gáfu út plötu
þann 9. desember
með níu lögum
Emilíönu í nýjum
útgáfum. Á
plötunni eru tvö
ný lög – annað
lagið er When we
dance sem gert
hefur verið mynd
band við og er tekið upp
með Coloris Orchestra.
tískan við þing
setningu
Það voru allir í sínu fínasta pússi við
þingsetningu á þriðjudaginn.
Björt Ólafsdóttir, þingkona
Bjartrar framtíðar, vakti
sérstaka athygli en
hún klæddist
ansi smart
dragt. Sömu
leiðis vakti
Framsóknar
konan Þórunn
Egilsdóttir lukku en
hún klæddist sínum allra
fínustu fötum.
nýtt risa
svið á
secret
soLstice
Á næstu Secret
Solstice hátíð
verður nýtt og
stærra útisvið tekið
í notkun og munu gestir
hátíðarinnar geta séð aðal
böndin vandkvæðalaust.
Tilkynnt verður um næstu
listamenn í janúar.
tíst uM Meint Líkindi
tveggja Laga fer á
fLug
Darri Tryggvason tísti um
möguleg líkindi með ársgömlu
lagi sínu og smelli Friðriks
Dórs, Fröken Reykjavík, en lagið
er pródúserað af StopWaitGo
hópnum. Umrætt tíst hefur farið
víða um sam
félagsmiðlana
og sitt sýnist
hverjum
um þessi
meintu líkindi
laganna.
1 0 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r92 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð
1
0
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
5
2
s
_
P
1
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
1
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
5
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
A
1
-2
8
2
4
1
B
A
1
-2
6
E
8
1
B
A
1
-2
5
A
C
1
B
A
1
-2
4
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
5
2
s
_
9
_
1
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K