Morgunblaðið - 05.12.2015, Side 27
Umboðsaðili: Celsus ehf
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni, Hagkaup og Nettó.
Spirulina frá Lifestream er lífrænt fjölvítamín fjöl-
skyldunnar og eykur hjá okkur einbeitingu og orku út
daginn. Okkur finnst það mjög gott hrist í appelsínusafa,
eins bý ég oft til döðlunammi með Spirulina eða Veggies
grænmetisduftinu. Þó við borðum mjög hollt fæði finnum
við mikinn mun með Lifestream vörunum. Við erum ótrúlega
heilbrigð öll og leggjumst ekki í flensur eða kvefpestir.
Laus við
flensur & pestir
Ég get ekki hugsað
mér að vera án
Lifestream Spirulina
sem hefur hjálpað
mér í gegnum allt.
Ásdís Einarsdóttir, verslunarstjóri
hefur notað Lifestream Spirulina
síðan á sinni fyrstu meðgöngu og
brjóstagjöf. Hún velur Lifestream
vörurnar fyrir fjölskyldu sína til
að viðhalda góðri heilsu, orku
og einbeitingu.
100 næringarefni
FRÉTTIR 27Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015
Fjórir fjárfesta-
hópar á vegum
fjármálafyrir-
tækjanna ALM
verðbréfa,
Arctica Finance,
Kviku og Virð-
ingar hafa lagt
fram kauptilboð í
Hildu, dóttur-
félag Eignasafns
Seðlabanka Ís-
lands. Fyrst var greint frá því að
ESÍ hygðist ganga til viðræðna við
fyrirtækin fjögur á dv.is.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafði á annan tug aðila sýnt
eignasafninu áhuga og fengið að-
gang að gagnaherbergi í tengslum
við söluþreifingarnar. Þeir fjárfestar
sem vildu taka áfram þátt í ferlinu
þurftu að leggja inn tilboð fyrir 20.
nóvember síðastliðinn. Því er ljóst
að nokkuð hefur kvarnast úr þeim
hópi sem upphaflega sýndi Hildu
áhuga.
Eignir þær sem í Hildu eru sam-
anstanda af fasteignum og fyrir-
tækjalánum sem áður voru í eigu
Saga Capital, Frjálsa fjárfestinga-
bankans og Spron. Bókfært virði
eigna Hildu var liðlega 15 milljarðar
króna um mitt árið.
Fjórir bjóða í
eignir Hildu
Sala Seðalbankinn
á Hildu að öllu leyti.
Mun fleiri sýndu
áhuga á eignasafninu
Fyrirtaka fór fram í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær þar sem slita-
stjórn Glitnis lagði frumvarp að
nauðasamningi slitabúsins fram til
staðfestingar. Engar athugasemdir
bárust frá kröfuhöfum við fyrirtök-
una. Hinn 20. nóvember síðastlið-
inn höfðu kröfuhafar Glitnis sam-
þykkt frumvarpið í atkvæða-
greiðslu með 99,9% atkvæða. Af
sama tilefni samþykktu kröfuhaf-
arnir skaðleysisákvæði gagnvart ís-
lenska ríkinu og slitastjórn Glitnis
en það girðir fyrir að hægt sé að
höfða skaðabótamál á hendur fyrr-
nefndum aðilum.
Ekki liggur fyrir hvenær niður-
staða héraðsdóms verður kunn-
gjörð í málinu en frá uppkvaðningu
munu þeir sem lýst hafa kröfum í
búið hafa viku til að skjóta nið-
urstöðu dómsins til Hæstaréttar.
Kjartan Bjarni Björgvinsson, hér-
aðsdómari við Héraðsdóm Reykja-
víkur, hefur málið með höndum.
Nauðasamningsfrumvarpið ásamt
fylgigögnum telur hátt í 250 blað-
síður.
Þegar lög um stöðugleikaskatt
voru tilkynnt í sumar var gengið út
frá því að frestur slitabúanna til að
fá nauðasamninga samþykkta
myndi standa til áramóta. Í kjölfar
þess að þing kom saman í haust
var sá frestur lengdur til 15. mars
á næsta ári. Dómstóll Glitnir hefur óskað staðfestingar á frumvarpi að nauðsamningi.
Nauðasamningur lagður í dóm
Frumvarp Glitnis komið til dómstóla Engar athugasemdir bárust
Greingardeildir
viðskiptabank-
anna þriggja
gera allar ráð
fyrir því að pen-
ingastefnunefnd
Seðlabankans
muni halda stýri-
vöxtum óbreytt-
um við næstu
vaxtaákvörðun á
miðvikudaginn
kemur. Landsbankinn segir fátt
markvert hafa gerst út frá verð-
bólgusjónarmiðum frá því að nefnd-
in ákvað að hækka vexti í nóvember
um 0,25 prósentur og því muni hún
haldi vöxtum óbreyttum. Arion
banki segir að þó svo að stýrivextir
verði líklega ekki hækkaðir að þessu
sinni megi enn og aftur gera ráð fyr-
ir afdráttarlausum skilaboðum frá
peningastefnunefnd um komandi
stýrivaxtahækkanir. Íslandsbanki
telur að rökstuðningur fyrir
óbreyttum vöxtum verði væntanlega
sá að verðbólgan sé enn undir verð-
bólgumarkmiði og virðist ætla að
aukast heldur hægar en gert var ráð
fyrir í síðustu spá Seðlabankans.
Væntingar grein-
ingardeilda samhljóða
Vextir Óbreyttum
stýrivöxtum spáð.
Spá stýri-
vöxtum
óbreyttum