Morgunblaðið - 05.12.2015, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
oggeraþaðgróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.
Aðventubomba
Laugardagur 10-16
Sunnudagur 13-18
20% afsláttur
af öllum fatnaði
og skóm
Opið 10-16
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Toppar
Verð 8.900 Str. s-xxl
Gjöfin
hennar
Opið 11-18 í dag og
13-16 sunnudag
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355
www.selena.is • Næg bílastæði
Selena undirfataverslun
Undirföt
Náttföt
Náttkjólar
Sloppar
GÆÐA
VETRARYFIRHAFNIR
20% afsláttur
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is/yfirhafnir
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
„Ég lít þannig á að það sé ekki í gildi
umsókn Íslands að ESB,“ sagði
Bjarni Benediktsson, fjármálaráð-
herra og formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, í samtali við Morgunblaðið, þegar
hann var spurður álits á þeim orðum
sendiherra ESB hér í Morgun-
blaðinu, að óvíst væri hvort Ísland
þyrfti að leggja fram nýja aðildarum-
sókn eða draga fram þá gömlu frá
2009, ef ný ríkisstjórn vildi hefja slíkt
ferli á nýjan leik.
„Ég lýsi yfir furðu á því, að það
skuli vera einhverjum vafa undirorp-
ið, af Evrópusambandsins hálfu, hver
staða málisins er. Þeir hafa fengið
mjög skýr skilaboð, að minnsta kosti
frá þeim sem fer fyrir utanríkisstefn-
unni og forsætisráðherra,“ sagði
Bjarni.
Fjármálaráðherra segir það síðan
annað mál og í
sjálfu sér óskylt
þessu, að „við ætt-
um fyrst og
fremst að einbeita
okkur að því
hvernig við leið-
um fram niður-
stöðu um þessi
mál, en ekki
hvernig Evrópu-
sambandið kynni í
framtíðinni að taka við erindi. Í því
sambandi finnst mér öllu skipta að
hér á Íslandi heyrist mér að menn
séu hættir að tala fyrir öðru en því, að
frekari skref í þessu máli verði ekki
stigin án samráðs við þjóðina. Það
kemur ekkert annað til greina, ef
slíkt kæmi á annað borð upp á, en að
þjóðin væri spurð hvort hún styddi
það að lögð yrði fram umsókn um að-
ild að Evrópusambandinu,“ sagði
Bjarni.
Hann segir að allir séu sammála
um að ekkert verði gert án þess að
spyrja þjóðina og í öðru lagi, að komi
til þess, þá verði að gæta þess að
spyrja þjóðina réttra spurninga.
„Þeir sem hyggjast fara aftur í
hinn skrípaleikinn, þeir sem hafa ver-
ið að gæla við mögulega inngöngu,
þeir hafa þá ekkert lært af síðasta
kjörtímabili.“
Bjarni bendir á að það hefði vel
getað gerst, ef ályktun um málið
hefði verið samþykkt á Alþingi, að
ESB hefði svarað slíkri ályktun í þá
veru að þeir myndu virða slíka álykt-
un, búið væri að slíta viðræðunum, og
að hluti svarsins hefði verið í þá veru
að vel gæti verið að ESB myndi taka
málið upp, ef sótt yrði um, án þess að
fara með málið í öll þjóðþing ESB.
Aðalatriðið væri að við kæmumst
að niðurstöðu um það hvernig við
ætluðum að takast á við þessi mál og
hætta að horfa til Brussel.
Ekki frekari skref án
samráðs við þjóðina
Fjármálaráðherra segir að það sé ekki umsókn að ESB
Bjarni
Benediktsson
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á augl@mbl.is eða
hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í
Mogganum og ámbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?
„Það er óhætt að segja að það hafi
verið barningur á síldinni í allt haust
og stundum mjög dapurt,“ sagði
Ebeneser Guðmundsson, stýrimaður
á Heimaey VE-1, um hádegi í gær.
Auk þeirra höfðu fjögur önnur skip
verið á miðunum djúpt vestur af land-
inu og verið dreifð á stóru svæði.
Veðrið var þokkalegt og ekki búist
við að það versnaði fyrr en í dag,
laugardag, þegar hann snerist í norð-
austanátt. Þeir á Heimaey höfðu ver-
ið tvo daga á veiðum og voru komnir
með um 150 tonn.
„Menn hafa eytt miklum tíma í að
leita með litlum árangri því það hefur
lítið verið að sjá,“ sagði Ebeneser.
Aðeins hefur orðið vart við kolmunna
og spærling sem meðafla, en það er
misjafnt milli hola. Heimilt er að
veiða 70.200 tonn af íslenskri sum-
argotssíld og samkvæmt yfirliti
Fiskistofu er búið að landa rúmlega
60 þúsund tonnum.
Nokkur uppsjávarskip hafa reynt
fyrir sér á kolmunna í færeyskri lög-
sögu upp á síðkastið, en veðurfar hef-
ur gert mönnum erfitt fyrir. aij@mbl.is
Mikið leitað en ár-
angurinn lítill