Morgunblaðið - 04.12.2015, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2015
Munið að slökkva
á kertunum
Treystið aldrei alfarið
á kertaslökkvara
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Bráðabirgðayfirlit Seðlbankans ger-
ir ráð fyrir því að undirliggjandi er-
lend staða þjóðarbúsins sé nú nei-
kvæð um 7.495 milljarða króna og
jafngildir það 348% af landsfram-
leiðslu. Hin neikvæða staða tengist
fyrst og fremst óuppgerðum slitabú-
um föllnu viðskiptabankanna. Séu
þau tekin út fyrir sviga í matinu
gjörbreytist staðan og verður já-
kvæð sem nemur 1% af landsfram-
leiðslu.
Steinn Friðriksson, sérfræðingur
á fjármálastöðugleikasviði Seðla-
bankans, segir eðlilegt að taka búin
út fyrir sviga.
„Það er töluvert loft í hreinu stöð-
unni eins og henni er varpað fram án
þess að slitabúin séu tekin út. Ef
slitabú fallinna fjármálafyrirtækja
verða gerð upp með nauðasamning-
um verður stór hluti skulda þeirra
afskrifaður,“ segir Steinn.
Hann segir að í kjölfar nauða-
samninganna muni skuldir búanna
hins vegar ekki þurrkast að öllu leyti
út og að taka verði tillit til þeirra við
mat á stöðu þjóðarbúsins.
„Það er eðlilegt að mat sé lagt á
það hver staðan verður að loknum
nauðasamningum. Reiknuð áhrif
slitanna gera ráð fyrir því að hrein
erlend staða þjóðarbúsins verði nei-
kvæð um 760 milljarða eða 35,2% af
áætlaðri vergri landsframleiðslu
undir lok þriðja fjórðungs þessa árs,
en þá hefur hvorki verið tekið tillit til
stöðugleikaframlags né stöðugleika-
skatts.“
Stöðugleikaframlag hefur áhrif
Í útreikningum Seðlabankans er
samanburður gerður á stöðu þjóðar-
búsins með og án slitabúanna og
einnig hver áhrifin af samþykkt
nauðasamninganna verða. Hins veg-
ar er í tölunum ekki gert ráð fyrir
þeim áhrifum sem stöðugleikafram-
lög slitabúanna munu hafa í kjölfar
þess að nauðasamningarnir verða
samþykktir. Þó gerir bankinn ráð
fyrir því að þau muni hafa talsverð
áhrif í jákvæða átt og lækka skulda-
hlutfallið mikið og færa það niður
fyrir 35,2%.
„Seðlabankinn hefur hins vegar
áður birt mat sitt á áhrifum stöðug-
leikaframlaganna á hreina erlenda
stöðu þjóðarbúsins og ef nauðasamn-
ingarnir verða staðfestir má gera
ráð fyrir því að staðan verði hagfelld-
ari en hún hefur verið áratugum
saman. Þannig verði hrein erlend
skuldastaða þjóðarbúsins neikvæð
sem nemur innan við 10% af vergri
landsframleiðslu undir lok næsta
árs. Þar verður reyndar að taka til
greina að batnandi staða skýrist ekki
einvörðungu af framlagi slitabúanna
heldur einnig af öðrum þáttum sem
þokast í hagfellda átt í íslensku efna-
hagslífi,“ segir Steinn.
Útboð ekki tekin með
Í þeirri áætlun sem stjórnvöld
hafa lagt upp í þeirri viðleitni að létta
fjármagnshöftum, er gert ráð fyrir
því að ráðist verði í útboð til að losa
um aflandskrónueignir. Slík útboð
munu einnig geta haft jákvæð áhrif á
stöðu þjóðarbúsins en Seðlabankinn
hefur ekki lagt opinberlega mat á
það hversu mikil þau verði.
Gjörbreytt erlend staða
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Efnahagur Nauðasamningar slitabúanna hafa mikil áhrif á þjóðhagsreikninga.
Erlend staða þjóðarbúsins er nú neikvæð sem nemur 348% af landsframleiðslu
Verður neikvæð um innan við 35% hljóti nauðasamningar staðfestingu dómstóla
Nýherji gerir
ráð fyrir því að
útboðinu verði
lokið fyrir ára-
mót, en það bygg-
ir á heimild sem
aðalfundur veitti
samþykki fyrir í
mars síðast-
liðnum.
„Með þessu er-
um við að stíga ákveðið skref til að
styrkja eigið fé félagsins, sem við
höfum að undanförnu sett sem eitt
af forgangsmálum okkar. Við höfum
unnið að því á síðustu mánuðum,
meðal annars með umbótum í
rekstri og sölu eigna, og nú stígum
við þetta skref,“ segir Finnur.
Stjórn Nýherja hefur falið Kviku að
bjóða út allt að 40 milljónir nýrra
hluta í fyrirtækinu í lokuðu hluta-
fjárútboði þar sem fagfjárfestar
geta tekið þátt.
Finnur Oddsson, forstjóri Ný-
herja, segir þessa leið hafa verið
farna þar sem hún sé hagkvæm og
rökrétt næsta skref til að efla félag-
ið.
„Við höfum tekið ákvörðun um að
leggja út í þetta útboð þar sem fag-
fjárfestum verður boðið að tryggja
sér hlut í félaginu. Heildarupphæðin
er 9,76% af heildarhlutafé félagsins
og því þarf ekki að vinna sérstaka
skráningarlýsingu í tengslum við út-
boðið. Með því komumst við hjá tölu-
verðum kostnaði sem slíku fylgir.“
Nýherji stefnir að
hækkun eiginfjár
Finnur Oddsson
!!
""
#$
#"
$!
%#!
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
$
"
"!
$ "
$$
$%
#"$
$
$
%
!%
$
$"
$"!
#"!
$#!
%#
● Matsfyrirtækið
Moody’s hefur
hækkað
lánshæfiseinkunn
Orkuveitu Reykja-
víkur úr B1 í Ba3. Í
umsögn Moody’s
segir að hækk-
unin endurspegli
þann árangur
sem náðst hefur við að bæta rekstrar-
afkomu, styrkja lausafjárstöðu og
draga úr fjárhagslegri áhættu fyrirtæk-
isins, um leið og efnahagsumhverfi og
markaðsaðstæður á Íslandi hafi farið
batnandi.
Moody’s hækkar láns-
hæfismat Orkuveitunnar
STUTTAR FRÉTTIR ...
Ómar Benedikts-
son, forstjóri
Farice, hafnar
fullyrðingum sem
komu fram í máli
Stefáns Baxter,
tæknistjóra hjá
Activity Stream,
og birtust í Við-
skiptaMogganum
í gær. Segir hann
alvarlegt mál að
fyrirtækið sé sakað um að halda uppi
verði á þjónustu sinni.
„Það er alrangt að við séum að
takmarka framboð á okkar þjónustu
til að halda uppi verði. Það eru eðli-
lega ákveðnar hömlur á því magni
sem ljósleiðari getur flutt en alltaf
þegar eftirspurnin eykst höfum við
brugðist við því með því að auka
framboðið á þjónustunni hjá okkur.“
Þá hafnar Ómar fullyrðingu Stef-
áns þess efnis að sérstök verðskrá sé
í gildi hjá félaginu fyrir heimilin í
landinu sem valdi því að þau greiði
tífalt hærra verð en heimili í Evrópu
og Bandaríkjunum. „Það liggur í
augum uppi að þessar fullyrðingar
eru rangar. Við seljum ekki þjónustu
okkar til heimila og því er engin
verðskrá í gangi gagnvart þeim. Það
er afar óheppilegt að menn fullyrði
hluti í þessa veru án þess að það eigi
sér nokkra stoð í raunveruleik-
anum,“ bætir Ómar við.
Segjast ekki
takmarka
framboð
Ómar
Benediktsson
● Evrópski Seðlabankinn hefur fært
stýrivexti sína niður um 10 punkta og
standa þeir nú í -0,3%. Hafa þeir aldrei
verið lægri.
Mario Draghi bankastjóri tilkynnti
jafnframt í gær að áætlun bankans um
magnbundna íhlutun yrði framlengd
og myndi standa fram á þarnæsta ár.
Gengi evrunnar hækkaði við fréttirn-
ar í dag en hlutabréfamarkaðir í álfunni
brugðust neikvætt við fréttunum.
Evrópski Seðlabankinn
lækkar vextina frekar