Morgunblaðið - 05.12.2015, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015
Umræðan um loftslagsmál erþannig að helst má ekki hafa
á þeim nema eina skoðun án þess að
vera úthrópaður eða uppnefndur.
Fyrir þá sem eru hlynntir vísinda-
legri nálgun við flókin viðfangsefni
og telja að ólíkar hugmyndir verði
að fá að takast á er þetta áhyggju-
efni.
Einn þeirra semtaka þá áhættu
að viðra aðrar skoð-
anir um loftslags-
mál en sjálfskipaðir
umræðustjórar telja
viðunandi er
Trausti Jónsson
veðurfræðingur.
Í samtali við Morgunblaðið í vik-unni lýsti hann þeirri skoðun
sinni að loftslag sé að hlýna og að
það sé að mestu af mannavöldum,
en hann hefur efasemdir um marg-
ar ályktanir sem dregnar hafi verið
af þessu.
Hann efast til að mynda ummarkmiðið um að ekki megi
hlýna um meira en tvær gráður á
þessari öld og spyr hvers vegna ein-
mitt sú tala hafi verið valin.
Hann segir líka að sér lítist illa áhnattrænu umhverfis-
breytingarnar en „enn verr á að-
gerðir stjórnmálamanna gegn
þeim“.
Hann segist vera aðlögunarsinniog að sér sé „illa við að verj-
ast einhverju sem verður svo
kannski allt öðruvísi en maður
heldur núna. Svo margt getur gerst
í millitíðinni“.
Það skyldi þó ekki vera að ein-hver óvissa sé um framtíðina í
þessum efnum og að Trausti kunni
að hafa nokkuð til síns máls.
Trausti Jónsson
Ætli einhver óvissa
sé um framtíðina?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 4.12., kl. 18.00
Reykjavík -1 skýjað
Bolungarvík 0 snjókoma
Akureyri 0 snjókoma
Nuuk -10 léttskýjað
Þórshöfn 7 skúrir
Ósló 1 heiðskírt
Kaupmannahöfn 7 léttskýjað
Stokkhólmur 5 skúrir
Helsinki 6 skúrir
Lúxemborg 6 léttskýjað
Brussel 7 heiðskírt
Dublin 11 skýjað
Glasgow 11 skúrir
London 12 skýjað
París 7 heiðskírt
Amsterdam 10 léttskýjað
Hamborg 8 skýjað
Berlín 7 léttskýjað
Vín 7 léttskýjað
Moskva 0 þoka
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 16 heiðskírt
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 12 léttskýjað
Aþena 12 skýjað
Winnipeg -3 skýjað
Montreal 3 skúrir
New York 8 léttskýjað
Chicago 2 léttskýjað
Orlando 22 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
5. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:56 15:42
ÍSAFJÖRÐUR 11:34 15:13
SIGLUFJÖRÐUR 11:19 14:55
DJÚPIVOGUR 10:33 15:03
Mannréttindaskrifstofa Reykjavík-
urborgar hefur unnið minnisblað
sem snýr að því hvaða reglur gildi
um erlend fjárframlög til trúfélaga
múslima á Íslandi. Er það gert í kjöl-
far þess að Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri óskað eftir því við
mannréttindaskrifstofuna að afla
upplýsinga um fjárstyrk frá Sádi-
Arabíu vegna byggingar mosku í
Reykjavík í mars síðastliðnum, eða
fyrir 8 mánuðum.
„Hafa þessir fjármunir verið
þegnir, og ef svo er, fylgja þeim ein-
hver skilyrði? Ég hef óskað eftir því
að mannréttindaskrifstofa Reykja-
víkurborgar afli upplýsinga um þess-
ar fréttir, reynslu og fordæmi ná-
grannaþjóða í þessum efnum og
önnur atriði sem máli geta skipt,“
sagði borgarstjóri um málið á sínum
tíma á Facebook-síðu sinni.
Minnisblaðið er viðamikið og tek-
ur á ýmsum þáttum þessu tengdum
en meðal annars er lóðaúthlutun
könnuð ásamt því hvernig nágranna-
löndin taka á sambærilegum málum.
Minnisblaðið hefur ekki verið gert
opinbert en verður að öllum líkind-
um lagt fyrir fund borgarráðs á
fimmtudag. laufey@mbl.is
Minnisblað um mosku tilbúið
Verður væntanlega kynnt á fundi
borgarráðs Reykjavíkur á fimmtudag
Moskan Verðlaunatillagan.
Almenningar
kosningar verða í
Skeiða- og Gnúp-
verjahreppi 9.
janúar nk. um
nýtt nafn á sveit-
arfélagið. Kosið
verður um 8 til-
lögur. þar á meðal
núverandi nafn.
Það var 2002
sem sveitarfélagið
sem nú er í deiglu var stofnað með
sameiningu Gnúpverja- og Skeiða-
hrepps í Árnessýslu. Uppi hafa verið
sjónarmið að annað nafn á sveitarfé-
lagið, óháð fyrri hreppanöfnum, væri
heppilegt. Því sjónarmiði er mætt
með kosningum nú. Örnefnastofnun
hefur fjallað um tillögurnar en þær
eru Eystribyggð, Eystrihreppur,
Þjórsárbakkar, Þjórsárbyggð, Þjórs-
árhreppur, Þjórsársveit og svo
óbreytt nafn; Skeiða- og Gnúpverja-
hreppur. Einnig var nefnd Vörðu-
byggð, en er nú úr leik.
Gnúpverjahreppurinn gamli var
oft nefndur Eystri-Hreppur og af því
eru tvær tillögur um komnar. Þá
liggja landamæri sveitarfélagsins í
suðri og austri að Þjórsá og af því
koma fjórar nafnahugmyndir.
sbs@mbl.is
Þjórsárdalur Horft
yfir sveitina.
Kosið um
nýtt nafn
Tengingin við
Þjórsá er áberandi