Morgunblaðið - 05.12.2015, Síða 4
Morgunblaðið/RAX
Lítið skyggni og hvassviðri Ekkert ferðaveður var víða á vegum í gær.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Liðsmenn björgunarsveita Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar frá
Höfn, Vík, Hvolsvelli og Kirkjubæj-
arklaustri sinntu í gær lokunum á
hringveginum við Markarfljótsbrú
að vestanverðu og við Jökulsárlón á
Breiðamerkursandi.
Vaktinni var hætt um kl. 22.00 í
gærkvöldi en lokunarskilti áfram
höfð uppi og eins var leiðin merkt
lokuð á korti Vegagerðarinnar, að
sögn Sveins Kr. Rúnarssonar, yfir-
lögregluþjóns á Suðurlandi. Hann
sagði að ófærð lokaði leiðinni og hún
yrði ekki opnuð fyrr en í dag. Tölu-
vert mikið hafði skafið undir Eyja-
fjöllum og í Mýrdalnum. Brúin yfir
Múlakvísl var lokuð og eins
Markarfljótsbrú. Óveðrið var farið
að ganga niður í Öræfum um kl.
21.00.
Lögreglan óskaði eftir aðstoð
björgunarsveita í gærdag við að
ferja ferðamenn úr rútu sem fór út af
við Brekkur í Mýrdal og koma þeim
á gistihús. Á leið á staðinn ók björg-
unarsveitin fram á þrjá bíla sem voru
utan vegar við Grafarhól og var fólk í
tveimur þeirra. Fólkið úr þriðja bíln-
um hafði fengið far til byggða.
Bryndís Fanney Harðardóttir í
svæðisstjórn björgunarsveita á Suð-
urlandi sagði um kl. 21.00 í gær-
kvöldi að mesta óveðrið væri gengið
yfir í Vík í Mýrdal. Hún sagði að lok-
un þjóðvegarins hefði bjargað miklu
og komið í veg fyrir mikil vandræði.
„Þetta var algjör bylting. Hér eru
tveir vöruflutningabílar og ég veit
ekki hvað margir fólksbílar við Vík-
urskála eru að bíða veðrið af sér. Það
er ekki spurning þegar svona veður-
spá kemur að loka veginum á þessu
svæði,“ sagði Bryndís. Hún sagði að
fólk dveldi á öllum hótelum í Mýr-
dalnum vegna óveðursins.
Jón Hermannsson, formaður
svæðisstjórnar björgunarsveitanna
á Suðurlandi, tók við vaktinni í gær-
kvöldi. Hann sagði að skafrenningur
hefði valdið því að fólk á leið í sum-
arbústaði hefði fest sig og hringt eft-
ir aðstoð. Lítil umferð var á Suður-
landi í gærkvöldi.
Nýbyggt hótel stóðst áhlaupið
Íslandshótel vinna að byggingu
hótels á Hnappavöllum í Öræfum.
Ólafur Torfason forstjóri sagði að
menn hefðu unnið í alla fyrrinótt við
að búa nýbyggingarnar undir óveðr-
ið. Límtrésbyggingar nýja hótelsins
hefðu staðist áhlaupið með sóma.
Morgunblaðið/RAX
Óveður í aðsigi Kolsvartur óveðursbakkinn nálgaðist af hafi undir Eyjafjöllum. Það var eins og föngulegur gæðingurinn tæki sprett til að forða sér undan óveðrinu sem skall á svo um munaði.
Lokun hringvegar-
ins gaf góða raun
Hringvegurinn á milli Markarfljótsbrúar og Jökulsárlóns
verður opnaður í dag Brýr og vegir lokuðust í gær
Morgunblaðið/RAX
Hringveginum lokað vegna óveðurs Björgunarsveitarfólk sinnti í gær lokun hringvegarins við Markarfljót og
Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. Einnig voru lokanir við Freysnes í Öræfum og við Lómagnúp.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Fagridalur í Mýrdal Mikið kóf var í Mýrdalnum og lítið sem ekkert skyggni.
Það var vissara að hafa rafbílinn í sambandi í kuldanum.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015
Mangójógúrt
Ástæða þess
að þú átt að velja
lífræna jógúrt!
• Engin aukefni
• Meira af Omega-3
fitusýrum
• Meira er af CLA fitusýrum
sem byggja upp vöðva
og bein
• Ekkert undanrennuduft
• Ánmanngerðra
transfitusýra
• Lífrænn hrásykur
biobu.is - Lífrænar mjólkurvörur