Morgunblaðið - 31.10.2015, Síða 11
Morgunblaðið/Eggert
Systurnar Gunnhildur (t.h) og Þórdís Georgsdætur fara alltaf með þrjár dætur Gunnhildar saman á stelpu-
skeitkvöld. Aðalheiður Dís 10 ára rennir sér fimlega og mamma fylgist með. Þórdís hjálpar Elísabetu Rós 7 ára.
sagt að hluta til af því að það kom
svokölluð „longboard-tíska“ en
longboard henta vel í að renna sér
milli staða en ekki endilega til þess
að gera hinar ýmsu kúnstir eins og
flestir tengja hjólabrettin við. Núna
sé ég miklu oftar stelpur sem nota
hjólabretti sem ferðamáta til að
komast á milli staða, og það finnst
mér frábært. Hér áður voru bretta-
fögin einstaklingsíþróttir, hvort sem
það var snjóbretti, brimbretti eða
hjólabretti, en það hefur breyst og
það sem hefur verið gaman við þetta
hér á Íslandi er að allir eru saman í
brettunum og allir eru vinir. Þetta
er samfélag þar sem ekki er grimm
samkeppni þó svo að fólk sé stund-
um að keppa.“
Aldrei of seint að byrja
Linda Björk segir að
ekki séu sérstök námskeið
fyrir stelpur hjá Bretta-
félaginu, en boðið sé
upp á blönduð nám-
skeið fyrir krakka af
báðum kynjum.
„Við erum að þreifa
fyrir okkur með að setja
á fót sérstakar stelpu-
æfingar, við þurfum að
kanna hvort næg þátttaka náist.
Vonandi verður niðurstaðan sú að
hægt verði að bjóða upp á slíkt nám-
skeið eftir áramót. Undanfarin tíu ár
höfum við haldið sérstök stelpu-
skeit-kvöld og nú eru þau orðin
reglulega í hverjum mánuði. Frá því
við byrjuðum fyrir þremur mán-
uðum að hafa slík kvöld í húsnæði
hjá Brettafélagi Hafnarfjarðar, þá
hafa mætt um tuttugu stelpur á
kvöldi, en flestar hafa þær verið um
fjörutíu. Allar stelpur eru velkomn-
ar, á hvaða aldri sem þær eru, byrj-
endur eða lengra komnar. Eina skil-
yrðið er að vera með hjálm. En það
er hægt að fá lánaðan hjálm og það
er líka hægt að fá lánað bretti ef
þarf. Yngsta stelpan sem ég man
eftir á slíku kvöldi var fjögurra ára
en sú elsta var 45 ára. Ég stelst líka
oft til að taka son minn sem
er tveggja ára með mér á
þessi kvöld, en þó ekki
nema í stutta stund.
Skeitkvöldin eru ekki
æfing heldur opin
kvöld, en þó er
yfirleitt ein-
hver að leið-
beina aðeins.
Annars eru
bara allir
að skeita fyrir sig og prófa. Að vera
á hjólabretti er ótrúlega skemmti-
legt, frelsistilfinningin sem fylgir því
að vera á bretti er mjög góð,“ segir
Linda Björk og bætir við að henni
finnist hjólabrettin líkamlega erf-
iðari en snjóbrettin, en erfiðið fari
vissulega eftir því hvað fólk sé að
gera á brettunum. „Þetta er alger-
lega frábært sport og ég mæli með
því fyrir alla. Það er aldrei of seint
að byrja, þetta snýst bara um að
hafa gaman.“
Gaman Samveran með öllum hinum er stór þáttur í að njóta brettakvölda.
Svalur Arnar Freyr Jóhannsson er ekki
nema 4 ára en var öruggur og flinkur.
sem er menntaður flautuleikari
með lokapróf frá Conservatorio di
Musica L. Perosi á Ítalíu og mast-
erspróf í kammertónlist frá tónlist-
arháskólanum S. Cecilia í Róm. Pa-
mela hefur unnið mikið með
börnum. Hún hefur kennt flautuleik
í Reykjavík, Kópavogi og á Selfossi.
Þá stofnaði hún tónleikaröðina
Töfrahurð fyrir börn sem síðan þá
hefur staðið fyrir um áttatíu tón-
leikum. Einnig hefur hún komið að
útgáfu nokkra barnabóka; Karnival
dýranna, Englajól, Strengir á tíma-
flakki, Töfraflautan og Björt í Sum-
arhúsi.
– Menningarhúsi Spönginni
Töfrahljóðfæri Hægt er að búa til hljóðfæri úr
ýmsu ódýru hráefni sem til fellur á heimilinu.
Morgunblaðið/Ómar
Flautuleikari Pamela de
Sensi kennir börnunum.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2015
Nathalía Druzin Halldórsdóttir
messósópran og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari halda ljóða-
tónleikana Á leið til Moskvu í Hljóð-
bergi í Hannesarholti kl. 15 í dag,
laugardag.
Tónlistarkonurnar halda í tónleika-
ferð til Rússlands í byrjun nóvember
þar sem þær flytja sömu dagskrá á
ýmsum viðburðum í Moskvu.
Á efnisskránni eru íslensk og rúss-
nesk verk eftir Glinka, Rachmaninov,
Tchaikovskí, Pál Ísólfsson, Sigfús Ein-
arsson, Sigvalda Kaldalóns og Snorra
Sigfús Birgisson.
Ljóðatónleikar
Tónleikar Nathalía og Anna Guðný
flytja íslensk og rússnesk verk.
Tvær á leið
til Moskvu
Yngst Lauf-
ey Ósk 3 ára
var galvösk
með brettið.
Facebook: Stelpubrettafélag
Facebook: Brettafélag Hafn-
arfjarðar
Á morgun, sunnudag 1. nóvember kl.
14-16, gefst fólki kostur á að koma
með eigin gripi til greiningar hjá sér-
fræðingum Þjóðminjasafnsins. Margt
merkilegt hefur komið í ljós á fyrri
greiningardögum. Greiningin er
ókeypis en fólk beðið að stilla fjölda
gripa í hóf og taka númer í afgreiðslu
safnsins.
Greiningar á gripum í einkaeign
eru ekki aðeins fróðlegar fyrir eig-
endur gripanna heldur gefst Þjóð-
minjasafninu einnig einstakt tæki-
færi til að fá yfirsýn yfir þá mörgu
áhugaverðu og dýrmætu gripi sem til
eru á heimilum landsmanna.
Þjóðminjasafnið
Greiningar
á gripum
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000
www.kemi.is - kemi@kemi.is
• Almennur handhreinsir
sem byggir á náttúru-
legum efnum.
• Virkar jafnt með vatni
og án.
• Engin jarðolíuefni eru
notuð.
• Inniheldur aloa vera,
jojoba olíu og lanolin
til að mýkja húðina.
• Virkar vel á olíu, feiti,
blek, jarðveg, epoxy
og lím.
• Inniheldur fín malaðan
sand til að hreinsa
betur.
Gengur illa að þrífa
smurolíuna af höndunum?
Eru lófarnir þurrir og rispaðir?