Morgunblaðið - 05.12.2015, Blaðsíða 1
60
JÓLAGJAFA
SUNNUDAGUR
PARÍS EFTIR VOÐAVERKIN
GOTT
LÍF ÁNGLÚTENS
SAUMAKLÚBBURÆSKUVINKVENNA
JÓLASV
3
FERÐALÖG 23
ÞÓRUNN EVA 18
MATUR 32
HVAÐ Á AÐ GEFAÍ SKÓINN?
6. DESEMBER 2015
HANN ER ANDLEGUR STUÐNINGUR STRÁKANNA OKKAR OG SEGIR
VELGENGNI ÞEIRRA Á EM MIKILVÆGARI EN AÐ HANN VERÐI FORSETI 44
*
LANDSLIÐIÐGENGUR FYRIR
L A U G A R D A G U R 5. D E S E M B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 286. tölublað 103. árgangur
ÍSLENSK FYRIR-
TÆKI Í NOREGI
VERÐLAUNUÐ
KAFFIHÚS
TRYGGVA
HJÁ ÓFEIGI
SEX LISTMÁLARAR 54BALESTRAND 22
19
GLUGGAR TIL JÓLA
„Mér finnst gaman að læra allt!“
hrópar Walid, átta ára sýrlenskur
drengur. Hann er meðal um 150
barna sem koma nær daglega á
barnvænt svæði UNICEF í Bekaa-
dalnum í Líbanon til að leika sér og
læra. Svæðið er m.a. rekið með að-
stoð 27 þúsund íslenskra heimsfor-
eldra.
Um hálf milljón barna flúði stríð-
ið frá Sýrlandi til Líbanons. Þau
búa nú flest við sára fátækt.
„Þessi börn hafa misst allt,“ segir
Maria Assi, forseti líbönsku mann-
úðarsamtakanna Beyond Associa-
tion (BA). „Húsin sín, skóla sína,
allt. Foreldrarnir hafa misst lífsvið-
urværi sitt. Allt í einu búa þau í
tjaldi. Eina skjólið sem þau hafa er
nælondúkur.“
UNICEF og BA reka 47 barnvæn
svæði fyrir flóttabörnin í Líbanon.
Þar er allt kapp lagt á að þau njóti
öryggis og geti gleymt sér í leik.
„En þau hafa ekki gleymt því sem
gerðist í Sýrlandi,“ segir Maria.
Ljósmynd/Dar Al Mussawir
Leikur Lítil stúlka leikur sér
með leir á barnvæna svæðinu.
Flúðu stríð
en búa
við fátækt
Sýrlensk börn fá
skjól hjá UNICEF
MMeð bros »18-20
„Þetta er meira en ég hefði nokk-
urn tímann getað ímyndað mér,“
sagði sundkonan unga Eygló Ósk
Gústafsdóttir við Morgunblaðið í
gær, eftir að hafa aftur unnið til
bronsverðlauna á Evrópumeistara-
mótinu í sundi í 25 metra laug í Ísr-
ael.
Eygló varð í fyrradag fyrst ís-
lenskra kvenna til að vinna til verð-
launa í sögu mótsins með því að ná
3. sæti í 100 metra baksundi og end-
urtók leikinn í gær með því að ná 3.
sæti í 200 metra baksundi. Úr-
slitasundið í gær var æsispennandi
en Eygló hafði þar meðal annars
betur gegn hinni þýsku Jenny
Mensing, fyrrverandi Evrópumeist-
ara, sem Eygló hefur lengi fylgst
með. Eygló kom að bakkanum á
2:03,53 mínútum í úrslitasundinu í
gær, og hafði þá tvíbætt Íslandsmet
sitt yfir daginn.
Með þessum árangri kórónar
Eygló frábært ár þar sem hún synti
meðal annars til úrslita á HM í 50
metra laug, setti Norðurlandamet í
200 metra baksundi í 50 metra laug
og vann sér sæti á öðrum Ólympíu-
leikum sínum, aðeins tvítug að
aldri. Enn er þó nóg eftir hjá henni
á árinu. » íþróttir
Meira en ég gat ímyndað mér
AFP
Brons Eygló Ósk Gústafsdóttir með
bronsverðlaun sín, við hlið Evr-
ópumeistarans Katinku Hosszu.
Eygló Ósk vann aftur til bronsverðlauna á EM í Ísrael
Guðni Einarsson
Auður Albertsdóttir
Vonskuveður var í nánast öllum
landshlutum síðdegis í gær og í gær-
kvöldi. Þjóðvegum var ýmist lokað af
öryggisástæðum eða þeir voru meira
og minna ófærir vegna veðurs.
Að sögn Vegagerðarinnar var
stórhríð nánast á öllu Suðurlandi og
gríðarlega blint. Vegunum um Sand-
skeið, Hellisheiði og Þrengsli var
lokað laust fyrir kl. 20.00 í gær-
kvöldi. Vegurinn undir Hafnarfjalli í
Borgarfirði lokaðist undir kvöld
vegna hvassviðris, hálku og umferð-
aróhappa. Fróðárheiði var ófær og
hálka víðast hvar á vegum á Vest-
urlandi. Óveður var á fjallvegum á
sunnanverðum Vestfjörðum og
versnandi færð.
Vindur fór vaxandi á Norðurlandi
með vaxandi skafrenningi. Óveður
var á Siglufjarðarvegi og stórhríð á
Öxnadalsheiði og hún ófær. Einnig
var stórhríð víða á Austurlandi og
flestir vegir ófærir. Stórhríð var
sömuleiðis með suðausturströndinni.
Menn höfðu varann á sér í gær
vegna djúprar lægðar sem var vænt-
anleg sunnan úr hafi. Veðurstofan
var búin að vara við óveðrinu og
þótti ljóst að ekkert ferðaveður yrði
með suðausturströndinni. Hringveg-
inum var lokað frá Markarfljóti að
Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi
síðdegis í gær. Lokunarstaðir voru
einnig við Lómagnúp og Freysnes í
Öræfum.
Snælduvitlaust veður í Öræfum
Mjög hvasst var í Öræfum í gær.
Sjálfvirk veðurstöð Vegagerðarinn-
ar við Sandfell mældi t.d. norðaustan
vindhviðu sem fór yfir 58 m/s um kl.
17.00. Meðalvindurinn þar var þá 25-
26 m/s. Önnur hviða yfir 54 m/s kom
nokkru síðar.
Einar R. Sigurðsson, fjallaleið-
sögumaður í Hofsnesi, sagðist aldrei
hafa lent í öðru eins veðri og í gær.
„Ég ók einn kílómetra frá Fagur-
hólsmýri og ég meira að segja villt-
ist, fór framhjá afleggjaranum. Ég
fann ekki húsið mitt, sem ég er búinn
að búa í alla mína ævi. Ég þurfti að
kveikja á gps-tæki og sjá hvar ég var
á veginum. Ég hef aldrei upplifað
það áður að finna ekki húsið mitt,“
sagði Einar. Hann sagði veðrið á
svæðinu „snælduvitlaust“. „Maður
sér ekki út úr augunum. Hérna eru
örugglega stöðugir 30 plús metrar
en á þjóðveginum er þetta verra.
Hviðurnar eru þannig að bílar gætu
einfaldlega fokið af veginum á
ákveðnum stöðum þar sem vindur-
inn kemur niður af Öræfajökli.“ »4
Morgunblaðið/RAX
Berjanes í V-Landeyjum Það var blint í hryðjunum sem gerði í Landeyjum í gær. Veðrið versnaði eftir því sem austar dró og var líklega verst í Öræfum.
Vont veður nánast um allt
Vegir lokuðust vegna óveðurs og ófærðar í nánast öllum landshlutum Borinn
og barnfæddur Öræfingur hefur aldrei lent í öðru eins óveðri og þar geisaði í gær
Forysta ESB hefur fengið skýr skila-
boð frá Íslendingum um að umsókn
um aðild að bandalaginu hefur verið
dregin til baka. Þetta segir Bjarni
Benediktsson, fjármálaráðherra og
formaður Sjálfstæðisflokksins, en
sem kunnugt er hefur sendiherra
ESB á Íslandi sagt að óvíst sé að Ís-
lendingar þurfi að leggja fram nýja
aðildarumsókn ef hefja eigi ferlið að
nýju. Bjarni segir slíkt sæta furðu.
Afstaða Íslands sé skýr. Komi til þess
að þráðurinn verði tekinn upp að nýju
verði það gert í samráði við þjóðina
og vilji hennar ráði för. » 9
Afstaða ESB
til umsóknar
sætir furðu