Morgunblaðið - 04.12.2015, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 04.12.2015, Qupperneq 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2015 List Með sýningu á höggmyndinni Útlögum 1901 haslaði Einar Jónsson sér völl sem myndhöggvari, en snjókoman að undanförnu hefur gert listaverkið við Hólavallakirkjugarð óþekkjanlegt. RAX Andrúmsloftið er stundum tekið sem dæmi í hagfræði um það sem kalla má frjáls gæði. Sú hugsun byggist á því að ekki þarf að greiða fyrir afnot af andrúms- lofti og að eilítil afnot skerði ekki gæði ann- arra. Nú eru efasemdir um að eilítil notkun af andrúmslofti með efna- blöndun við koltvísýring, sem er af- urð bruna, geti leitt af sér hlýnun andrúmslofts. Sama er um vatnið, sem rennur í læk og á. Ellegar í krananum á heimilinu; eftir að búið er að tengja er vatnsnotkun frjáls. Höfundi finnst á stundum að þegar mannkynið lærði að beisla vatnið, þá hafi orðið framfarir, hvort heldur í lífinu eða verkum mannanna. Vissulega á höfundur margar eft- irminnilegar stundir úr skóla. Magur lærdómur fór fyrir ofan garð og neð- an. Tvennt vil höfundur nefna af minnisstæðu í menntaskóla; það er í efnafræðitíma hjá Sig- rúnu Guðjónsdóttur er hún nefndi „Ökolo- giu“, sem hún kallaði þá strax vistfræði, og einnig hjá Böðvari Guðmundssyni í bók- menntum þá er hann fjallaði um ljóð og ljóðatúlkun. Þá blönd- uðust tvær fræði- greinar þegar Böðvar fjallaði um ljóð Nordahls Grieg í þýð- ingu Magnúsar Ásgeirssonar. Lest- ur ljóðsins var miklu meira en bók- menntir, það var áminning í umhverfismálum. Kvæði Griegs er sennilega ort fyr- ir stríð, en sem kunnugt er fórst skáldið með flugvél í loftárás á Þýskaland í desember 1943. Hann var mjög vinstri sinnaður en ekki sagður vera meðlimur í Komm- únistaflokki Noregs. Lesendur eiga að sjálfsögðu að horfa fram hjá póli- tískum skoðunum, því skáld og rit- höfundar eru oftar en ekki vondir stjórnmálamenn á sama hátt og stjórnmálamenn eru oftast vond skáld. Þegar mannkynið stendur frammi fyrir mikilli spurningu í umhverf- ismálum og leitar svara á ráðstefnu í París er vert að rifja upp ljóð Nor- dahls Grieg. Sem unnandi náttúru til sjávar og sveita, í dölum og á eyrum hefur höfundur hugsað til þeirra fé- laga Nordahls og Magnúsar. Borið saman vatnið í Jökulsá eystri við Skatastaði og skólpið í Sjanghæ. Ef til vill er liturinn eins en allt annað er á annan veg. Eða vatnið í Hesteyrará eftir langa göngu; „Ég er heimanvilltur ... veikur. Vatnið heima, ó, Drottinn minn!“ Vatn Sólin kastar sér á landsins svörð úr fylgsnum skýjahæða eins og yfir bráð í blindni blóðþyrst, kvíðug tígrislæða. Undir dýrsins drungafargi dauðamóð og níst við svörðinn, undir ljósi og óþefsmollu, undir byrðum hafnarinnar, másar seinfær mannahjörðin. Berst sem eimur blóðs og svita burðarkarla hryglusöngur yfir höfn og hleðslutorg sumardag í Shanghai-borg. Gin and bitter! Gin and bitter! Drykkjustofan skipuð gestum. Gegnum hróp og glaum við borðin glittir, skín, í drykk við drykk. Mókandi augu í móðu hitans mara í kafi, rauð og þrútin, dvelja um stund við dagg-grá staup- in, – gin and bitter, boy – be quick! Inn í skuggans líkn við leitum, landar tveir á útigangi. Ég er að kveðja – býst á brott. Hann, er kyrr skal sitja og sakna, sér, að mér í augum þegar lyftist brún af landsýn Noregs. – Lucky devil, þú átt gott! Hérna er annars allt í lagi, allt af hestar, bíll og þjónar, ekkert vantar, allt til taks. Það er bara þessi löngun, þrá, sem ekki er hægt að svæfa, – gin and bitter, boy! – og strax! Veiztu hvað ég þrái, – þó að það sé bara til að hlæja að – og ég gæfi af ævi minni ár til þess að sjá og fá, – hvað mig er að dreyma á daginn, – hvað mér veldur vöku um nætur? Vatn í læk og á. Vatn, sem sem streymir, vatn, sem niðar vor og haust með sínu lagi. Getur þú skilið þessa þrá? Ekki sem hér eystra – þræsið ýlduskólp, sem mógult flýtur fram með rek af rottuhræjum, ræsaþef og forardaun. Eitt sinn, er ég féll i freistni fyrir mínum þorsta, fékk ég sjúkravist í syndarlaun. Vatnið hreina, vatnið heima, vatn, sem lagzt er hjá og þambað, – þetta vatn mér veldur þrá. Kannske er hlý og hæglát rigning. Hljóðfall dropa úr björk og lyngi kliðar létt við kaldan strauminn. Kannske er yfir þoka grá. Þetta er mig oft að dreyma: Að ég liggi þarna og svelgi. Freyðir um og yfir báða úlnliðina vatnið kalt. Stinnum hnúum stutt í botninn. Steinar marka för í holdið við hinn svala þunga þrýsting. Þannig sé og finn ég allt og allt. Gin and bitter, boy! Og manstu bragðið? Undan jökulfönnum niður hlíð það knýst og kastast kryddað safa úr runni og skóg. Nakið berg og brúnar rætur blanda flauminn sínum keimi, berjalyng og blóðbergstó Hreint og ískalt iðar, fossar, allt í flaumnum, heiðin, loftið, endalaust og öllum skilning ofar, manni að vör og kinn. Fossar . . . iðar . . . Allt er svölun. Áin kliðar, niðar friðar. Ég er heimanvilltur . . . veikur. Vatnið heima, ó, Drottinn minn! Ákall Ljóð Nordahls Grieg er ákall til mannkyns. Það er ákall til þeirra sem sækja loftslagsráðstefnu í París um að draga úr losun iðnaðarúr- gangs. Það eru til mælikvarðar á framleiðslu í hlutfalli við kolefni. Það er kallað kolefnaspor. Það er einfald- ur mælikvarði að mæla hvert er hlut- fall landsframleiðslu og notkunar á jarðefnaeldsneyti. Ljóð Griegs kom í huga höfundar þegar fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna fjallaði um þetta hlutfall í landsfram- leiðslu Kínverja. Umhverfismál eru mælanleg. Sennilega hefur ekkert land gengið eins langt í að nýta mengunarlausar lausnir við orku- framleiðslu. Vissulega eru fiskveiðar og samgöngur eftir, en orkunýting hefur batnað en betur má ef duga skal. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Ljóð Nordahls Grieg er ákall til mann- kyns. Það er ákall til þeirra sem sækja lofts- lagsráðstefnu í París um að draga úr losun iðn- aðarúrgangs. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur er alþingismaður. Vatn Nordahls og Magnúsar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.