Morgunblaðið - 05.12.2015, Page 20

Morgunblaðið - 05.12.2015, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015 vini. Þeir komu sér m.a. fyrir í tjöld- um á landskikum í hinum gróðursæla Bekaa-dal. Þar má finna margar tjaldborgir á milli hálfbyggðra húsa og við akrana. Það er búið þröngt, án almennilegrar hreinlætisaðstöðu og fátt í umhverfinu minnir á heimili. En þetta er engu að síður veruleiki tuga þúsunda Sýrlendinga í landinu. „Þau höfðu ekkert val um að koma og þau voru allslaus þegar þau komu hingað,“ segir Violet Warnery, að- gerðastjóri UNICEF á vettvangi í Líbanon, um fyrstu flóttamennina. Síðan héldu Sýrlendingar áfram að streyma til landsins og eru nú um 1,1 milljón. Um 70% eru undir fátækt- armörkum og flestir eru auk þess skuldum vafðir. Fólkið verður að leigja sér húsnæði, tjald eða aðrar vistarverur, og það getur kostað skildinginn. „Sum börnin þekkja ekkert annað en lífið í Líbanon og hafa aðlagast þessum aðstæðum sínum ótrúlega,“ segir Violet. „En þau sem muna eftir sér í Sýrlandi, þau vilja bara fara aft- ur heim.“ Því eldri sem börnin eru, þeim mun sterkari minningar eiga þau frá góðu árunum í heimalandinu. Og því vilja þau komast þangað aftur sem fyrst. Veita börnunum öruggt skjól UNICEF hefur það að markmiði að hafa barnvænu svæðin í nágrenni hinna ríflega 1.400 óformlegu flótta- mannabyggða. „Það sem við viljum fyrst og fremst gera er að veita börn- um öruggt skjól til að leika sér frjáls,“ segir Violet. „Í þeim að- stæðum notum við svo tækifærið til að sjá hver þeirra þurfa á sérstakri hjálp að halda vegna alls þess sem þau hafa upplifað á lífsleiðinni.“ Börnin voru að flýja stríð en í sum- um tilvikum hefur lítið betra tekið við, s.s. heimilisofbeldi og barna- þrælkun því foreldrarnir eru löngu búnir með sitt sparifé, hafa ekki leyfi til að vinna í Líbanon og eru sokknir í fen skulda. Sífellt fleiri börn eru því látin vinna í stað þess að ganga í skóla. „Hvaða áhrif mun það hafa að heil kynslóð barna hefur ekki hlotið menntun?“ spyr Violet. „Hver verða áhrifin í Mið-Austurlöndum? Fyrir börnin sem eru hér. Geta þau ein- hvern tímann farið aftur til Sýrlands og ef ekki hvaða áhrif mun þetta hafa á Líbanon? Það er gríðarlegt áherslu- mál að fá börnin aftur í skólann og halda þeim þar.“ Verkefni UNICEF í Líbanon eru með mestu neyðarhjálparaðgerðum sem samtökin hafa staðið í hingað til. Aðstoðin felst ekki síst í sálrænum stuðningi við börnin. Árangurinn er þegar sýnilegur og líbönsk stjórnvöld hafa í fyrsta sinn mótað sér geðheil- brigðisstefnu og eru að þjálfa fólk til að framfylgja henni. „Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem svo margir eru að huga að andlegu ástandi barna,“ seg- ir Tanya Chapuisat, yfirmaður UNI- CEF í Líbanon. „Vonandi náum við að koma í veg fyrir of mörg ör á sál þessara barna. Þau búa hér auðvitað við erfiðar aðstæður en þau eru ekki upp til hópa í hryllilegu áfalli þrátt fyrir allt sem þau hafa gengið í gegn- um.“ Listir Sungið um von og frið fyrir alla jarðarbúa.Nám Stundum getur verið erfitt að einbeita sér.Átök Ungir drengir leika sér í reiptogi á barnvæna svæðinu. Hafa skal það sem betur sést og heyrist ormsson.is Opið virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16 Opið virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-15 LÁGMÚLA 8 SÍMI 530 2800 á frábæru verði. Gerið verðsamanburð SÍÐUMÚLA 9 SÍMI 530 2900 UE55JU6075 55” kr. 199.900.- UE65JU6075 65” kr. 399.900.- UE43JU5505 43” kr.99.900.- Hversu mörg sýrlensk börn eru á flótta utan heimalandsins? Um tvær milljónir. Langflest eru þau í nágrannalöndunum, m.a. um hálf milljón í Líbanon. Enn fleiri eru á vergangi í Sýrlandi. Ganga þau í skóla í Líbanon? Um 400 þúsund sýrlensk börn á skólaaldri eru í Líbanon og um helmingur þeirra hefur kost á að ganga í skóla. Eru þau í skóla með líbönskum börnum? Yfirleitt ekki. Líbönsku börnin eru fyrir hádegi og þau sýrlensku eftir hádegi. Vonast er til að þetta breytist svo börnin aðlag- ist betur líbönsku samfélagi. Hvernig gengur þeim í námi? Það er misjafnt. Mörg þeirra hafa lítið sem ekkert verið í skóla. Þau eru því mjög misjafnlega á vegi stödd í námi. Hver borgar námið? UNICEF styður líbönsk stjórnvöld í því verkefni. M.a. greiða sam- tökin fyrir kyndingu og rafmagn. Spurt&svarað „Ég hef það fínt, takk,“ segir Rola, tíu ára, á ágætri ensku sem hún er nýbyrjuð að læra. Þessi brosmilda stúlka situr í hópi jafnaldra og er að búa til armbönd á barnvænu svæði UNI- CEF er blaðamann Morgunblaðsins ber að garði. En á bak við brosið leynist sorgarsaga af stríði sem hefur haft mikil áhrif á líf hennar allt. Hún flúði frá Sýrlandi ásamt móður sinni og eldri systkinum fyrir níu mánuðum. Húsið henn- ar hafði verið sprengt í loft upp og faðir henn- ar látist í sprengjuárás. Þrátt fyrir þessa hörmulegu lífsreynslu brosir Rola er hún segir frá lífi sínu í Líbanon, sem líkt og hjá öðrum 10 ára stúlkum snýst um vini, leik, skólann og fjöl- skylduna. Margra daga afmælisveisla „Ég er ánægðust hér,“ segir hún um barn- vænt svæði UNICEF í hinum grösuga Bekaa-dal í Líbanon. Undir það taka mörg önnur börn á svæðinu. „Þegar ég er ekki hér þá aðstoða ég mömmu, geri heimavinnuna mína og leik mér. Besta vinkona min heitir Fatima. Hún á afmæli á morgun en við erum þegar byrjaðar að halda upp á það,“ segir hún og hlær dillandi hlátri. „Þegar ég verð stór langar mig að verða tón- listarmaður, píanóleikari.“ Rola á fimm systkini, þrjár systur og tvo bræður. „Ég sakna frændfólksins míns í Sýr- landi,“ segir hún. „Ég sakna þess hvernig lífið var, þegar við hittumst öll og gerðum eitthvað skemmtilegt. Fórum í sparifötin og nutum lífs- ins.“ Elskaði Sýrland fyrir stríð Thuraya, móðir Rolu, er þakklát fyrir að dóttirin njóti sín á barnvæna svæðinu. En vandamálin sem fjölskyldan glímir við eru mik- il, m.a. fjárhagsleg, og Thuraya er ekki bjart- sýn á að finna lausn. Eftir að hún flúði til Líbanons vann hún með Save the Children-samtökunum en svo þurfti hún að flytja sig um set í landinu og þá missti „Ég sakna þess hvernig lífið var“ Brosmild Rola hefur eignast marga vini í Bekaa- dalnum, fjarri heimalandi sínu, Sýrlandi. hún vinnuna. „Núna er ég atvinnulaus. Ég þurfti að fá lánaða peninga til að borga skuldir.“ Fjölskyldan býr nú í litlu tjaldi. Margir ætt- ingjar eru enn í Sýrlandi og af þeim hefur Thur- aya miklar áhyggjur. „Ég elskaði Sýrland fyrir stríðið en við misstum allt,“ segir hún. Sárast hafi verið að missa eigin- manninn í sprengjuárás. „Núna þarf ég að reiða mig eingöngu á sjálfa mig.“ Thuraya vill ekki fara til Evrópu, hún vill frek- ar vera áfram í Líbanon, þar sem allt er kunn- uglegt. „Þegar friður kemst á í Sýrlandi vil ég fara þangað strax aftur.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.