Morgunblaðið - 05.12.2015, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015
ÚR BÆJARLÍFINU
Óli Már Aronsson
Hellu
Miðjan, nefnist húsið á Suðurlands-
vegi 1-3 á Hellu, sem hýsir margs-
konar starfsemi og skrifstofur stofn-
ana og fyrirtækja í sveitarfélaginu.
Fjórða hæðin í glerbyggingunni hef-
ur ekki verið í notkun hingað til, en
nú er verið að innrétta hana og
nokkrar breytingar eru fyrirhugaðar
í húsinu og aukin starfsemi.
Hárstofan á Hellu mun flytja í
þetta nýinnréttaða húsnæði um ára-
mótin. Anna Guðrún Jónsdóttir rek-
ur Hárstofuna með aðstoð tveggja
annarra hárgreiðslukvenna. Hár-
stofan hefur verið með sína starfsemi
í Hellubíói undanfarið.
Hellubíó hefur nú verið selt nýj-
um eiganda, félaginu Riverside trad-
ing company ehf., en það er í einka-
eign Stefáns H. Aðalsteinssonar.
Stefán segir að ekki sé ákveðið enn
þá hvaða starfsemi verður í húsinu.
Kartöfluverksmiðja Þykkva-
bæjar var seld nýverið til nýrra eig-
enda, en það var fyrirtækið Sómi ehf.
sem keypti af bændum í Þykkvabæ.
Að sögn Marteins Þorkelssonar, nýs
framkvæmdastjóra Kartöfluverk-
smiðjunnar, verða engin stór stökk
tekin í breytingum við eigendaskipt-
in, heldur byggt á því góða starfi sem
fyrir er. Vonast Marteinn til að sam-
vinna við bændur og fyrri eigendur
verði góð í framtíðinni.
Byggingarfulltrúi fær mikið af
fyrirspurnum um þessar mundir frá
ólíkum aðilum sem vilja huga að ein-
hvers konar byggingarfram-
kvæmdum. Hugmyndir eru á floti
um að byggja gæða hótel, bæði á
austur og vesturbakka Ytri-Rangár
við Hellu. Þetta eru þó aðeins hug-
myndir enn þá. Jafnframt er talsvert
spurt um lóðir fyrir íbúðir.
Þjónustumiðstöð við þjóðveg-
inn gegnum Hellu er nú á teikniborð-
inu. Staðsetning hennar er fyrir-
huguð rétt austan við megin
byggðina, sunnan hringvegar á móts
við sláturhús Reykjagarðs.
Björn Jóhannsson landslags-
arkitekt og Erla Jóhannsdóttir koma
fram fyrir hönd framkvæmdaaðila
og hefur arkitektastofan Tvíhorf tek-
ið þátt í hönnun verksins. Fyr-
irhugað er að hefja framkvæmdir
með vorinu.
Þjónustumiðstöðin Hellu
verður áningarstaður fyrir ferða-
menn á leið um Suðurland þar sem
hægt verður að fá ferðatengda þjón-
ustu eins og mat, gistingu og elds-
neyti. Í miðstöðinni verður móttaka
fyrir smáhýsahótel en gert er ráð
fyrir 20-40 smáhýsum tengdum hót-
elinu. Tengt miðstöðinni verður úti-
vistarsvæði og markaðstorg fyrir
bæjarbúa og ferðamenn, m.a.
bændamarkaður með vörur beint frá
býli. Eitt af meginmarkmiðum verk-
efnisins er að styðja við og efla sam-
félagið á staðnum. Við vinnslu þessa
verkefnis hafa kviknað hugmyndir
um annað áhugavert verkefni ótengt
þessu á Hellu. Þær hugmyndir verða
kynntar fljótlega fyrir skipulags- og
byggingarnefnd.
Arctic adventures, Straum-
hvarf hf., er stórt fyrirtæki í ferða-
þjónustu sem íhugar nú að flytja
hluta af starfsemi sinni á Hellu. Fyr-
irtækið hefur fengið úthlutað lóð á
Miðvangi 5, sem er rétt austan við
heilsugæslustöðina.
Nýtt hesthúsahverfi hefur ver-
ið skipulagt sunnan þjóðvegar í ná-
grenni við reiðhöllina og skeiðvellina
á Gaddstaðaflötum. Nú er fyrsta
hesthúsið risið þar og er verið að
ganga frá innréttingum. Þetta er 16
hesta hús og það er Kristjón Krist-
jánsson, tamningamaður sem byggir
húsið til nota fyrir starfsemi sína.
Umsókn um að halda Landsmót
hestamanna árið 2020 á Gaddstaða-
flötum við Hellu, hefur verið send til
stjórnar Landssambands hesta-
manna. Öll hestamannafélögin á
svæðinu frá Hellisheiði að Lóma-
gnúp, en þau eru 9 talsins, standa að
umsókninni.
Markaðs- og kynningarfull-
trúi tók til starfa hjá Rangárþingi
ytra nú í nóvember, en slík staða hef-
ur ekki verið til hjá sveitarfélaginu
um nokkurt skeið. Ráðinn var Eirík-
ur Vilhelm Sigurðsson sem undan-
farin ár hefur verið forstöðumaður
Kötluseturs í Vík, en hann er ætt-
aður þaðan.
Oddafélagið fagnar 25 ára af-
mæli um þessar mundir, en það var
stofnað 1. desember, árið 1990. Fé-
lagið er samtök áhugamanna um
endurreisn fræðaseturs á Odda á
Rangárvöllum. Félagið hefur staðið
fyrir fjölda funda og málþinga um
Odda og tengda starfsemi, ásamt því
að stuðla m.a. að uppsetningu útsýn-
isskífu á Gammabrekku og styttu af
Sæmundi á selnum eftir Ásmund
Sveinsson, rétt við kirkjuna. Þór
Jakobsson veðurfræðingur hefur
verið formaður Oddafélagsins frá
upphafi.
Margir hyggja á bygging-
arframkvæmdir á Hellu
Morgunblaðið/Óli Már Aronsson
Fyrsta hesthúsið í nýju hverfi Hesthús Kristjóns Kristjánssonar sem nú er
verið að innrétta. Í baksýn sjást reiðhöllin og svokallað stóðhestahús.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Frumvarp um sanngirnisbætur
vegna Landakotsskóla, sem þing-
menn úr öllum flokkum á Alþingi
stóðu að, varð að lögum í fyrradag.
46 þingmenn
sögðu já, 4
greiddu ekki at-
kvæði og 13 voru
fjarstaddir.
Ögmundur
Jónasson var
fyrsti flutnings-
maður, en aðrir
flutningsmenn
voru Elín Hirst,
Helgi Hjörvar,
Birgitta Jóns-
dóttir, Willum Þór Þórsson og Bryn-
hildur Pétursdóttir.
Breyting laganna tekur til þess að
innanríkisráðherra geti ákveðið að
íslenska ríkið sé bótaskylt vegna
misgjörða á hendur börnum sem
sóttu Landakotsskóla og fjallað er
um í skýrslu rannsóknarnefndar
kaþólsku kirkjunnar á Íslandi sem
kom út 2012. Sú nefnd var skipuð
árið 2011 í kjölfar saka sem bornar
voru á fyrrverandi starfsmenn kaþ-
ólsku kirkjunnar um andlegt og lík-
amlegt ofbeldi gagnvart nemendum
skólans.
Undirbúningu hefst fljótlega
Guðrún Ögmundsdóttir er tengi-
liður vistheimila í innanríkisráðu-
neytinu.
Hún sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að málefni fyrrverandi
nemenda Landakotsskóla færu nú í
ákveðið ferli í ráðuneytinu.
„Nú kemur þetta hingað inn til
okkar í vinnslu og verður tekið á
þessu eins og öðrum málum um
sanngirnisbætur á stofnunum eða
vistheimilum,“ sagði Guðrún, „en við
reiknum með að loka þeim málum í
febrúar 2016, með skýrslu.“
Guðrún segir að undirbúningur
hefjist fljótlega hvað varðar fyrrver-
andi nemendur Landakotsskóla, og
hún reikni með að innköllun verði í
febrúar eða mars á næsta ári, þ.e. að
opnað verði fyrir umsóknir. „Þá
mun þetta fólk koma í viðtal til mín.
Það getur gert umsókn, eða end-
urnýjað gömlu umsóknina, en við
eigum eftir að ákveða hvernig regl-
uramminn verður í þessu ferli og
það gerum við fljótlega,“ sagði Guð-
rún.
„Í þessum efnum er og hefur ver-
ið lykilatriði að vanda sig og mæta
fólki á góðum stað og sýna því virð-
ingu, því vitanlega eru þetta afskap-
lega viðkvæm mál,“ sagði Guðrún.
Skólinn á ábyrgð ríkisins
Í greinargerð með lögunum segir
m.a.: „Varðandi mögulega bóta-
skyldu ríkisins vegna misgjörða á
hendur börnum sem sóttu Landa-
kotsskóla og fjallað er um í skýrslu
rannsóknarnefndar kaþólsku kirkj-
unnar á Íslandi er ljóst að Landa-
kotsskólinn fellur undir lög um
skólakerfi og fræðsluskyldu frá
1946. Þar er tilgreint í 53. gr. lag-
anna að heimilt sé að löggilda skóla
sem reknir eru af einstökum mönn-
um eða stofnunum, enda hlíti slíkir
skólar sama eftirliti og reglum og
aðrir skólar. Um þetta verður ekki
deilt og skólinn því á ábyrgð og und-
ir eftirlitsskyldu íslenska ríkisins
eins og aðrir skólar. Athafnir og at-
hafnaleysi starfsmanna skólans
hefðu hugsanlega bakað ríkissjóði
skaðabótaskyldu ef misgjörðirnar
hefðu komið fyrr í dagsljósið.“
Fyrrverandi nemendur fá bætur
Morgunblaðið/Eyþór
Landakotskóli Mál fyrrverandi nemenda brátt í vinnslu í ráðuneytinu.
Guðrún
Ögmundsdóttir
Frumvarp um sanngirnisbætur vegna Landakotsskóla orðið að lögum „Lykilatriði að vanda sig og
mæta fólki á góðum stað og sýna því virðingu,“ segir Guðrún Ögmundsdóttir, tengiliður vistheimila
H
a
u
ku
r
1
0
.1
5
.Leit að fjárfestingarkostum. .Verðmat. .Viðræðu- og
samningaferli. . Fjármögnun. .Frágangur samninga.
Hér gætu verið góðir fjárfestingarkostir:
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Lítil heildverslun með gott umboð fyrir hágæða múrefni og
klæðningar. Velta um 100 mkr. Miklir möguleikar á vexti.
• 37 herbergja, 3ja stjörnu gott hótel á Snæfellsnesi. Góð nýting og
opið árið um kring. Ársvelta 200 mkr. Fyrir liggur hönnun á
viðbyggingu sem stækkar hótelið um allt að 20 herbergi.
• Leiðandi fyrirtæki með legsteina. Ársvelta um 140 mkr. Mjög góð
afkoma.
• Lítið hótel og veitingastaður í sérlega fallegu og sögufrægu,
uppgerðu húsi í Bolungarvík. Húsið og starfsemin í því er til sölu.
Tripadvisor gefur 4,5 stjörnur.
• Verslunarkeðja með matvæli (12 útsölustaðir) og miðlæga
framleiðslu. Ársvelta 650 mkr. Miklir vaxtamöguleikar og góð
afkoma.
• Gamalgróin heildverslun með þekkt leikföng og gjafavörur. Velta um
100 mkr. Góð afkoma.
• Sérhæft ferðaþjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði. Velta 85 mkr.
EBITDA um 15 mkr.
• Rekstur á nýju og glæsilegu 28 herbergja hóteli í fallegu húsi í
miðbæ Reykjavíkur. Hótelið verður afhent tilbúið á vormánuðum
2016.
• Öflugt og vaxandi fyrirtæki í skiltagerð og markaðslausnum. Vel
tækjum búið. Ársvelta um 100 mkr. og góð afkoma.
• Rótgróin rafvöruverslun í Reykjavík. Velta 80 mkr. og afkoman góð.
• Gróðrarstöð staðsett á Suðurlandi í nálægð við höfuðborgina.
Fyrirtækið hefur sterka stöðu á markaði. Velta er nokkuð jöfn allt
árið, um 130 mkr. og EBITDA um 25 mkr.
• Fasteignafélag með 27 nýjar stúdíóíbúðir í langtímaleigu. Góðar og
stöðugar tekjur. Hagstætt verð.
• Innflutningur og smásala í tveimur verslunum á heimsþekktu vörumerki í
fatnaði fyrir börn og konur. Viðkomandi er með sérleyfi á Íslandi. Velta
150 mkr.