Morgunblaðið - 04.12.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2015
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Verslunarskóli Íslands, há-skólanám í markaðs-fræðum í Bandaríkjunum,rekstur auglýsingastofu.
Þannig var náms- og starfsferill
Kristjáns Jónssonar, listmálara og
leiðsögumanns, í stórum dráttum til
ársins 1988. Hann þótti því að von-
um ekkert sérstaklega listamanns-
lega vaxinn. Eða leiðsögumannslega
ef því væri að skipta. „Undirbúning-
urinn var að minnsta kosti ekki hefð-
bundinn, enda hafði ég ekki gengið
með listamann í maganum,“ segir
hann sposkur.
Auglýsingabransinn kveikti í
honum löngun til að læra grafíska
hönnun og það var einmitt mark-
miðið þegar hann hélt til Barcelona
á Spáni, 28 ára gamall, til náms í
Escola Massana-listaháskólanum
þar í borg. „Mér leist hins vegar svo
vel á málaradeildina að ég skipti um
skoðun og hóf þar nám. Ungur og
bjartsýnn taldi ég fullvíst að sú til-
vera biði mín að verða starfandi list-
málari á Íslandi.“
Bjartsýnn í Barcelona
Til marks um bjartsýnina var
Kristján sá eini af 92 nemendum á
lokaári í skólanum sem í skoðana-
könnun taldi allt horfa afskaplega
gæfulega fyrir sér á listamanns-
brautinni að loknu námi. „Flestir
nemendanna voru Spánverjar, aðal-
lega frá Katalóníu, og það var mikið
kreppuhljóð í þeim. Mér líkaði mjög
vel í skólanum, sem var afar frjáls-
legur, maður gat valsað á milli deilda
og bara gert það sem manni sýndist.
Slíkt þótti samt óvenjulegt á þeim
tíma og myndi ábyggilega ekki líðast
núna því að viðurkenndir listahá-
skólar Evrópu þurfa að starfa sam-
kvæmt ákveðnu fyrirkomulagi, að
því er mér skilst.“
Frjálslyndið átti svo ljómandi
vel við Kristján að hann eyddi fjór-
um árum í að gera bara það sem
honum þótti skemmtilegt; teikna,
mála og vinna grafík. „Teoríurnar
höfðu setið á hakanum hjá mér og ég
átti eftir bunka af ókláruðum rit-
gerðum. Ég var hins vegar orðinn
óþreyjufullur að fara að mála og
halda sýningar svo ég hætti og er því
í rauninni „drop-out“ úr listaskóla
þrátt fyrir margra ára nám.“
Kristján segir það þó ekki hafa
háð sér að hafa ekki útskrifast form-
lega úr skólanum. „Í byrjun upplifði
ég mig svolítið utan listamanna-
kreðsanna hérna heima og var lengi
Hetjur æskunnar
og ástin á landinu
Kristján Jónsson nam málaralist í fjögur ár í spænskum listaskóla fyrir margt
löngu. Hann opnar sýninguna Portrett og landslag í sýningarsalnum Gróttu hinn
10. desember. Spænsku áhrifin leyna sér ekki í litunum; þeir eru heitari en hann
sér í íslensku landslagi á ferðum sínum sem leiðsögumaður.
Á toppnum Kristján og Diljá á eftirlætisstað sínum; toppnum á Sveinstindi.
„Sýningin er ekki
áreynsluþrungin tilraun
mín til að máta mig við
hefðina, heldur hylling
gamalla æskuhetja og
lýsing á ástarsambandi
mínu við landið.“
Stundum eru umbúðir gjafa ekki
síður áhugaverðar en innihaldið,
sérstaklega ef þær eru handgerðar
og augljóst að gefandinn hefur
nostrað við innpökkunina. Á vefsíð-
unni templatemaker.nl geta þeir
sem vilja vanda sig sérstaklega við
að pakka inn jólagjöfunum – eða
bara gjöfum við öll tilefni og tæki-
færi – sótt sér snið eftir lögun inni-
haldsins. Hollenskur vefhönnuður
heldur úti síðunni
sem er með alls kon-
ar sniðum, leiðbeiningum og til-
lögum að skemmtilegum og óvenju-
legum umbúðum. Mældu hlutinn,
sláðu inn málin og prentaðu. Svo
einfalt er það. Mælt er með að nota
þykkari gerð prentpappírs. Síðan er
bara að taka sér skæri í hönd,
klippa út sniðið og brjóta pappírinn
samkvæmt ítarlegum leiðbeiningum.
Möguleikarnir eru óþrjótandi og um
að gera að nota hugmyndaflugið og
prófa sig áfram. Aðgangur er ókeyp-
is og ekki er krafist lykilorðs.
Vefsíðan www.templatemaker.nl
Leiðbeiningar Ítarlegar leiðbeiningar og alls konar tillögur eru á síðunni.
Sérsniðnar gjafaumbúðir
PopUp verslun setur upp jólamarkað í
portinu í Hafnarhúsinu kl. 11 til 17 á
morgun, laugardag 5. desember.
Verslunin hefur undanfarin fimm ár
haldið markað á aðventunni en í ár
verður hann með breyttu sniði, því
auk hönnunar verður myndlist, matur
og tónlist á boðstólum.
Sett verður upp eldhús þar sem
vegan-kokkurinn Linnea Helström
verður gestakokkur ásamt kærasta
sínum Krumma Björgvinssyni. Sér-
stakt útgáfuhóf vegna bókarinnar og
söngleiksins Björt í sumarhúsi verður
einnig í portinu, tónlistaratriði frá
Endilega …
List Verk eftir Auði Lóu Guðnadóttur í
Solids myndlistarhópnum.
… kíkið á jólamarkað í portinu
Kvennakór Kópavogs og Unni Söru
Eldjárn og myndlistarhópurinn Solids
setur upp PopUp gallerí.
Leirlistakonurnar Anna
Hallin, Áslaug Höskulds-
dóttir, Guðrún Hall-
dórsdóttir, Inga Elín,
Ingunn E. Stef-
ánsdóttir og Ragn-
heiður I. Ágústs-
dóttir taka höndum
saman og opna vinnu-
stofur sínar fyrir gest-
um og gangandi um
helgina.
Þær eru til húsa í SÍM-
húsinu við Seljaveg 32 og verða með
opið frá kl. 16 til 20 í dag, en kl. 12 til
16 bæði laugardag og sunnudag.
Úrval verka lista-
kvennanna verður til
sýnis og sölu, til dæm-
is matarílát af ýmsu
tagi, bollar, stell,
kertastjakar, diskar;
skrautmunir jafnt
sem nytjahlutir af
ýmsu tagi. Þær lofa
sannkallaðri jóla-
stemningu og hafa feng-
ið Reyni Jónasson, harm-
onikkuleikara, til að leika
jólalög og önnur vinsæl lög milli kl. 15
og 16 á laugardaginn. Léttar veitingar
verða í boði.
Skrautmunir og nytjahlutir úr leir til sýnis og sölu
Sex leirlistakonur bjóða gestum
og gangandi í vinnustofur sínar
Ólík listaverk Leirlistakonurnar sex eru hver með sinn stíl.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
Raftæknivörur
Mótorvarrofar
og spólurofar
Það borgar sig að nota það besta!
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
3
1
.3
0
1
Skynjarar Töfluskápar
Hraðabreytar Öryggisliðar
Aflrofar Iðntölvur
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is