Morgunblaðið - 04.12.2015, Qupperneq 35
Tryggvaskála ásamt foreldrum sín-
um allt til þess dags er hótelið var
selt vorið 1974. Það sama ár stofn-
aði Bryndís sitt eigið fyrirtæki,
verslunina Lindina, og vann við
rekstur hennar til ársins 1989 en
þá tók dóttir hennar, Kristín Haf-
steinsdóttir, við rekstri fyrir-
tækisins. Árið 1989 hóf Bryndís
störf hjá Sjóvá – Almennum trygg-
ingum hf. á Selfossi sem umboðs-
maður og síðar útibússtjóri. Áður
hafði Bryndís verið umboðsmaður
fyrir Sjóvátryggingarfélag Íslands
hf. Bryndís lauk störfum sem úti-
bússtjóri árið 2010.
Virk í félagsmálum
Bryndís var einn af stofnendum
Zontaklúbbs Selfoss sem var stofn-
aður árið 1972, var hún fyrsti for-
maður klúbbsins. Sat hún einnig í
Norðurlandastjórn Zontaklúbb-
anna 1982-1984 en Bryndís er enn
þann dag í dag starfandi fyrir
klúbbinn sinn.
Bryndís sat í bæjarstjórn Sel-
foss fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1986-
1994. Í kosningunum 1990 leiddi
hún lista sjálfstæðismanna. Kjör-
tímabilið 1990-1994 gegndi hún
embætti forseta bæjarstjórnar í
tvö ár og síðan embætti formanns
bæjarráðs í tvö ár. Bryndís sat í
fjölda nefnda og ráða, m.a. Hér-
aðsnefnd Árnesinga 1990-1994,
stjórn Sass 1990-1994, í stjórn
Sambands íslenskra sveitarfélaga
1990-1994, stjórn Heilbrigðisstofn-
unarinnar á Selfossi ásamt því að
vera varamaður í stjórn Lands-
virkjunar og Skipulagsstjórn rík-
isins. Árið 1998 gekk Bryndís fyrst
kvenna til liðs við Rótarýklúbb
Selfoss en það ár fagnaði klúbb-
urinn 50 ára afmæli sínu.
Tryggvaskáli endurbyggður
Árið 1996 stofnaði Bryndís
ásamt nokkrum öðrum ein-
staklingum Skálafélagið sem hafði
það að markmiði að bjarga og
endurbyggja Tryggvaskála.
Félagsmönnum tókst það ætl-
unarverk sitt og lauk endur-
byggingunni 2014 en það ár hófst
veitingahúsarekstur að nýju í hús-
inu. „Þetta kostaði mikla sjálfboða-
vinnu og lögðu margir hönd á
plóginn við að koma húsinu í sem
upprunalegast horf og var ekkert
til sparað við það. Við fengum síð-
an umhverfisverðlaun bæjarins
fyrir fallegustu lóðina.“
Fjölskylda
Eiginmaður Bryndísar, 26.12.
1965, er Hafsteinn Már Matthías-
son, mjólkurtæknifræðingur, f.
28.1. 1943. Foreldrar hans: Matt-
hías Jónsson, múrarameistari, f.
27.11. 1922, d. 6.8. 2014, og Laufey
Guðmundsdóttir, fiskimatsmaður,
f. 3.3.1923, d. 20.12. 1981.
Dætur Bryndísar og Hafsteins:
Kristín Hafsteinsdóttir, f. 2.10.
1963, viðskiptafræðingur á Sel-
fossi, sonur hennar er Bjarki Már
Magnússon, nemi, f 1996; Berglind
Hafsteinsdóttir, f. 8.8. 1976, sjón-
tækjafræðingur á Selfossi. Maki
Brynjar Þór Heiðarsson, sjúkra-
flutningamaður á Selfossi, börn
þeirra eru Alexander, f. 2006, og
Filippía, f. 2011.
Systkini Bryndísar: Þórunn
Mogensen ritari, f. 27.10. 1925, d.
26.3. 2007, Guðrún Hulda Brynj-
ólfsdóttir, húsfreyja, f. 25.9. 1931,
d. 1.3. 2014, Árni Brynjólfsson,
húsvörður, f. 25.6. 1934, d.15.5.
2004.
Foreldrar: Brynjólfur Gíslason,
veitingamaður í Tryggvaskála á
Selfossi, f. 19.3. 1903, d. 21.6. 1983,
og Kristín Árnadóttir, hótelstýra
í Tryggvaskála, f. 6.6. 1901, d. 25.7.
1974.
Úr frændgarði Bryndísar Brynjólfsdóttur
Bryndís
Brynjólfsdóttir
Málfríður Benediktsdóttir
bústýra á Ketilsstöðum og
vinnukona víða í Holtum, Rang.
Magnús Bjarnason
bóndi og silfursmiður á
Ketilsstöðum í Holtum,
síðar í Hafnarf.
Þórunn Magnúsdóttir
húsfreyja í Látalæti
Árni Árnason
bóndi í Látalæti í Landsveit, Rang.
Kristín Árnadóttir
hótelstýra í Tryggvaskála
Ingiríður
Guðmundsdóttir
húsfreyja í Fellsmúla
Árni Árnason
bóndi í Fellsmúla í Landsveit, Rang.
Kristín Hannesdóttir
húsfreyja í Eystri-Meðalholtum
Jón Magnússon
bóndi í Eystri-Meðal-
holtum í Flóa, Árn.
Kristín Jónsdóttir
húsfreyja á Haugi
Gísli Brynjólfsson
þjóðhagasmiður og bóndi á
Haugi í Gaulverjarbæjarhr., Árn.
Brynjólfur Gíslason
veitingamaður í
Tryggvaskála Selfossi
Valgerður Guðmundsdóttir
húsfreyja á Sóleyjarbakka
Brynjólfur Einarsson
hreppstjóri og bóndi á Sóleyjar-
bakka, Hrunamannahr., Árn.
Gísli Gíslason
verslunarmaður
í Rvík
Ingiríður Árnadóttir
húsfreyja á Selfossi
Margrét Árnadóttir
húsfr. í Rvík
Málfríður Árna-
dóttir húsfreyja á
Bjalla í Landsveit
Ágústa Árnadóttir
húsfr. í Rvík
Svanfríður
Ingvarsdóttir
skrifstofum. í Rvík
Erna
Árnadóttir
íslensku-
fræðingur
Signý
Sæmundsd.
söngkona
Högni Egilsson
söngvari
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
svæðisstj. UN Women
Árni Einarsson kaup-
maður í Reykjavík
Guðrún Hallgrímsdóttir
matvælafræðingur
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 2015
90 ára
Anna Dagmar Daníelsdóttir
Jónmundur Gíslason
Sveinbjörn Guðlaugsson
85 ára
Oddný Ester Einarsdóttir
Ólafur Andrés Gíslason
Sigurður Indriðason
Þorsteinn Þórðarson
80 ára
Ingibjörg Birna
Þorláksdóttir
Ólöf Geirsdóttir
Þorlákur Ásgeirsson
75 ára
Ebba Ólafsdóttir
Elínborg Bernódusdóttir
Guðjón Guðlaugsson
Hörður Ævar Júlíusson
Ingibjörg Elísdóttir
Olga P. Oddsdóttir
Örn Pálsson
70 ára
Kolbrún Vigfúsdóttir
Margrét Sveinbergsdóttir
Ólafía Bjargmundsdóttir
Sigurbjörn Ingólfsson
Úlfar Harðarson
60 ára
Anna Mary H. Pétursdóttir
Arnar Jensson
Einar Hjörleifur Ólafsson
Erna Friðriksdóttir
Halldór Kristján Jónsson
Jostein Ingulfsen
Jónína Margrét
Davíðsdóttir
Magnús Ásmundsson
Nikulás Ásgeir
Steingrímsson
Rósa Kristbjörg
Magnúsdóttir
Sólveig Róbertsdóttir
Svanfríður Ingvadóttir
Tryggvi Sæmundsson
Þóra Björg
Alexandersdóttir
50 ára
Anna Garðarsdóttir
Anna Guðrún Snorradóttir
Anna María
Benediktsdóttir
Baldur Jónasson
Fjóla Íris Stefánsdóttir
Helga Sigurbjörg
Árnadóttir
Jón Gunnlaugur
Sigurjónsson
Rakel Steinarsdóttir
Sigurbjörg Kristín
Óskarsdóttir
40 ára
Aðalheiður Hulda
Jónsdóttir
Bjarki Rafn Eiríksson
Bryndís Stefánsdóttir
Guðbjörn Óskarsson Perry
Gyða Björk Jóhannsdóttir
Gylfi Steinar Gylfason
Hugi Freyr Valsson
María Ósk Guðbjartsdóttir
Siggeir Vilhjálmsson
Sigrún Fossberg
Arnardóttir
Smyrill Traustason
Snæbjörn Viðar Narfason
Telma Lind Baldursdóttir
30 ára
Adrien Xavier Martin
Bonnan
Guðbergur Baldursson
Guðrún Harðardóttir
Gunnar Jóhannsson
Kieraah L. Marlow
Oddur Þorkell
Jóakimsson
Rogélia Pinheiro Grilo
Til hamingju með daginn
30 ára Helga ólst upp í
Danmörku og Reykjavík,
býr í Mosfellsbæ, lauk
MA-prófi í sálfræði frá
Kaupmannahafnarhá-
skóla og er deildarstjóri
hjá Reykjavíkurborg.
Maki: Gísli Jónsson, f.
1985, viðskiptafræðingur.
Foreldrar: Birna Róberts-
dóttir, f. 1960, verkefna-
stjóri hjá Reykjavíkurborg,
og Magnús Gíslason, f.
1957, óperusöngvari í
Danmörku.
Helga Clara
Magnúsdóttir
Sigurður fæddist í Reykjavík4.12. 1916. Hann var ættaðuraf Snæfellsnesi, sonur Ólafs
Jónatanssonar, verkamanns í
Reykjavík, og k.h., Þuríðar Jóns-
dóttur, frá Elliða í Staðarsveit.
Ólafur var sonur Jónatans, b. á
Kolbeinsstöðum, bróður Páls, lang-
afa Megasar. Þuríður var systir
Vigfúsar, föður Erlings söngvara.
Systir Þuríðar var Stefanía, móðir
Oddfríðar skáldkonu, móður Guð-
mundar Ingólfssonar, einhvers vin-
sælasta djasspíanistasnillings þjóð-
arinnar, fyrr og síðar.
Bræður Sigurðar voru Erling
Ólafsson söngvari og Jónatan Ólafs-
son, píanóleikari, hljómsveitarstjóri
og tónskáld, afi Jónatans Garð-
arssonar, dagskrárgerðarmanns,
tónlistarútgáfustjóra og fyrrv. for-
manns Jazzvakningar.
Eiginkona Sigurðar varInga Val-
fríður Einarsdóttur frá Miðdal
(Snúlla) sem lést á þessu ári, há-
öldruð, og eignuðust þau sex börn,
Valgerði, f. 1937, Erling, f. 1942,
Ævar, f. 1944, Þuríði, f. 1949, söng-
konu, Ólaf, f. 1950, og Gunnþór, f.
1960, en dóttir Sigurðar frá því fyr-
ir hjónaband er Elsa.
Sigurður var bílstjóri á sínum
yngri árum, rannsóknarmaður á
Rannsóknarstofu HÍ og á Keldum,
gærumatsmaður hjá SÍS, kjötmats-
maður hjá yfirdýralækni og sá um
talningu búfjár í borgarlandinu.
Sigurður sótti ungur söngtíma til
Sigurðar Birkis og Guðmundar
Jónssonar, söng með Karlakór
Reykjavíkur og síðar með eldri fé-
lögum kórsins. Hann söng í Rigo-
lettó, fyrstu óperunni sem hér var
færð upp, í óperettunum Leður-
blökunni og Bláu kápunni og lék og
söng í fjölda leikrita.
Sigurður hélt fjölda tónleika, var
söngvari með ýmsum dans-
hljómsveitum og söng dægurlög inn
á fjölda hljómplatna. Þá var Sig-
urður landsþekktur hestamaður,
stundaði hestamennsku frá ferm-
ingaraldri og átti fjölda hrossa.
Þekktasta skeiðhross hans var
Gletta sem átti Íslandsmet í skeiði í
28 ár.
Sigurður lést 13.7. 1993.
Merkir Íslendingar
Sigurður
Ólafsson
30 ára Kristbjörg Tinna
ólst upp í Hafnarfirði, býr
þar og er að ljúka prófum
í hjúkrunarfræði við HÍ.
Sonur: Styrmir Ási, f.
2008.
Systkini: Jón Ásbjörns-
son, f. 1992, Tindur Orri
Ásbjörnsson, f. 1995, og
Ylfa Hrönn Ásbjörnsdóttir,
f. 1997.
Foreldrar: Kristín Jóns-
dóttir, f. 1961, og Ásbjörn
Sigþór Snorrason, f.
1962.
Kristbjörg T.
Ásbjörnsdóttir
30 ára Jónas býr í
Vesturbænum, er að ljúka
meistaranámi í pípulögn
og rekur JJ Pípulagnir.
Maki: Linda Berry, f. 1971,
hefur lengi starfað hjá
Reykjavíkurborg.
Börn: Svanhildur Mörk, f.
2007, og Aaron Ísak, f.
1998 (stjúpsonur).
Foreldrar: Svanhildur
Norðfjörð Erlingsdóttir, f.
1954, og Jónas Baldurs-
son, f. 1951.
.
Jónas Ævarr
Jónasson