Víkurfréttir - 29.05.1986, Side 11
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 29. maí 1986 11
ÞAKKARORÐ TIL FARSÆLLA LEIÐTOGA
Keflvíkingar hafa átt því láni aðfagna, að íáratugi hefurvalist úrvalsfólk
til stjórnunar bæjarmála. Við næstu bæjarstjórnarkosningarvill svotil, að
þrír bæjarfulltrúar, sem setið hafa í forystusveit bæjarstjórnar í yfir áratug,
víkja nú fyrir nýju fólki. Þeir eru Tómas Tómasson fyrir Sjálfstæðisflokk,
Hilmar Pétursson fyrir Framsóknarflokk og Ólafur Björnsson fyrir Al-
þýðuflokk. Brotthvarf þeirra úr bæjarstjórn hefur að vonum vakið athygli
og verður sjónarsviptir af. Hér verða ekki tíunduð einstök mál er þeir hafa
staðið að, enda vandséð hvar skal byrja og hvar skal enda. Ekki verður
heldur gert upp á milli þeirra við verkalok, því þeir hafa allir sem einn haft
velferð bæjarlélagsins að leiðarljósi.
Bæjarbúar vita að þeir munu áfram miðla af þekkingu og reynslu sinni
til nýrra bæjarfulltrúa og hver um sig hlúa að starfsemi síns stjórnmála-
flokks. Þannig munu Keflvíkingar áfram njóta þeirra góðu áhrifa, er
samstarf þeirra og vinátta hefur skapað í stjórnun bæjarmála.
Ungt sjálfstæðisfólk vill nota þetta tækifæri og þakka þeim fyrir margra
ára óeigingjarnt starf í þágu keflvískrar æsku og færir þeim óskir um far-
sæld og góða daga í framtíðinni.
HEIMIR,
Félag ungra Sjálfstæðismanna,
Keflavík.