Morgunblaðið - 05.12.2015, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 05.12.2015, Qupperneq 33
UMRÆÐAN 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2015 Evrópumótið í Laugardals-höll var svo stórt í sniðum,og margir frábærir skák-menn og konur sátu að tafli, að nokkurn tíma tekur að sökkva sér ofan í helstu niðurstöður mótins. Jákvæð er útkoma nýrrar reglu sem leggur blátt bann við jafn- teflisboðum fyrir 40. Þó að viðureign Rússa og Ungverja í síðustu umferð í opna flokknum hafi lyktað af gam- aldags „pakkasamningi“ að hætti sovéskra ólympíusveita, en öllum skákum þeirrar viðureignar lauk skyndilega með jafntefli eftir ein- kennilega litla baráttu, þá var yf- irleitt barist til síðasta manns í svo til hverri einustu skák. Fyrir mótið voru meðlimir íslenska gullaldarliðsins hóflega bjartsýnir á árangur; flestir reiknuðu þó með að æfingaleysi segði til sín undir ein- hverjum kringumstæðum. Sú varð raunin en í þeim efnum voru liðs- menn ekki einir á báti. Ivan Sokolov, sem tefldi fyrir Holland, tapaði þrem skákum og var „settur út á stétt“. „Ég er orðinn „skáktúristi“ sagði hann þar sem hann gekk um sali Laugardalshallar. Ivan náði bestum árangri allra á EM í Varsjá fyrir tveim árum en hann hefur lítið teflt á þessu ári og kvaðst vera æfingalaus. Auk þess vantaði einhvern lífsháska í taflmennskuna, vildi hann meina. Það rann upp fyrir mönnum á með- an á Evrópumótinu stóð að öll vinnu- brögð hafa gerbreyst frá því sem áð- ur var, hvort heldur sem er við undirbúning eða yfirferð; eftir hverja viðureign er vinnureglan orðin sú að spyrja „vélarnar“ hvort þessi eða hinn leikurinn hafi verið réttur eða rangur. Jón L. Árnason fórnaði manni í 20. leik í viðureign við Lithá- en og hafði orð á því þegar skákinni lauk að hann kærði sig kannski ekk- ert um álit „vélanna“. Einmitt þess vegna var freistandi að spyrja síli- kon-vininn „Houdini“ hvort fórn, sem var fremur byggð á innsæi en ná- kvæmum útreikningum, hefði staðist: EM 2015; 7. umferð: Jón L. Árnason – Tomas Laurusas Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6 5. Bd3 Re7 6. 0-0 Rbc6 7. Rxc6 Rxc6 8. Rc3 Be7 9. f4 d6 10. b3 Bf6 11. Bb2 Bd4 12. Kh1 0-0 13. Dd2 Da5 14. a3 Bd7 15. Hf3 Hac8 16. Hh3 Hfd8 17. Hf1 Be8 18. b4 Dc7 19. Be2 Bf6 Svartur hefði sennilega betur leik- ið drottningunni til e7 en biskupleik- urinn gefur kost á fórn sem freistaði Jóns. 20. Rd5! Mannsfórn sem stenst full- komlega, er niðurstaða „Houdini“. Svartur á erfitt með að verjast m.a. vegna þess að liðsaflinn svarts liggur nær allur á drottningarvængnum. 20. … exd5 21. Bxf6 gxf6 22. Hg3+?! Þessi leikur var ekki „sam- þykktur“. Eftir 22. exd5 Re7 eða – Rb8 kemur 23. f5 og vinnur þar sem drottning er á leið til h6. 22. … Kf8 23. exd5 Rb8? Betri vörn var 23. … Re7. 24. Bd3 Dc3 25. De2 f5 26. Dh5 Dh8 27. He1 Og hér vill „Houdini leika 27. Dh6+ Ke7 28. Bxf5 með vinnings- stöðu. 27. … h6! 28. Dh4 f6 29. Bxf5 Bf7 30. Bxc8 Hxc8 31. Dg4 Hxc2 32. Df5 Hc7 33. Hge3 h5 34. h4 Dh6 35. Hg3 Rd7 Þó að staðan sé erfið hefur svartur náð að byggja upp varnir. Jón sá sig knúinn til að hrista upp í stöðunni. 36. He6! Bxe6? Eina vörnin var fólgin í 36. …. Hc4! 37. dxe6 Ke7 38. exd7 Hxd7 39. De4+ Kd8 40. Hg8+ Kc7 41. Dc4+ Kb6 42. a4! Snotur lokaleikur. Það er enn minna skjól á drottningarvængnum og mátið blasir við eftir 42. … Ka7 43. Dd4+ b6 44. De4 Hb7 45. De8! „Skákvélarnar“ og innsæið Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Ég gat nú ekki annað en hlegið, þegar ég heyrði í fréttum útvarps- ins áðan, að stjórnarandstaðan hefði verið að gagnrýna orð Vigdís- ar Hauksdóttur, sem hún viðhafði um forstjóra Landspítalans í sjón- varpinu nýlega, og sagði framkomu þingmannsins setja blett á þingið og þaðan af verra. Þá datt mér í hug að segja upp á vestfirsku: Að heyra ofan í stjórnarandstöðuþing- mennina. Hvað eru þeir sjálfir að gera með því að hlaupa upp í ræðustól þings- ins í tíma og ótíma, blaðrandi og röflandi um störf þingsins og fund- arstjórn forseta af litlu sem engu tilefni, stundum svo vikum skiptir og trufla með því þingstörfin? Þeir eru kannski ekki að setja blett á þingið með því, og sjálfa sig í leið- inni, – eða hvað? Þeir mættu hugsa um það einhvern tíma, áður en þeir fara að saka aðra um að gera slíkt. Þeim ferst eða hitt þó heldur, og ættu að taka sig á sjálfir til að auka virðingu þingsins og hætta þessum eilífu upphlaupum sínum, sem allir eru orðnir þreyttir á. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Hvað setur blett á þingið? Alþingi Ekki má setja blett á þingið með óþarfa upphlaupum í pontu. Morgunblaðið/Ómar Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morg- unblaðið birtir ekki greinar sem einn- ig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morg- unblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem lið- urinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hverjir syngja og flytja ljómalagið fræga? Þrjú á palli Sexdett óla gauks ríó tríó Taktu þátt í leiknum Farðu inn á facebook & glæsileg kenwood hrærivél í verðlaun ásamt fjölda annara vinninga ljóma Skeifunni 8 | Kringlunni | Sími 588 0640 | casa.is Þú færð jóla gjöfina í Cas a Verð 169.000,- Cuero Mariposa Hönnuðir: Bonet, Kurchan & Ferrari Hannaður 1938

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.