Morgunblaðið - 05.12.2015, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Milliniðurstöður könnunar sem nú
stendur yfir meðal íbúa í Reykja-
nesbæ, þar sem spurt er hvort fólk
sé hlynnt eða andvígt iðnaðarupp-
byggingu í Helguvík, sýnir að rúm-
ir tveir þriðju
hlutar svarenda
eru frekar eða
mjög hlynntir
uppbyggingu á
svæðinu. Þá er
tæpur fjórðung-
ur svarenda
frekar eða mjög
andvígur upp-
byggingu. 13%
svarenda taka
ekki afstöðu til
spurningarinnar. Samkvæmt upp-
lýsingum sem Morgunblaðið hefur
undir höndum er það MMR sem
vinnur að könnuninni fyrir hóp ein-
staklinga sem hafa tekið sig saman
um fjármögnun könnunarinnar.
Lokaniðurstöðu úr henni er að
vænta á mánudaginn. Könnunin
byggist á úrtaki 850 einstaklinga,
18 ára og eldri og voru þeir valdir
með tilviljunaraðferð úr þjóðskrá
og netpanel MMR. Fyrirtækið
stefnir að því að ná svarhlutfalli
upp í tæp 60%.
Íbúakosning á svipaða lund
Í íbúakosningu sem bæjaryfirvöld
í Reykjanesbæ stóðu fyrir og lauk í
gær, þar sem bæjarbúar voru
spurðir út í það hvort þeir væru
hlynntir breytingum á deiliskipulagi
í Helguvík, sem gerði uppbyggingu
kísilvers Thorsil ehf. við Berghóla-
braut mögulega, reyndust 50,4%
þátttakenda hlynnt breytingunni en
48,3% íbúa voru á móti. Íbúakosn-
ingin stóð frá 24. nóvember og til
dagsins í gær en þátttakendur í
kosningunni reyndust 931 talsins.
Sá fjöldi svarar til 8,71% kosninga-
þátttöku.
Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ
efndu til atkvæðagreiðslunnar í kjöl-
far þess að 2.800 íbúar í sveitarfé-
laginu höfðu fyrr á árinu skrifað
undir áskorun til þeirra þess efnis
að efnt yrði til íbúakosningar um
fyrrnefndar breytingar á deiliskipu-
laginu. Þátttakan í kosningunni sýn-
ir að aðeins þriðjungur af fjölda
þeirra sem skoruðu á bæjaryfirvöld
að efna til kosninganna tók þátt.
Vonbrigði með þátttöku
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar, segir að
þátttakan hafi valdið vonbrigðum.
„Þessi litla þátttaka er ákveðin
vonbrigði fyrir okkur og alla þá sem
eru að hvetja til aukins íbúalýðræðis
í framtíðinni. Vonandi á þátttaka í
íbúakosningum í framtíðinni, hér og
annars staðar, eftir að reynast
meiri. Við hefðum viljað sjá fleiri
taka þátt þó afstaða bæjarfulltrúa
hafi legið fyrir þess efnis að halda
ætti uppbyggingunni í Helguvík til
streitu.“
Uppbyggingin heldur áfram
Kjartan segir að nú þegar nið-
urstaðan liggi fyrir muni í raun lítið
annað gerast en að uppbyggingunni
í Helguvík verði haldið áfram.
„Núna liggur þetta fyrir. Meiri-
hluti þeirra sem tóku þátt er hlynnt-
ur deiliskipulagsbreytingunni og
það er ánægjulegt að þetta hafi farið
þannig. Breytingin er hins vegar
farin í gegn, hún var samþykkt á
bæjarstjórnarfundi í júní síðastliðn-
um og því mun uppbyggingin halda
áfram án tafa,“ segir Kjartan.
Íbúar styðja uppbyggingu
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Iðnaður Mikil uppbygging á sér nú stað hjá nokkrum fyrirtækjum í Helguvík.
Rúmlega 64% íbúa Reykjanesbæjar eru hlynnt iðnaðaruppbyggingu í Helguvík
Könnun gerð að frumkvæði einstaklinga í bænum 23% íbúa eru andvíg
Kjartan Már
Kjartansson
!"
""#
$%%
$
%%
!
"!
#$
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%!"
!
%
"" #
$%%
$%
%$
$$
!
#"
%
!$
#
"%
$%
$%$$
%"!
$"%
"$
#%
"%%""
● Fimm tæknifjárfestar og sjóðir á Ís-
landi og í Danmörku hafa ákveðið að
fjárfesta fyrir liðlega 270 milljónir
króna í hugbúnaðarfyrirtækinu Activity
Stream. Fyrirtækið framleiðir og selur
næstu kynslóð viðskiptahugbúnaðar,
sem nýtir gervigreind til að bæta
rekstur og þjónustu. Öll þróun hug-
búnaðarins verður á Íslandi en fyrir-
tækið er með höfuðstöðvar í Dan-
mörku.
Fjárfestarnir fimm eru Eyrir Sprotar,
Frumtak 2, míó ehf., Startup Reykjavik
Invest og danski fjárfestingasjóðurinn
Seed Capital. Áður hafði Activity
Stream fengið tæplega 40 milljón
króna stuðning frá Tækniþróunar-
sjóði.
Fimm fjárfestar koma
inn í Acticity Stream
STUTTAR FRÉTTIR ...
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur lagt
30 milljóna króna stjórnvaldssekt á
Arion banka fyrir að hafa selt bréf
sem bankinn átti í Högum á sama
tíma og bankinn bjó yfir innherja-
upplýsingum sem vörðuðu félagið. Í
tilkynningu FME kemur fram að við
ákvörðun sektar hafi verið litið til
þess að brot af þessu tagi teljist al-
mennt alvarleg. Hins vegar sé tekið
tillit til þess að um eitt stakt brot sé
að ræða og að bankinn hafi gripið til
aðgerða til að hindra að brot af
þessu tagi endurtaki sig. Þá komi
það til lækkunar sektinni að nokkuð
sé um liðið frá því atvik máls urðu,
en viðskiptin áttu sér stað í febrúar í
fyrra.
Arion og Stefnir seldu
Málið má rekja til þess þegar Haga-
melur, sem þá var á meðal stærstu
hluthafa í Högum, fór þess á leit við
Arion banka að leita kaupenda að
3-6% hlut í félaginu. Meðal eigenda
Hagamels voru Árni Hauksson, þá-
verandi stjórnarformaður Haga, og
Hallbjörn Karlsson sem einnig sat í
stjórn félagsins. Undirbúningur og
sala fóru fram á tímabilinu 20. til 24.
febrúar 2014 en fjárhagsári Haga
lýkur 28. febrúar ár hvert.
Þegar bankinn varð þess áskynja
að talsverð eftirspurn var fyrir
hendi var ákveðið að bjóða fleiri
hluthöfum að selja á sama gengi.
Sjálfur seldi Arion banki 1,65% hlut
sem skráður var á bankann, sam-
kvæmt flöggunum frá þeim tíma,
auk þess sem sjóður í rekstri Stefnis,
sjóðastýringarfyrirtækis Arion
banka, minnkaði hlut sinn um 0,58%.
Það var mat FME að upplýsingar
um fyrirhugaða sölu fjárhagslega
tengds aðila á stórum hlut í Högum
væru innherjaupplýsingar sem væru
þess eðlis að þær gætu haft mark-
tæk áhrif á markaðsverð hlutabréfa
félagsins. Bendir FME meðal annars
á að þegar aðilar sem almennt eru
taldir búa yfir mestu yfirsýninni og
bestu upplýsingunum um rekstur fé-
lagsins sjái sér hag í að draga úr
fjármunum bundnum í því, gefi þeir
með sölunni vísbendingu til mark-
aðarins um að verð bréfanna kunni
að vera orðið of hátt metið.
Notuðu óhljóðritaða síma
Í tilkynningu frá Arion banka vegna
ákvörðunar FME segist bankinn
samfærður um að farið hafi verið að
lögum í umræddum viðskiptum, þótt
ágallar hafi verið á framkvæmdinni,
þar sem ekki var farið eftir verk-
lagsreglum hvað varðar rekjanleika
viðskipta. Þau hafi að mestu farið
fram í gegnum óhljóðritaða síma og
því geti bankinn ekki fært fullar
sönnur á að rétt hafi verið staðið að
málum. Arion banki hafi engu að
síður þá bjargföstu trú að aðilar við-
skiptanna hafi verið jafnsettir og að
lög um verðbréfaviðskipti hafi ekki
verið brotin.
FME sektar Arion
um 30 milljónir
Morgunblaðið/Eggert
Sekt Arion banki telur sig ekki hafa
brotið lög um verðbréfaviðskipti.
Bjó yfir innherjaupplýsingum en seldi
Þú getur hjálpað núna með því að greiða valgreiðslu í heimabanka.
Einnig:
• Frjálst framlag á framlag.is
• Gjafabréf á gjofsemgefur.is
• Styrktarsími: 907 2003 (2.500 kr.)
• Söfnunarreikningur:
0334–26–50886, kt. 450670-0499
Þinn stuðningur gerir kraftaverk
Skortur á drykkjarhæfu vatni og hreinlætisaðstöðu veldur banvænum sjúkdómum
en með aðgangi að hreinu vatni hefur allt líf möguleika á að vaxa og dafna.
Hjálparstarf kirkjunnar tryggir fólki aðgang að hreinu vatni í Úganda og Eþíópíu
– og þitt framlag skiptir sköpum.