Morgunblaðið - 04.12.2015, Síða 22

Morgunblaðið - 04.12.2015, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Danir fengu ígær tæki-færi til að afsala sér hluta af fullveldi landsins til Brussel. Þeir afþökkuðu pent. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Danir afþakka þátttöku í þeim stöðugt aukna samruna sem skriffinnar í Brussel og stjórnmálaelítan í Evrópusambandinu berjast fyrir. Þeir höfnuðu til að mynda aðild að Maastricht- sáttmálanum árið 1992, en eins og svo margir kjósendur í Evr- ópusambandinu kannast við, þá hafði það ekki þau áhrif að Danmörk stæði utan Maast- richt-sáttmálans eða að sam- runaferli Evrópusambandsins hlyti verulegan skaða af. Það sem gerðist var að ári síðar voru Danir látnir kjósa aftur og þá tókst að fá samninginn samþykktan. Í millitíðinni höfðu Danir fengið undanþágur sem stjórn- málaelítan hefur síðan reynt að snúa til baka, síðast með kosningunni í gær þar sem kjósendur sýndu enn afstöðu sína til aukins samruna Evr- ópusambandsins. Áður, árið 2000, höfðu Danir hafnað því að taka upp evru og síðan hefur vofað yfir þeim að þurfa að kjósa aftur um evruna fyrst þeir tóku ranga afstöðu að mati þeirra sem telja sig vita betur en almenningur í löndum Evrópusambandsins hvað honum er fyrir bestu. Nýja kosningu um evruna hef- ur iðulega borið á góma, en ekki hefur enn orðið af henni, enda ekki talið líklegt að Danir myndu bíta á agnið. Stjórn- málaelítan bíður færis og næst þegar skoðanakannanir benda til að mögulegt sé að fá fram já má búast við að haldnar verði kosningar. Að vísu er líklegt að kosningarnar í gær seinki þessu, en danskir kjósendur, líkt og aðrir sem óhlýðnast þeim sem völdin hafa innan Evrópusambandsins, munu á endanum þurfa að sætta sig við að þurfa að kjósa aftur. Þetta undarlega fyrir- komulag, þar sem kosið er aft- ur ef þjóð segir nei, en niður- staðan er endanleg ef þjóð segir já, er hluti af því sem kallað hefur verið lýðræðis- halli í Evrópusambandinu. Ástæðan er sú að með slíku fyrirkomulagi getur þróunin aðeins orðið á einn veg; sífellt meiri samruni. Dönum tókst að hægja á samrunaferlinu með kosningunni í gær, en þeir stöðva hana ekki á meðan við- horf þeirra sem ráða innan Evrópusambandsins til kosn- inga eru eins og reynslan sýn- ir. Þetta er umhugsunarvert fyrir Íslendinga, sem búa nú við það að vita ekki hvort þeir eru umsóknarríki að Evrópusam- bandinu eða ekki, að minnsta kosti í skilningi Evrópu- sambandsins. Eins og fram kemur í Morgun- blaðinu í dag svarar stækk- unardeild sambandsins fyrir- spurn um þetta efni á þann hátt að þetta sé innanríkismál hér á landi sem framkvæmda- stjórn ESB blandi sér ekki í. Í svarinu segir ennfremur: „Framkvæmdastjórnin veltir ekki vöngum yfir mögulegri framvindu mála í framtíðinni.“ Þetta svar stækkunardeild- arinnar kemur í framhaldi af svari sendiherra ESB hér á landi, sem sagði óvíst hvort Ís- land þyrfti að leggja fram nýja umsókn ef ríkisstjórn Íslands myndi í framtíðinni óska eftir aðild. Augljóst er af þessum svör- um að forysta Evrópusam- bandsins vill hafa það í hendi sér að ákveða hvort og þá hve- nær viðræður við Ísland yrðu teknar upp á nýjan leik ef vilji til þess kæmi fram í ríkis- stjórn Íslands. Evrópusam- bandið vill ekki þurfa að fara í gegnum flókið ferli með form- lega umsókn í gegnum þjóð- þing allra ríkjanna, heldur láta nægja að samþykkja með hraði í Brussel að halda áfram ef hagfelldar aðstæður skapast hér á landi. Þetta er sú aðferð, að kjósa aftur þegar tíminn er talinn réttur, sem Evrópusam- bandið hefur ítrekað beitt til að fá vilja sínum framgengt. Engin ástæða er til þess fyrir íslensk stjórnvöld að umgang- ast þessi mál af einhverjum barnaskap og telja að önnur lögmál gildi um samskipti Ís- lands við Evrópusambandið en gilda um ríki sem þegar hafa gengið inn. Danir voru í gær látnir kjósa um undanþágurnar sem þeir knúðu fram á sínum tíma af því að Evrópusambandið og danska stjórnmálaelítan vilja að allir gangi í takt í samruna- átt. Nei Dana felur aðeins í sér að því skrefi í samrunaferlinu sem ætlunin var að taka í gær hefur verið frestað þar til bet- ur árar hjá dönskum kjós- endum fyrir evrópskan sam- runa. Sá tími kemur sennilega að endingu og hann þarf ekki að vara lengi, aðeins rétt á meðan verið er að boða til kosninga og stilla upp kjör- kössunum. Hið sama gildir um Ísland á meðan stjórnvöld hafa ekki talað skýrt og sent Evrópu- sambandinu það formlega er- indi sem ekki er hægt að mis- skilja. Þangað til er Íslandi haldið í óvissu um framtíð landsins gagnvart Evrópusam- bandinu með tilheyrandi póli- tískum átökum hér á landi. Danir sögðu nei en mega búast við að verða látnir kjósa aftur þegar betur stendur á fyrir ESB} Danir kusu fullveldið S kyldi veðurfarið á Íslandi verða hlýrra ef við færum að nota Fa- hrenheit hitamæla í staðinn fyrir Celsíus líkt og verið hefur til þessa? Það er allavega jafnlíklegt og að hagstjórnin hér á landi lagist við það að skipta um gjaldmiðil eins og sumir virðast halda. Gengi gjaldmiðla er jú í eðli sínu fyrst og fremst mælikvarði á stöðu mála í hagkerfunum sem þeir þjóna og hvernig þeim er stjórnað. Sé hagkerfum ekki stýrt nægjanlega vel kemur það ekki sízt fram gengi gjaldmiðla. Hins vegar hefur hentað ýmsum, einkum af pólitískum ástæðum, að gera íslenzku krónuna að blóraböggli fyrir nánast allt sem aflaga hefur farið í efnahagsmálum Íslands síðustu áratugina. Stað- reyndin er þó sú að slíkar fullyrðingar standast ekki nánari skoðun. Þetta hefur til að mynda dr. Ólafur Margeirsson hagfræðingur bent á. Háir vextir, verð- bólga og gengissveiflur hafi þannig ekkert með krónuna að gera heldur stofnanalegt umhverfi hagkerfisins. Því hefur verið haldið fram að oft á tíðum háir vextir hér á landi séu afleiðing smæðar hagkerfisins og þar með lít- illar spurnar eftir krónunni. Ólafur hefur bent á að ef þessi staðhæfing stæðist ætti það sama að gilda um önnur lítil hagkerfi. Þar á milli sé hins vegar í bezta falli afskaplega veik fylgni. Það sem hafi þar miklu fremur áhrif sé til að mynda uppbygging lífeyrissjóðakerfisins þar sem ávöxt- unarviðmiðið sé 3,5% sem aftur hafi vafalítið umtalsverð áhrif á langtimavexti. Eins hefur verið fullyrt að mikil verðbólga sé fylgifiskur íslenzku krónunnar. Þannig hafi krónan misst mest allt verðgildi sitt frá því að henni var komið á laggirnar. Ólafur hefur bent á í því sambandi að frá árinu 1886 hafi pen- ingamagn í umferð hér á landi aukizt rúmlega 211.000.000-falt. Þó hagkerfið hafi vissulega stækkað töluvert síðan hafi sú stækkun alls ekki verið svo mikil.Virðisrýrnun krónunnar sé einkum afleiðing þess að of mikið hafi verið búið til af henni í gegnum tíðina. Í seinni tíða aðallega af bönkunum. Krónan ráði hins vegar litlu um það hversu mikið sé búið til af henni. Verðtryggingin hefur einnig ranglega verið skrifuð á reikning krónunnar. Verðtryggingin er einfaldlega hluti stofnanaumgjörð íslenzka hagkerfisins eins og Ólafur hefur bent á. Henni hafi verið komið á sínum tíma sem svari við þáverandi vandamáli, verðbólgu. Hins vegar sé ljóst að verðbólga hefði ekkert með krónuna að gera og þar af leið- andi ætti það sama við um verðtrygginguna. Eða eins og Ólafur hefur orðað það: Ef A (krónan) leiðir ekki af sér B (verðbólgu) en B leiðir af sér C (verðtrygging) leiðir A ekki af sér C. Raunveruleikinn er sá að hagstjórnin lagast ekki við það að skipta um gjaldmiðil. Ekki frekar en að aksturs- hæfileikar ökumanns batni við það eitt að skipta um bif- reið. Það er fyrst og fremst hagstjórnin sem er málið og sé hún í lagi skiptir í raun engu máli hvað gjaldmiðillinn heit- ir sem notaður er. hjortur@mbl.is Hjörtur J. Guðmundsson Pistill Hlýrra veður með Fahrenheit? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Íslenskan er dauð og munekki lifa mikið lengur endakunna allir Íslendingar enskuog börn alast hér upp í ensku umhverfi,“ segir Úlfar Erlingsson, forstöðumaður tölvuöryggisrann- sókna hjá Google, í samtali við Morgunblaðið. Hann hélt nýverið erindi á aðal- fundi Hins íslenska bókmennta- félags þar sem staða íslenskrar tungu var meðal annars til um- fjölluar. Er íslenskan að mati Úlfars í sambærilegri stöðu og velska á Bretlandi. „Þetta er augljóst í aug- um allra þeirra sem eiga ung börn sem alast upp við að horfa á mynd- efni á YouTube eða Netflix. Tækni- bylting nútímans býður hins vegar upp á að tölvan fari í hlutverk eins konar babelfisks sem túlkað getur sjálfkrafa fyrir okkur,“ segir Úlfar og bætir við að það sé einn helsti munurinn á stöðu íslenskrar tungu og þeim tungumálum sem þegar eru orðin útdauð. „Nú allt í einu er þessi tækni orðin til en við erum aftur á móti í miklu kapphlaupi við tímann til þess að bregðast við,“ segir hann. Þyrftum ekki að heyra ensku Að sögn Úlfars er lítið mál að koma í veg fyrir að þeir sem horfi á myndefni í gegnum skjái heyri eða sjái ensku. „Allt sem birtist á skjá er sjálfkrafa hægt að túlka yfir á ís- lensku án þess að þeir sem búa til forritin viti nokkuð um tungumálið. Það er skjárinn sjálfur sem sér um að túlka og talsetja sjónvarpsefnið fyrir okkur,“ segir hann. Sú tækni sem nú er við lýði ræð- ur vel við að talsetja einfaldara myndefni á borð við teiknimyndir og getur Úlfar sér þess til að eftir þrjú ár verði einnig hægt að gera slíkt hið sama við allar kvikmyndir. „Ég tel það mjög líklegt enda tekur tæknin ótrúlega örum breytingum.“ Eiríkur Rögnvaldsson, prófess- or í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, segir íslensku standa höll- um fæti og nefnir einkum þrennt sem hafi haft áhrif á umhverfi og að- stæður tungumálsins. „Má þar fyrst nefna YouTube- og Netflix-væðinguna sem býður upp á ótakmarkað aðgengi að óþýddu efni, snjalltækjavæðinguna, sem er sítenging við enskan málheim frá morgni til kvölds, og alþjóðavæð- inguna, en hún birtist meðal annars í því að ungt fólk sér ekki endilega framtíð sína á Íslandi,“ segir Eiríkur og vitnar þar til nýlegrar könnunar sem sýndi fram á að um helmingur íslenskra framhaldsskólanema vildi búa erlendis. „Maður getur að sama skapi ímyndað sér að þessi nið- urstaða segi einnig margt um við- horf þeirra til íslenskunnar, enda gagnast hún lítið erlendis.“ Tungan glatast með tímanum Þannig hefur að sögn Eiríks allt umhverfi íslenskunnar breyst mjög á örfáum árum og líkir hann um- hverfi tungumálsins nú við það er Ís- lendingar fluttust búferlum til Bandaríkjanna og Kanada seint á 19. öld. „Þeir ætluðu að halda í það sem íslenskt var og stofnuðu meðal ann- ars sjálfstæðar byggðir, gáfu hlutum og stöðum íslensk heiti og gáfu út blöð á íslensku svo fátt eitt sé nefnt, en svo glatast þetta smám saman og hætt er við að það muni einnig gerast hér,“ segir hann og heldur áfram: „Það sjást e.t.v. ekki miklar afleið- ingar núna né eftir fimm til tíu ár, en þegar þær virki- lega koma fram verður of seint að bregðast við þess- ari þróun.“ Íslensk tunga á und- anhaldi fyrir ensku Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Námsmenn Innan veggja háskólanna er enska mjög áberandi enda velja fjölmargir skiptinemar sem ekki tala íslensku að stunda nám hér á landi. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, segir ljóst að þótt ís- lenska sé töluð af mjög fáum einstaklingum sé hún hins veg- ar notuð á öllum sviðum sam- félagsins. „Hún er notuð í stjórnkerfinu, menntakerfinu, verslun og við- skiptum, fjölmiðlum, menning- arlífinu og í öllum daglegum samskiptum fólks. En staðan gæti hins vegar verið að breyt- ast og þá einkum meðal ungs fólks,“ segir Eiríkur. Þá bendir hann jafnframt á að innan íslensku háskólanna er ensk tunga mjög áberandi þeg- ar kemur að bæði kennslu og námsefni nemenda, en ekki er óalgengt innan deilda eða áfanga að allt námsefni sé á ensku. Veltur mikið á ungu fólki KENNT Á ENSKU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.